Fréttablaðið - 19.10.2005, Side 45
Í Bláa lóninu er að finna
afar góða fundaraðstöðu,
þar sem hægt er að vinna í
kyrrlátu og fallegu um-
hverfi og njóta slökunar og
veitinga eftir fund.
Við Bláa lónið eru fjórir fallegir
fundarsalir, einn er í húsi Bláa lóns-
ins, en hinir þrír í Eldborg sem
staðsett er við orkuverið. Lónið
sjálft og umhverfi þess veitir þess-
ari fundaraðstöðu sérstöðu og eru
salirnir sumir hannaðir með stórum
og miklum gluggum svo fundar-
gestir geta notið útsýnis og náttúru
á meðan á fundi stendur.
„Flestir nota tækifærið og fara í
lónið á eftir og fá sér jafnvel nudd
áður en gengið er til borðs og borð-
aður kvöldverður,“ segir Heiður
Gunnarsdóttir, sölustjóri hjá Bláa
lóninu. Hún leggur áherslu á að hjá
Bláa lóninu er kjörið að sameina
vinnu og slökun. „Þetta hefur
gengið mjög vel hérna hjá okkur,
og er talsvert vinsælt. Enda sjáum
við sömu hópana koma til okkar
aftur,“ segir Heiður.
Hún segir að auðvelt sé að sameina
sali þannig að hægt sé að taka á
móti allt að 220 manns í sæti en
400 manns í móttöku.
„Allt frá morgunverði upp í kvöld-
verð getur fylgt með, og allt þar á
milli,“ segir Heiður. Hún segir að
talsvert sé um að erlendir hópar
komi og haldi hjá þeim ráðstefnur,
fundi og námskeið og séu þeir þá
sérstaklega að leita að þeim frið og
þeirri ró sem staðurinn býður upp
á. „Þess má geta að Eldborg fékk
menningarverðlaun DV fyrir hönn-
un, enda vel að því komin,“ segir
Heiður. Það eru arkítektarnir Gísli
Sæmundsson og Ragnar Ólafsson
sem eiga heiðurinn að þeirri hönn-
un.
Margir nota tækifærið og fara í lónið og fá nudd eftir fundinn.EIns og sjá má er náttúran rétt utan við gluggann.
Friður til að vinna
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { Liðsheild } ■■■ 9