Fréttablaðið - 28.09.2005, Qupperneq 67
Margir hafa áhyggjur af heilsu
Kate Hudson en hún virðist hafa
mjókkað óendanlega upp á
síðkastið.
Vinir leikkonunnar eru sam-
mála um að hún megi vel bæta að-
eins á sig enda sé hún nánast bara
skinn og bein.
Fyrir tuttugu mánuðum eignað-
ist Hudson dreng og eftir fæðing-
una kepptist hún við að ná af sér
kílóunum. Hún var svo metnaðar-
full í ræktinni að það var löngu
hætt að vera sniðugt. Vinir hennar
segja að hún hafi meira að segja
gengið svo langt að refsa sjálfri
sér til að megrunin gengi betur.
„Ég gerði nákvæmlega allt sem
ég gat til að komast aftur í form.
Ég léttist kannski um tuttugu kíló
og svo léttist ég kannski ekkert í
heilar tvær vikur. Ég ofgerði mér
í ræktinni en það bar engan ár-
angur. Ég var svo þreytt að ég
grét á göngubrettinu,“ sagði leik-
konan. ■
Kate Hudson hrí›horast
Michael Jackson hefur ákveðið að
reyna að koma sér á framfæri sem
hiphop-listamanni, en það virðist
vera örvæntingarfull tilraun til að
bjarga ferlinum í poppbransanum.
Söngvarinn gamalkunni er að
reyna að koma sér aftur á strik
eftir allt ákæruflóðið sem herjað
hefur á hann. Því er haldið fram að
poppsöngvarinn sem býr eins og
er í Bahrain, muni fljótlega gefa út
nýja plötu með nýjum áherslum.
„Brátt munuð þið sjá Michael
Jackson umvafinn fallegum kon-
um eins og aðrir hiphop-lista-
menn. Jackson er sem stendur að
æfa stíft til að gera sig örlítið
karlmannlegri,“ sagði vinur
söngvarans. Goðið æfir af fullum
krafti með einkaþjálfara í Ba-
rein. Hann hefur einnig ákveðið
að losa sig við síðu hárkollurnar
og andlitsfarðann til að virðast
eðlilegri.
Michael Jackson
me› n‡jar áherslur
Poppsöngkonan Pink segir að húneigi fullt erindi í tónlistarbransann,
en síðasti geisladiskur hennar, Try This,
var harðlega gagnrýndur. Söngkonan
sem er 26 ára gömul, varð mjög miður
sín þegar gagnrýnendur sögðu plötuna
alls ekki nógu góða. Hún er þó sann-
færð um að næsti diskur muni gera sig
betur og neitar að láta gagnrýnisraddir
hafa áhrif á sig. „Fólk sagðist hafa
misst trúna á mér eftir síðasta
disk þannig að ég ákvað að kalla
næstu plötu mína I’m Not
Dead,“ segir Pink. Mér yrði
eiginlega alveg sama ef þessi
plata myndi ekki standast
væntingar en ég veit að hún
mun seljast. Ég er svo inni-
lega ekki lélegur listamaður.“
Poppstjarnan Robbie Williams villgiftast draumastúlkunni sinni í
Las Vegas. Eftir að hafa átt í ástar-
ævintýri með fyrirsætunni Rachel
Hunter og söngkonunni Geri Halli-
well er Robbie enn að leita sér að
sálufélaga. Hann hefur nú þegar
ákveðið hvernig brúðkaupið skuli
vera. „Ég myndi ekki
vilja hafa brúðkaup
mitt venjulegt vegna
þess að þar myndi
verða fólk og ég þoli ekki
fólk. Ég myndi frekar vilja
hafa hlutina einfaldari eins
og, „Elskan mín, kláraðu nú
matinn þinn, finnst þér ekki
bara að við ættum að gifta
okkur.“
FRÉTTIR AF FÓLKIWhitaker til li›s vi› The Shield
Bandaríski leikarinn Forest Whita-
ker hefur tekið að sér hlutverk í
sjónvarpsþáttunum The Shield.
Whitaker verður ekki í neinu
gestahlutverki heldur leikur hann
nýjustu ógnina við Vic Mackey en
The Shield hefur verið sýnd hér á
landi við töluverðar vinsældir.
Whitaker leikur Jon Kavan-
augh, sem er metnaðargjarn lög-
regluþjónn og gengur til liðs við
innra eftirlit lögreglunnar í Los
Angeles. Hans fyrsta verkefni er
að rannsaka Vic og félaga hans en
þeir hafa ekki verið þekktir fyrir
hefðbundin vinnubrögð. Það verð-
ur sem fyrr Michael Chiklis sem
leikur hinn skapbráða Mackey.
Fjórða þáttaröðin var nýlega sýnd
á Stöð 2. Þar fór ekki ómerkari
leikkona en Glenn Glose með eitt
aðalhlutverkanna og hlaut hún
Emmy-tilnefningu fyrir leik sinn.
Skapari þáttanna, Shawn Ryan,
segist vera himinlifandi yfir
komu Whitakers. „Hann verður
frábær viðbót við leikhópinn en
Whitaker hefur alltaf heillað
mig,“ sagði hann í samtali við
Hollywood Reporter en persóna
Whitakers á að vera einhver
mesta ógn sem Mackey hefur lent
í. Síðast þegar Whitaker lék í sjón-
varpi var það í Deacons of the
Defense. Whitaker var áberandi á
hátíðinni í Toronto þar sem hann
kynnti meðal annars kvikmynd
Baltasars Kormáks, A Little Trip
to Heaven. Þá var hann einnig í
American Guns sem hann fram-
leiddi auk kvikmyndarinnar
Mary.
VIC MACKEY Sérsveit lögreglunnar í Los
Angeles er þekkt fyrir allt annað en óhefð-
bundin vinnubrögð. Það er Michael Chiklis
sem fer með aðalhlutverkið.
FOREST WHITAKER Fer með eitt aðalhlutverkanna í A Little Trip to Heaven en hann mun leika í fimmtu seríu The Shield.