Fréttablaðið - 19.10.2005, Qupperneq 46
10 ■■■ { Liðsheild } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Á Hereford Steikhús er hægt að taka
við litlum sem stórum hópum í mat
Á heimasíðunni hjá
okkur er hægt að sjá
úrval af hópmat-
seðlum einnig er
hægt að hafa sam-
band og við verðum
við séróskum frá
ykkur.
www.hereford.is Laugavegur 53b S. 511 3350
Mán.-Fim. 18:00-23:30
Föstudaga 18:00-03:00
Laugardaga 11:30-03:00
Sunnudaga 11:30-23:30
Góð aðstaða fyrir afmæli,
árshátíðir og aðrar samkomur.
Lifandi tónlist allar helgar.
Boltinn í beinni.
Kirkjustétt 2-6, Grafarholti S. 567 8197
SPORTBAR
opið:
Draugasetrið
Stokkseyri
S. 483-1202
www.draugasetrid.is
draugasetrid@draugasetrid.is
Sumaropnun á
Draugasetrinu
Pakkatilboð fyrir hópa
Kaffiveitingar í hliðarsal
Hlaðborð um helgar
Alla daga frá
kl. 14:00 - 21:00
Ísland, sækjum það heim!
Vetraropnun:
Um helgar og fyrir hópa
eftir samkomulagi
Stefnt að hámarksárangri
Practical er nýtt þjónustufyrirtæki sem þjónustar önnur fyrirtæki og samtök með því að
skipuleggja ráðstefnur og fundi, hvataferðir og margt fleira.
„Fyrirtæki eru að vakna til vitund-
ar með hvað mannauðurinn skiptir
miklu máli. Við eru mjög vakandi
fyrir nýjungum og leiðum til að
efla mannauðinn hjá fyrirtækjun-
um og fylgjumst með hvað er að
gerast í þeim málum erlendis sem
og hérlendis,“ segir Marín Magnús-
dóttir, eigandi og stofnandi fyrir-
tækisins Practical. Hún er við-
skiptafræðingur að mennt með
áherslu á mannauðsstjórnun og
markaðs- og samskiptafræði. Hún
menntaði sig í Ástralíu og stofnaði
fyrirtækið þegar hún sneri heim úr
námi.
„Hugmyndin er að fyrirtækin
þurfi aðeins að leita á einn stað, þar
sem við þjónustum þau með allan
pakkann þegar kemur að hvataferð-
um, hópefli, starfsdögum, fundum,
atburðaskipulagningu og fleira,“
segir Marín. „Hjá okkur starfar fag-
fólk á ýmsum sviðum og til að
mynda þegar fyrirtækin vilja flétta
markvissu hópefli inn í hvataferðir
eða óvissuferðir, þá veitum við þá
sérfræðiþekkingu sem til þarf
hverju sinni,“ segir Marín.
Hún bætir við að þjónusta
Practical sé mjög víðtæk og séu þau
til dæmis með ferðaskrifstofuleyfi
frá samgönguráðuneytinu, sem
þýðir að hægt sé að fara með hópa
bæði erlendis og innanlands án
þess að kalla þurfi til nýja starfsað-
ila.
„Hvort sem fyrirtækin ætla að
setja saman starfsdag, hvataferð
eða óvissuferð, þá sér Practical um
alla þætti. Við sjáum um rútur, gist-
ingu, veitingar, staðsetningu og allt
það sem til þarf,“ segir Marín.
Mikið er lagt upp úr að sérsníða
hverja ferð að þörfum þess hóps sem
unnið er með hverju sinni, þar sem
þarfir og áherslur eru mismunandi.
„Við teljum það mjög mikilvægt að
vinna náið með viðskiptavininum svo
hann nái ætíð þeim hámarksárangri
sem hann leitar eftir,“ segir Marín.
Marín Kjartansdóttir er eigandi Practial sem veitir fyrirtækjum víðtæka þjónustu og sér
meðal annars um að skipuleggja hvataferðir og starfsdaga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fosshótelin eru tólf talsins og
dreifast víða um landið. Tvö þeirra
eru í Reykjavík en tíu úti á landi. „Á
hverju þeirra er að finna góða
fundaaðstöðu, þar sem tækjabúnað-
ur, ríkulegar veitingar og gisting er
við höndina,“ segir Hrönn Guð-
mundsdóttir, sölu- og markaðsfull-
trúi Fosshótelana. Í nálægð við öll
hótelin er að finna ýmsa afþreyingu
og nýtast hótelin því vel bæði fyrir
fundi og hvataferðir og margt fleira.
Hótelið við Nesbúð stendur til að
mynda við nýja Adrenalíngarðinn
þar sem mikið er að gerast og er
vinsæll staður fyrir hvataferðir.
Hún segir hótelin hafa upp á
margt að bjóða og minnist þá sér-
staklega á Fosshótel í Reykholti sem
opnaði nýverið eftir gagngerar
breytingar. Hótelið tekur mið af
þeirri sögu sem fylgir staðnum og
byggir á þríþættu menningarþema:
Norrænni goðafræði, íslenskum
bókmenntum og klassískri tónlist.
„Í Reykholti er andinn við völd,
og því kjörinn staður til að funda
og leita hugmynda eða vinna að
stefnumótun,“ segir Hrönn og bæt-
ir við að nokkir „brainstorm“-fund-
ir hafi verið haldnir þar upp á
síðkastið og tekist vel til.
„Við leggjum metnað okkar í að
skapa vinalegt og hlýlegt andrúms-
loft, þannig að öllum líði vel,“ seg-
ir Hrönn.
gott ráð }
Mynduð tengsl
Ráðstefnur eru staður til að mynda gott tengslanet. Gefðu þig á tal við
aðra ráðstefnugesti þegar færi gefst og þú skalt skiptast á nafnspjöld-
um. Skrifaðu aftan á nafnspjaldið hvernig manneskjan lítur út og
hvað ykkur fór á milli. Ef þú hittir einhvern sem þú telur gott að eiga
frekari samskipti við, skaltu senda
tölvupóst nokkrum dögum eftir að
ráðstefnunni lýkur. Í tölvupóstin-
um skaltu þakka fyrir síðast og
jafnvel vitna í samtalið. Vertu vin-
samleg/ur, en varastu að vera of
persónuleg/ur. Þar fyrir utan er
gaman að kynnast öðru fólki sem
hefur sama áhugasvið og þú, og
getur það verið þér hvatning í leik
og starfi.
Vinalegt og hlýlegt andrúmsloft
Fosshótelin hafa stækkað og blómstrað síðustu árin og fagna 10 ára afmæli á næsta
ári. Á hverju hóteli er góð fundaðstaða með góðum tækjabúnaði og hvert hótel stend-
ur nálægt spennandi afþreyingu.
Þrumuguðinn Þór stendur stæltur á gangi hótelsins í Reykholti.
Fosshótel í Reykholti opnaði nýverið eftir miklar breytingar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/N
O
R
D
IC
P
H
O
TO
/G
ET
TY
I
M
AG
ES