Fréttablaðið - 19.10.2005, Qupperneq 64
Villuráfandi
sauðir
Flugfarþegar á leið með Flugfé-
lagi Íslands til Akureyrar á
sunnudaginn brá heldur en ekki
í brún þegar skrækróma rödd
tilkynnti um að þeir væru í vit-
lausri vél. Farþegar gengu frá
borði og þrömmuðu að næstu
vél. Þegar þangað var komið
rann upp fyrir mörgum að einn
flugfarþegi bæri einkum ábyrgð
á því að allir höfðu upphaflega
farið í ranga vél. Fremst í vél-
inni sat landsfaðirinn sjálfur,
Halldór Ásgrímsson. Fylgispekt
þjóðarinnar við valdamennina
er brennandi sem aldrei fyrr.
Fimmtudagur
til fjár
Markaðsvirði stærsta sjávarút-
vegsfélags landsins, HB
Granda, lækkaði um 1.500 millj-
ónir króna á fimmtudagsmorgun
vegna mistaka verðbréfamiðl-
ara í KB banka. KB banki, sem
sér um viðskiptavakt á bréfum
Granda og er jafnframt meðal
stærstu hluthafa, setti inn hag-
stæðasta kauptilboð á 8,3 krónur
á hlut og hagstæðasta sölutilboð
á 8,4 þegar í raun og veru hefðu
átt að vera 9,3 krónur á hlut og
9,4. Einhver fjárfestir greip
gæsina og keypti á 8,4 um leið og
markaðurinn opnaði. KB banki
klagaði í Kauphöllina og fór
fram á niðurfellingu viðskipta
en fjárfestirinn barði í borðið,
krafðist þess að viðskiptin
stæðu óhögguð og fékk sínu
fram. Skömmu eftir viðskiptin
var gengi Granda komið í 9,35.
Bilaðir og
óbilaðir vextir
Það að geta spáð rétt fyrir um
gerðir Seðlabankans er verð-
mæt þekking á markaði. Það
skiptir því miklu að rýna í allt
sem getur gefið vísbendingar
um komandi tíð í bankanum.
Þess vegna lúslásu sérfræðing-
arnir ræðu Davíðs Oddssonar á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins.
Það sem vakti sérstkaka atygli
voru ummælin um innleiðingu
Mannréttindasáttmála Evrópu,
þar sem Davíð lét þau orð falla
að mannréttindin væru með
þeim ósköpum að bæði bilaðir og
óbilaður tækju þau sér til varn-
ar. Gildið er sem sagt fyrir alla
og það sama gildir um innlenda
stýrivexti, þeir bitna jafnt á bil-
uðum og óbiluðum. Spurningin
nú er því hvort hugsanlegt sé að
innleiddir verði tvenns konar
stýrivextir aðrir fyrir bilaða og
hinir fyrir óbilaða.
Þyrping hf, Kringlunni 4–12, 103 Reykjavík
594 4200
594 4201
thyrping@thyrping.is
www.thyrping.is
sími
fax
netfang
vefslóð
þróunarfélag property development
N
Skrifstofuhúsnæði að Borgartúni 26 til leigu
hz
et
a
eh
f
Að Borgartúni 26 mun rísa sérhannað 12.000 m2
skrifstofu- og verslunarhúsnæði.
Bílageymslur verða undir húsinu og munu þær
rúma um 200 bíla.
Húsnæðið verður á átta hæðum á þessum
mikla útsýnisstað í hjarta helsta fjármálahverfis
Reykjavíkur. Það verður sérhannað út frá þörfum
leigutaka, með rúmgóðum skrifstofum
í háum gæðaflokki.
Húsnæðið afhendist tilbúið til innréttinga í byrjun
árs 2007.
norður
vestur
suður
austur
4,7 30% 22,2milljarða króna greiðir Bakkavör Group fyrirbreska fyrirtækið Hitchen Foods. Hlutur eins lögaðila í öðrum til þess að þeirteljist skyldir samkvæmt nýjum tillögum aðlögum um verðbréfaviðskipti. milljarða króna hlutabréfavelta íKauphöll Íslands á föstudag.
SÍMANÚMER MARKAÐARINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@markadurinn.is Veffang: visir.is
410 4000 | www.landsbanki.is
B2B | Banki til bókhalds
Betri þjónusta og upplýsingagjöf til viðskiptavina og lánardrottna
Fyrirtækjabanki
B A N K A H Ó L F I Ð