Tíminn - 21.09.1975, Blaðsíða 3

Tíminn - 21.09.1975, Blaðsíða 3
Sunnudagur 21. september 1975. TÍMINN 3 HTJCjtXJR OG HÖND [ RIT HEIMILISIÐNAÐARFÉLAGS ISLANDS 197.5 Saumaðir boltar eftir Sigrúnu Ragnarsdóttur, forsiöumyndin á Hugur og hönd. FALLEGT OG GAGNLEGT TÍMARIT I TIU ÁR hefur Heimilisiðnaðar- félag Islands gefið út rit, sem nefnist Hugur og hönd, og er skemmst af þvi að segja, að það hefur frá upphafi verið eitt af fall- egustu timaritum, sem út koma hérlendis. Mest er þó um vert, að efnið hefur jafnan verið útlitinu samboðið. Þar hefur fomri og nýrri verkmennt verið sómi sýnd- ur, og haldizt i hendur skemmti- legur fróðleikur, uppörvandi leið- sögn og þroskandi forsagnir um form og vinnubrögð, bæði í mæltu máli og með birtingu ágætra mynda. Til þessa rits hefur sem sagt verið vandað i einu og öllu. Tiundi árgangur ritsins er ný- kominn út, og meðal efni þess, sem það flytúr, er grein eftir Huldu Stefánsdóttur um barna- gull og gullastokka i fyrri tið, um baðstofur eftir St. 0. Stefánsson og Guðmund Jósafatsson, þyrla og þyrlagerð og sortalyngslitað skinn eftir Ingibjörgu Tryggva- dóttur, saum á brotnu leirtaui eftir Egil Ólafsson, leiki barna eftir Kristján Eldjárn, heimilis- iðnaðSama, sigurlykkju og sigur- hnút eftir Þórð Tómasson og um Karólinu Guðmundsdóttur vef- konu eftir Hólmfriði Árnadóttur. En auk þessa eru svo greinar og hagnýtar forsagnir um heklaðar ábreiður og gerð þeirra, skirnar- kjóla, hnýtingar, barnaföt, peys- ur og húfur, sessur, bolta og hringi, brúður og sáumuð barna- gull og jurtaliti.'X Allt er ritið prýtt ágætum myndum og teikningum, þar á meðál litmyndum af fatnaði og munum Sama. Timaritinu er ætlað að stuðla að aukinni verkmennt og glæða góð- an smekk. Sjálft ber það vitni um, að hvort tveggja er þeim eigin- legt, er gefa það út. —JH Helgi Bergmann sýnir að Hallveigarstöðum JG RVK Helgi Bergmann, list- málari hefur opnað málverka- sýningu að Hallveigarstöðum i Reykjavik. Er þetta 14. einkasýn- ing Helga i Reykjavik. Helgi Bergmann, sem er 67 ára að aldri sýnir þarna 30 verk, 20 oliumálverk og 10 myndir mál- aðar með þekjulitum. Sýningin verður opin frá kl. 14—22 daglega til næstu helgar. Þó er hún aðeins opin frá kl. 18—22 á mánudag og þriðjudag vegna annarra nota af hUsinu. Hinir margeftirspurðu KLH-HÁTALARAR eru komnir VERÐ FRÁ KR. 15.900 Frábær tóngæði FIMM ÁRA ÁBYRGÐ <@i KARNABÆR HLJÓMTÆKJAVERZLUN Laugavegi 66 - Sími 2-81-55 X

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.