Fréttablaðið - 28.09.2005, Blaðsíða 32
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 MARKAÐURINN8
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Hjálmar Blöndal
skrifar
Bill Gates hvatti á dögunum hugbúnaðarframleið-
endur til að gera sig reiðubúna fyrir nýtt
Windows-stýrikerfi. Á kynningarfundi sem
Microsoft tölvurisinn stóð fyrir, sagði Gates að
nýtt stýrikerfi og nýtt viðmót Office-pakkans
myndi vekja athygli þegar vörurnar kæmu á
markað seint á árinu 2006. „Þegar þessar vörur
koma á markaðinn, munu þær valda byltingu,“
sagði Gates.
Núverandi útgáfa af Windows, Windows XP,
kom á markað undir lok ársins 2001 og hefur því
liðið talsverður tími frá síðustu uppfærslu
Windows. Gates sagði að ekki hefði liðið svo lang-
ur tími áður á milli útgáfa af Windows, en Gates
segir að þrýstingur hafi verið kominn frá hugbún-
arframleiðendum um að uppfæra Windows til
þess að þeir gætu gefið út nýjar útgáfur af hug-
búnaði sínum.
Nýja kerfið fær nafnið Windows Vista og sagði
Gates að framundan væri stærsta markaðsátak í
sögu Microsoft til að kynna nýja stýrikerfið fyrir
neytendum. „Þetta er það stærsta sem við höfum
gert síðan við settum Windows 95 á markað,“
sagði hann.
Office-pakkinn, sem meðal annars hefur rit-
vinnsluforritið Word og töflureikninn Excel,
verður einnig uppfærður og verður tilbúinn á
sama tíma og Windows Vista. Microsoft hefur
þegar sýnt fjárfestum og forsvarsmönnum hug-
búnaðarfyrirtækja hvernig nýju kerfin munu
birtast notendum þeirra en þangað til undir árs-
lok 2006 verður algjör leynd yfir Windows Vista
og Office-pakkanum en hugbúnaðarframleiðend-
ur hafa fagnað frumkvæðinu og bíða í ofvæni eft-
ir að geta markaðssett sínar eigin vörur.
BILL GATES STJÓRNARFORMAÐUR MICROSOFT
-um víða veröld
Galdurinn er að láta okkur vinna fyrir þig
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
JO
N
22
57
2
1
0/
20
03
Skipasendingar Flugsendingar Hraðsendingar Vörumiðstöð Tollafgreiðsla Akstursþjónusta Útflutningur
Kjalarvogi • Sími 535 8000
jonar@jonar.is • www.jonar.is
JÓNAR TRANSPORT bjóða alhliða
flutnings þjónustu í samstarfi við
bestu flutnings aðila sem völ er á,
bæði hérlendis og erlendis. Þéttriðið
þjónustu net um allan heim tryggir
flýti, öryggi, hagstæð gjöld og góða
vörumeð höndlun frá verksmiðju vegg
og heim í hlað.
Sony tekur til
Tíu þúsund manns látin fjúka á næstu árum.
Sony-samsteypan hefur tilkynnt að tíu þús-
und starfsmönnum um allan heim verði
sagt upp á næstu tveimur og hálfu ári
sem er um 7 prósent alls mannafl-
ans en hjá fyrirtækinu vinna um
150 þúsund manns í áttatíu lönd-
um. Fyrirtækið hefur einnig fyrir-
ætlanir um að loka 11 af 65 verk-
smiðjum sínum víðs vegar um heiminn. Að-
gerðirnar koma í kjölfar ráðningar nýs
framkvæmdastjóra samsteypunnar,
Sir Howard Stringer, sem hefur
stjórnað starfsemi Sony í Bandaríkjunum með
góðum árangri. Hann er fyrsti framkvæmda-
stjóri í 59 ára sögu fyrirtækisins sem ekki
er af japönskum ættum.
Sony er næststærsti raftækjafram-
leiðandi heims á eftir Matsushita en hefur átt
í erfiðleikum með að aðlagast breyttum aðstæðum á markaði og hef-
ur smátt og smátt verið að missa hlutdeild til samkeppnisaðila á lykil-
mörkuðum sínum. Til að mynda hefur fyrirtækinu, sem fann upp
vasadiskóið á sínum tíma, reynst tilkoma iPod frá Apple sérstaklega
erfið. - hhs
Microsoft hannar
Windows vista
Hugbúnaðarframleiðendur fagna frumkvæðinu.
Sápuleikur í farsímann
Tölvuleikjaframleiðandinn
Gameloft vinnur nú að gerð far-
símaleiks úr unglingasápunni
O.C. sem hefur notið mikilla
vinsælda um allan heim. Leik-
urinn verður af svipuðu sniði
og tölvuleikurinn Sims, en spil-
arinn tekur sér hlutverk einnar
af fjórum aðalpersónum þáttar-
ins eða skapar sér sína eigin og
þarf að klæðast á réttan hátt,
komast inn í réttu klíkurnar,
eignast rétta elskhugann og
annað til að reyna að passa inn í
hópinn. Gameloft er þekkt fyrir
farsímaleiki byggða á
Hollywood-efni og hefur meðal
annars skapað leiki byggða á
kvikmyndunum King Kong og
War of the Worlds. -hhs
MISCHA BARTON
Leitarvélin Google og sjónvarps-
stöðin UPN, sem er hluti alþjóð-
lega fjölmiðlafyrirtækisins Vi-
acom Inc., hafa náð samkomulagi
um að frumsýna nýja gaman-
þætti grínistans Chris Rock á
leitarvélinni Google. Þættina,
sem byggja á uppvaxtarár-
um leikarans, má nálgast á
vefsíðunni http://vid-
eo.google.com/chris frá og
með næsta mánudegi.
Leitarvélar á borð við
Google og Yahoo! keppast nú um
efni frá framleiðendum frétta,
sjónvarpsþátta og kvikmynda
til að sýna á síðum sínum. Sum-
ir framleiðendanna eru þó treg-
ir til að láta efni af þessu tagi til
leitarvélanna af ótta við að aug-
lýsingatekjur minnki og notend-
um heimasíðna þeirra fækki.
Chris Rock á Google
UPN og Google hafa gert samning um frumsýn-
ingu á nýjasta gamanþætti Chris Rock.
GRÍNISTINN CHRIS ROCK Frumsýning á sjón-
varpsþáttaröð um uppvaxtarár Chris Rock verður
hægt að nálgast í gegnum leitarvél Google.