Fréttablaðið - 28.09.2005, Side 38
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 MARKAÐURINN14
F Y R I R T Æ K I
F Ó L K Á F E R L I
Tómas Tómasson, athafnamaður
með meiru og aðaleigandi Ham-
borgarabúllu Tómasar, þrífst á
fleygum setningum og máltækj-
um. Ein þeirra setninga sem eru
í miklu uppáhaldi hjá honum er
höfð eftir Vince Lombardi, goð-
sagnakenndum þjálfara í amer-
íska fótboltanum: „Heiðarleiki er
ekki besti kosturinn. Heiðarleiki
er eini kosturinn.“
Árið 1985, í upphafi ferils
Tómasar, brá hann sér til London
til að sinna viðskiptaerindum. Í
leiðinni heimsótti hann
þónokkrum sinnum bílasölu sem
seldi notaða Rolls Royce- og
Bentley-bíla því hann hafði auga-
stað á '68 árgerð af Bentley sem
þar var til sölu. Eigandi bílasöl-
unnar var virðulegur eldri mað-
ur að nafni Frank Dale sem hafði
verið í viðskiptum í áratugi.
Frank þessi átti meðal annars
hinn gullna Rolls Royce í kvik-
myndinni Goldfinger sem marg-
ir kannast við. Það varð úr að
Tómas keypti draumabílinn og
flutti inn til Íslands, þann fyrsta
sinnar tegundar á landinu. Þegar
þeir Tómas voru búnir að ganga
frá kaupunum bað Tómas gamla
manninn að gefa sér, ungum
manninum sem væri að hefja
viðskiptaferil sinn, eitt heilræði.
„Herra Tómasson – heiðarleiki!“
sagði sá gamli um hæl og hafði
ekki um það fleiri orð. Tómas
segir að því meira sem hann
hugsi um þetta heilræði og eftir
því sem tíminn líði geri hann sér
betur grein fyrir því hversu dýr-
mætt það er. „Það er svo mikil-
vægt að manni sé treyst í við-
skiptum því það tekur mörg ár
að byggja upp traust en aðeins
nokkrar sekúndur að brjóta það
niður.“ - hhs
B E S T A R Á Ð I Ð
„Það er mikið fjör á fyrirtækjamarkaði og
alltaf að verða líflegra. Bjartsýnin er mikil í
þjóðfélaginu og fyrirtækjum gengur almennt
vel,“ segir Jens Ingólfsson rekstrar-
hagfræðingur. Kontakt að-
stoðar við að miðla fyrir-
tækjum til kaups og
sölu. Margir starfs-
manna fyrirtækisins
hafa þó langa reynslu
af fyrirtækjasölu og
eru margir kaupendur,
sem eru að leita að góðum
fyrirtækjum, á skrá hjá því.
Fyrir tíu til fimmtán árum síðan þá
þekktist það varla að menn væru að selja fyr-
irtækin sín. Í dag þykir það aftur á móti eðli-
legt; alveg eins og menn skipta um vinnu þá
skipta menn um fyrirtæki. Um þessar mund-
ir er algengt að fyrirtæki séu í stækkunar-
hugleiðingum og leiti að ytri vexti. Enn frem-
ur er mikið um það að reynslumiklir einstak-
lingar séu að leita sér að fyrirtækjum.
„Flest íslensk fyrirtæki eru af óhag-
kvæmri stærð. Fyrirtæki sem eru að velta
200 milljónum sjá að 400 milljóna króna velta
er betri og sá sem rekur fyrirtæki, sem velt-
ir 400 milljónum, sér að 600 milljónir eru
betri. Því er eðlilegt að fyrirtækin séu að
stækka.“
KAUP SKYNSAMLEGRI
Það er draumur margra Íslendinga um að vera
sjálfs síns herrar og fara út í rekstur. „Við fá-
umst við nokkuð stór fyrirtæki og fáum því til
okkar aðila sem hafa reynslu af rekstri og bol-
magn til að takast á við þessi verkefni. Þú get-
ur ekki keypt alvöru fyrirtæki nema þú hafir
talsvert eigið fé. Einnig verður maður að hafa
rétta vangasvipinn fyrir bankann til að fá lán,“
segir Jens hlæjandi.
Er skynsamlegra að kaupa fyrirtæki en að
stofna það frá grunni? „Já, það er augljóst.
Ástæðan fyrir því að menn kaupa fyrirtæki er
auðvitað sú að það er hagkvæmara en að
stofna þau frá grunni. Margir átta sig ekki al-
veg á þessu. Það tekur ákveðinn tíma
fyrir fyrirtæki að komast upp
í ákveðna veltu til að skila
hagnaði. Með því að
kaupa fyrirtæki, sem
skilar rekstrarhagn-
aði, þá er maður með
jákvætt sjóðsstreymi
frá fyrsta degi.“
Jens segist ekki muna
eftir fyrirtækjakaupum á síð-
ustu árum sem hafi mistekist. Þetta
gengur yfirleitt vel upp, jafnvel þegar menn
eru sagðir hafa keypt fyrirtæki dýru verði.
SEXÍ FYRIRTÆKI
Að sögn Jens þarf þrennt að koma til áður en
maður finnur rétta fyrirtækið. Í fyrsta lagi
þarf hagfræðin að vera í lagi, fyrirtækið verð-
ur að vera með rekstrarsögu, sýna rekstrar-
hagnað (EBITDA) og vera fjármögnunarhæft.
Þessi þáttur er yfirleitt alltaf í lagi þegar al-
vöru fyrirtæki eiga í hlut. Í öðru lagi verður fé-
lagið að vera sexí og eitthvað sem kaupandinn
vill gera. Í þriðja lagi verða hugsanlegir kaup-
endur að sjá möguleika að gera betur í
rekstrinum en núverandi eigendur.
„Það sem er ef til vill mikilvægast af þessu
þrennu er annar liðurinn – að fyrirtækið sé
sexí – því að það sem er sexí fyrir einn er ekki
fyrir annan. Mesti vandinn er alltaf að finna
hvað það er sem þig langar í. Um leið og við
finnum hverjar þarfir kaupandans eru þá
erum við tiltölulega fljótir að finna eitthvað
gott dæmi.“
Jens er spurður hvers konar fyrirtæki séu
eftirsóttust. „Ef matvöruheildverslun eða
framleiðslufyrirtæki með matvörur kæmi á
markað þá myndi það ekki stoppa lengi. Stórir
aðilar á þessum markaði, eins og heildsölur,
eru mjög vakandi fyrir viðbótum af þessu
tagi.“
SEXFÖLD EBITDA
Hérlendis er einkum miðað við EBITDA-marg-
feldi við verðlagningu á fyrirtækjum. Hugtak-
ið EBITDA stendur fyrir rekstrarhagnað fyrir
afskriftir, fjármagnsliði og skatta. Það getur
farið nokkuð eftir stærð fyrirtækisins og starf-
semi þess hvaða tala er notuð en hún geti ver-
ið frá fjórfaldri EBITDA upp í tólffalda. Oft er
miðað við að fyrirtæki gangi kaupum og sölum
fyrir sexfaldan rekstrarhagnað. Þegar komið
er út í hærra margfeldi getur verið erfitt að
fjármagna kaupin. „Maður sér ekki hærra
margfeldi nema þegar fyrirtæki eru að kaupa
önnur fyrirtæki og sjá mikil samlegðaráhrif.“
„Þegar litið er á EBITDA þá er hún ekki tek-
in hrá heldur leiðrétt. Ef fyrirtæki er í eigin
húsnæði þá vantar húsnæðiskostnað. Launa-
kostnaður er oft leiðréttur þar sem eigendur
taka oft laun í gegnum arð. Þá þarf að skoða
hvort einkaneysla sé fyrir hendi sem er algeng
þegar fyrirtæki eru í eigu eins eða fáeinna að-
ila,“ segir Jens.
Hann er ekki á því að verð á fyrirtækjum
hafi hækkað á milli ára. Seljendur hafa í dag
kannski fleiri kaupendur en áður. „Sumir vilja
meina að verð á fyrirtækjum sé hátt miðað við
fyrirtæki í Englandi og á Norðurlöndunum þar
sem hægt er að kaupa fyrirtæki á mjög góðu
verði. Ég tel hins vegar að verðið sé ekki of
hátt.“
Það sem hefur haft meiri áhrif er að fjár-
mögnun er orðin auðveldari. „Í dag er mjög al-
gengt að stærri fyrirtæki séu fjármögnuð að
fjórðungi með eigið fé á móti skuldum. Þá get-
ur ávöxtun eigin fjár orðið mun betri en ef eig-
endurnir leggja meira af mörkum. Lánsfé er
oft á sjö til átta prósenta vöxtum. Eftir því sem
lánsfé er hærra hlutfall af kaupunum því
hærra verð er hægt að borga við kaupin,“ segir
Jens að lokum.
Kontakt fyrirtækjaráðgjöf
Eigendur: Brynhildur Bergþórsdóttir,
rekstarhagfræðingur ásamt fleirum.
Starfsmenn: 5.
Höfuðstöðvar: Suðurlandsbraut 4.
Skynsamlegra að kaupa en stofna
Fyrirtæki leitast við að stækka þessa dagana en jafnframt eru einstaklingar með augun opin fyrir
góðum fyrirtækjum. Jens Ingólfsson, rekstarhagfræðingur hjá Kontakt fyrirtækjaráðgjöf, segir við
Eggert Þór Aðalsteinsson að rekstrarumhverfi fyrirtækja sé gott og aldrei hafi verið auðveldara að
fjármagna fyrirtækjakaup. Mikilvægt er þó að átta sig á því hvers konar fyrirtæki henti hverjum og
einum.
GUNNAR GUNNARSSON verður sérfræð-
ingur á sviði fjármála og reikningshalds
Atlantis Group. Hann hefur unnið hjá
Deloitte síðan 2003 við endurskoðun og
reikningshald. Hann er 32 ára viðskipta-
fræðingur og er kvæntur Írisi Rut Árna-
dóttur, starfsmanni Íslandspósts. Þau
eiga tvo drengi.
ÞÓRDÍS SIGURÐARDÓTTIR hefur verið
ráðin sem Forstöðumaður Nordic Fjár-
festinga hjá Baugi
Group hf. frá og með
1. október 2005. Þór-
dís tekur við stöð-
unni af Baldri Bald-
urssyni sem hefur
verið ráðinn sem
framkvæmdastjóri
Futura sem er rekstraraðili Dominos
Pizza á Íslandi og í Danmörku.
Þórdís var áður framkvæmdastjóri
MBA-náms við Háskólann í Reykjavík
auk þess sem hún gegndi stöðu aðstoð-
arprófessors. Áður en Þórdís tók til
starfa hjá Háskólanum í Reykjavík var
hún aðstoðarmaður framkvæmdastjóra
EJS og stýrði starfsmannahaldi fyrir-
tækisins.
Þórdís hefur undanfarna mánuði m.a.
annast ráðgjafastörf hjá OgVodafone.
Hún situr í stjórnum fyrirtækjanna
Mosaic Fashions, Haga hf. og Merlin.
Þórdís Sigurðardóttir lauk MBA-prófi
árið 2001 í Vlerick í Belgíu. Hún er
einnig með M.A. próf í félagsfræði og
B.A. próf í stjórnmálafræðum.
BALDUR BALDURSSON hefur tekið við
stöðu framkvæmdastjóra Dominos pizza
á Íslandi.
KONTAKT FYRIRTÆKJARÁÐGJÖF „Ástæðan fyrir því að menn kaupa fyrirtæki er auðvitað sú að það er hagkvæmara en að stofna þau
frá grunni,“ segir Jens Ingólfsson, rekstrarhagfræðingur hjá Kontakt fyrirtækjaráðgjöf.
TÓMAS TÓMASSON Að vera heiðarlegur
er dýrmætasta heillaráð sem honum hefur
verið gefið.
Heiðarleiki eini kosturinn
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/G
VA