Fréttablaðið - 28.09.2005, Síða 36
Undanfarið hafa erlendir
aðilar gefið út skuldabréf í
íslenskum krónum fyrir
rúmlega fimmtíu milljarða
króna en í gær var útgáfan
komin alls í 57,5 milljarða
króna. Skuldabréfaútgáfan
vakti að vonum athygli þeg-
ar hún hófst og markaðsaðil-
ar velta nú fyrir sér áhrifum
af skuldabréfaútgáfunni fyr-
ir íslenska hagkerfið. Ekki
síst velta margir fyrir sér
stöðu íslensku krónunnar og
áhrifum skuldabréfaútgáf-
unnar á krónuna, vexti og
aðra meginþætti sem þykja fyrirferðarmest-
ir við hagstjórn og hafa hvað mest áhrif í ís-
lensku viðskiptalífi.
VEXTIR OG ÁHÆTTA
Margir velta því fyrir sér hvers vegna er-
lendir aðilar hafa áhuga á því að gefa út
skuldabréf í íslenskum krónum og hvers
vegna hún verði svo áberandi nú um stundir.
Ljóst er að ýmsir þættir í íslensku hagkerfi
eru útgefendum skuldabréfanna hagstæðir,
einkum millibankavextir svo og gengi ís-
lensku krónunnar.
Skuldabréfin eru gefin út til að afla láns-
fjármagns og ræðst verðmæti skuldabréfsins
af framboði og eftirspurn, lánstíma, ávöxtun-
arkröfu markaðarins og fleiri þáttum.
Skuldabréfin sem hér um ræðir eru svokölluð
markaðsskuldabréf og í raun einföld skulda-
viðurkenning skuldarans til lánveitandans og
ganga kaupum og sölum á verðbréfamarkaði.
Vextir bréfanna ákvarðast svo af framboði og
eftirspurn en einnig má færa rök fyrir því að
þeir taki mið af vöxtum ríkisskuldabréfa í
viðkomandi landi og verður vikið að síðar. En
af hverju skyldu einhverjir gefa út skulda-
bréf í íslenskum krónum?
Hinir svokölluðu millibankavextir í ís-
lenskum krónum (REIBOR) eru talsvert
hærri en millibankavextir með Evrur (EURI-
BOR). Tólf mánaða REIBOR-vextir mælast
nú 9,9 prósent á meðan millibankavextir með
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 MARKAÐURINN12
Ú T T E K T
Skuldabréfaútgáfa erlendra aðila hefur vakið athygli að undanförnu. Nokkrir af stærstu bönk-
um heims eru nefndir sem útgefendur skuldabréfanna og upphæðirnar skipta tugum millj-
arða. Hjálmar Blöndal kannaði hvað býr að baki.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/G
VA
Kaupandi Upphæð Uppgjörsdagur Vextir Gengi Útgáfudagur Söluaðili Lánshæfi Skráningarstaður
Eksportfinans ASA 9 7.9.2007 8,50% 100,573 7.9.2005 TD Securities Aaa/AA+
Republic of Austria 9 15.9.2006 9,00% 100,72 15.9.2005 TD Securities Aaa/AAA/AAA Lux
Barclays Bank Plc 1,5 15.9.2006 9,00% 100,75 15.9.2005 Barclays Bank Aa1/AA Lux
Dresdner Bank 5 15.9.2006 9,25% 99,77 15.9.2005 Dresdner Bank AG A1/A/A
KfW 6 20.9.2007 8,25% 100,91 20.9.2005 TD Securities Aaa/AAA/AAA Lux
Rabobank Nederland 9 22.3.2007 8,625% 100,625 21.9.2005 TD Securities Aaa/AAA Lux
Íslandsbanki 1 21.9.2007 8,50% 100 21.9.2005
Deutsche Bank 5 29.9.2006 8,00% 98,55 29.9.2005 Deutsche Bank Aa3/AA-
Íslandsbanki 3 4.10.2006 9,00% 100 4.10.2005 DZ Bank A1 Lux
EIB 6 6.10.2008 7,00% 100,5375 6.10.2005 TD Securities Aaa/AAA/AAA Lux
Kaupthing Bank 3 12.4.2007 8,00% 100,09 12.10.2005 Deutsche Bank A1
Samtals 57,5
Greitt 34,5
Eftirstöðvar 23 Heimild: KB banki
S K U L D A B R É F Í Í S L E N S K U M K R Ó N U M G E N G I S S K R Á N I N G A R V O G K R Ó N U N N A R
USD 23,03%
GBP 12,1%
CAD 1,1%
DKK 8,13%
NOK 6,04%
JPY 3,38%
EUR 41,14%
CHF 1,21%
SEK 3,87%
Skuldabréfaútgáfan heldur
GENGISSKRÁNINGARVOG ÍSLENSKU KRÓNUNNAR Evran
hefur hlutfallslega mest vægi í gengisvísitölunni. Gengisvísitalan
byggir á samsetningu utanríkisviðskipta ársins 2004.