Fréttablaðið - 28.09.2005, Blaðsíða 61
25ÞRIÐJUDAGUR 28. september 2005
Myndum skal skila› fyrir næsta jólafrí til skólamjólkurfulltrúa,
hjá Marka›snefnd mjólkuri›na›arins Bitruhálsi 1, 110 Reykjavík.
Úrslit ver›a tilkynnt í mars 2006.
– 28. september 2005
6. alfljó›legi
4. bekkinga
Teiknisamkeppni
Öllum nemendum 4. bekkjar er bo›i› a› taka flátt í teiknisamkeppni
Skólamjólkurdagsins. Myndefni› er algjörlega frjálst en æskilegt er
a› myndin tengist hollustu mjólkurinnar fyrir ungt fólk. Myndirnar
ver›a sí›an nota›ar til myndskreytingar á veggspjöld og kynningar-
efni vegna Skólamjólkurdagsins 2006.
Veitt ver›a ver›laun fyrir 10 bestu myndirnar. Ver›launin fyrir hverja
mynd eru 25.000 kr. sem renna í bekkjarsjó›i ver›launahafanna.
Taktu flátt í teiknisamkeppni Skólamjólkurdagsins og láttu hæfileika
flína njóta sín – fla› er til mikils a› vinna!
Hér má sjá vinningsmyndir Skólamjólkurdagsins 2004.
Jón Gautason, Flóaskóla
Anna Magg‡ Grímsdóttir, Snælandsskóla
fiórmundur Hilmarsson, Flú›askóla
Hafflór Ingi Ragnarsson, Flú›askóla
Maríanna Svansdóttir, Flú›askóla
Gu›jón Örn Sigur›sson, Flú›askóla
Kristín Hulda Kristófersdóttir, Snælandsskóla
Bergdís Rán Jónsdóttir, Barnaskóla Vestmannaeyja
Svanborg Sign‡ Jóhannsdóttir, Ljósafossskóla
Sóley Reynisdóttir, Hei›arskóla, Reykjanesbæ
Miller mætti ein í brú›kaupi›
Þótt Sienna Miller og Jude Law
séu að reyna að láta samband sitt
ganga hefur enn ekki gróið um
heilt þar á milli. Miller mætti til
dæmis ein í brúðkaup systur sinn-
ar, Savannah og smiðsins Nic
Skinner, en The Daily Mirror
greinir frá þessu.
Miller er sögð hafa óttast að
allt umtalið í kringum framhjá-
hald Laws myndi eyðileggja
stóra daginn fyrir systur sinni.
Þar að auki var leikarinn bendl-
aður við kynsvall með fyrirsæt-
unni Kate Moss sem hefur vafa-
laust ekki verið til að bæta mál-
in.
Sienna, sem sjálf ætlaði upp
að altarinu með Law, hefur lýst
systur sinni sem hippa. „Hún þol-
ir ekki fræga fólkið og skilur það
ekki. Mér hefði fundist verra að
draga hana inn í þetta,“ sagði
Miller í samtali við blaðið en tók
jafnframt fram að hún hefði út-
skýrt málavexti fyrir Law og
hann hefði skilið það. ■
JUDE OG SIENNA Ekkert par hefur verið jafn mikið á milli tannanna og þau. Miller
mætti fyrir skömmu ein í brúðkaup systur sinnar til að Jude skyggði ekki á stóra daginn.
Breski söngvarinn Lemar
vinnur til ver›launa
Breski sálarsöngvarinn Lemar
sigraði enga aðra en Mariuh Car-
ey á verðlaunahátíð MOBO, Music
of black origin, eða tónlist af
svörtum uppruna. Söngvarinn
sem fæddur er í London, komst í
návígi við frægðina í hæfileika-
þættinum, Face Academy.
Hann hlaut verðlaun fyrir
bestu plötuna sem ber
heitið, Time to Grow,
og einnig hlaut
hann verðlaun fyr-
ir að vera
b e s t i
b r e s k i
listamaðurinn. „Ég bjóst alls ekki
við þessu. Ég veit ekki hvað skal
segja. Ég vil fá að þakka öllum
þeim sem studdu mig.“
Þetta er í tíunda sinn sem þessi
verðlaunahátíð er haldin en það er
almenningur sem kýs. Lauryn
Hill byrjaði á því að koma fram á
hátíðinni, R&B John Legend, tón-
listarmaðurinn hlaut verðlaun
fyrir bestu R&B framkomuna.
Damian Marley fékk verðlaun
fyrir að vera besti reggí-listamað-
urinn og hann lauk einnig verð-
launahátíðinni með glæsilegri
uppákomu. Meðal annarra sem
hlutu verðlaun má nefna,
rappsveitina Public Enemy, Yous-
sou N’Dour og Luther Vandross.
John Lennon
ska›a›i son sinn
Bítillinn John
Lennon var pirraður
og ofbeldisullur fað-
ir ef marka má sög-
ur fyrstu konu hans,
Cynthiu. Cynthia
sem nú er 66 ára
gömul segir að sonur þeirra,
Julian Lennon, sé enn í sárum
eftir þá framkomu og óvirðingu
sem John Lennon sýndi honum
sem barni. Hún telur eitt ákveðið
atvik hafa skaðað hann svo mikið
að hann hafi varla hlegið síðan.
„Þegar fjölskyldan hafði verið að
fíflast og Julian fór að hlæja
sneri John sér við og öskraði og
bætti við að hann þyldi ekki
þegar það væri hlegið að honum.“
Við þetta hljóp Julian inn í her-
bergið sitt grátandi. ■
Moss gefst
ekki upp
Kate Moss er á
leiðinni í með-
ferð samkvæmt
breska blaðinu
The Daily Mirr-
or. Þessi ofur-
fyrisæta hefur
sætt nornaveið-
um slúðurblað-
anna. Er það
ekki síst vegna
sambands henn-
ar við Pete
Doherty en hann er þekktur
dóphaus. Blöðin náðu loks mynd
af henni þar sem hún var sögð
vera að taka kókaín. H&M,
Burberry og Chanel sögðu upp
samningum sínum við fyrirsæt-
una í kjölfarið en Moss hefur ver-
ið sú eftirsóttasta í sínum geira.
Ljósið í myrkrinu hjá Kate er
að umboðsskrifstofa hennar ætlar
að standa þétt við bakið á henni og
styðja hana á erfiðum tímum. ■
Sharon er svart-
s‡nismanneskja
Sharon Osbourne lifir í ótta við að
krabbameinið, sem hún barðist
við fyrir tveimur árum, taki sig
upp að nýju.
Þegar Sharon komst að því að
hún var með krabbamein fann
hún styrk í að reyna að hjálpa öðr-
um. Í kjölfarið byrjaði hún með
sjónvarpsþætti sem áttu að að-
stoða þá krabbameinssjúku. En
þótt hún hafi sýnt á sér þessa
sterku hlið segir Sharon að hún
lifi í stöðugum ótta. „Ég er mjög
óttaslegin. Ég fer í skoðun á sex
mánaða fresti til að athuga hvort
allt sé ekki í lagi. Ég er mjög
svartsýn manneskja og er alltaf
tilbúin að taka á móti vondum
fréttum.“ ■
MOSS Nú hefur
Moss ákveðið að
snúa við blaðinu og
fara í meðferð.