Tíminn - 21.09.1975, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
Sunnudagur 21. september 1975.
aó vetri til
Ef þér eigið leið til höfuðborgarinnar, i verslunarerindum,
í leit að hvíld eða tilbreytingu, þá býður Hótel Esja gott
tækifæri til þessara hluta. Gisting á Hótel Esju er ekki
munaður, heldur miklu fremur sjálfsögð ráðstöfun. Hótel
Esja er i allra leið. Strætisvagnaferðir í miðbæinn á 10
mínútna fresti, svo að segja frá hóteldyrunum. Opinberar
stofnanir, sundlaugarnar og íþróttahöllin i Laugardal,
skemmtistaðir og verslanir eru i nágrenninu, og síðast en
ekki sist: Við bjóðum vildarkjör að vetri til.
Velkomin á Hótel Esju
H
Suðurlandsbraut 2, Sími 82200.
Stöðvarhúsib „llótel Saga”einsog einhver nefndi það, verður Hklega fokhelt f haust, svo innréttingar
geti hafist f vetur. Húsinu var valinn staður með jarðfræðilegum athugunum, því undirstöður verða að
vera góðar undir túrbinur, og annan vélbúnað, sem keyptur var frá Japan.
ra-
hlutir
Notaðir
varahlutir
í flestar gerðir eldri bíla
Yfir vetrarmánuðina er Bílapartasalan 1
opin frá kl. 1-6 eftir hádegi. \
Upplýsingar í síma 11397 frá kl. 9-10
fyrir hádegi og 1-6 eftir hádegi
BILAPARTASALAN
Höfðatúni 10, simi 11397.
Opið frá kl. 9—7 alla virka daga og 9—5 laugardaga.
~i i'jc:» i"»' T~'i i i ztjczx
Burstar, lyftir, „touperar’
bylgjar, leggur, sléttir og
þurrkar hér þitt —
FLJÓTT OG VEL
Lady
Braun
HÁRGREIÐSLUSETTIÐ
Verð um
kr. 8.350
BRAUN-UMBOÐIÐ:
Sími sölumanns er 1-87-85
Raftækjaverzlun íslands h.f.
Ægisgötu 7 — Reykjavík — Símar 1-79-75/76
þær boranir hefjast i ágústmán-
uöi. Augljóst var, að bið yrði á
niðurstöðum rannsókna, sem er
þó sú undirstaða, sem byggja
verður hönnun virkjunarinnar á
og gæti þetta atriði þvi seinkað
öllum undirbúningi nefndarinnar.
Eitt af fyrstu verkunum var þvi
aö reyna að koma þvi til leiðar, að
gufuborinn yrði sendur strax
norður og látinn bora 2 vinnslu-
holur, sem þóttu öruggari til
rannsókna en tilraunaholur, auk
þess sem það gæti flýtt þvi, að
nægilega margar nothæfar
i vinnsluholur yrðu tilbúnar á rétt-
um tima. Ekki fékk nefndin næg-
ar undirtektir um þessa málaleit-
un og má þar mest um kenna
mikilli eftirspurn eftir gufuborn-
um svo og ti'ma, sem þótti of
naumur, þarsem nokkuð var liðið
| á sumarið og veður talin ótrygg á
i Kröflusvæðinu eftir að fer að
hausta.
Þessi athugun Kröflunefndar
leiddi i ljós geigvænlegt ástand i
bormálum okkar, og var fjár-
skorti um kennt. Aðeins einn stór-
virkur bor var til i landinu og næg
verkefni fyrir hann i mörg ár, þó
, að Krafla hefði ekki komið til. Að
vfsu var búið að bjóða út stórvirk*
an gufubor, en áætlað var, að af-
greiðslutimi slíkra bora væri um
2 ár. Var þvi augljóst, að engan
veginn væri séð fyrir um boranir
vinnsluhola við Kröflu og þvi
beitti nefndin öllum ráðum til
•: þess að hafa áhrif á það, að strax
yrði keyptur stórvirkur bor, hvort
sem væri nýr eða notaður. Eins
og kunnugt er veitti rikisstjómin
Orkustofnun heimild til að kaupa
notaðan* stórvirkan bor i Banda-
rikjunum i desember 1974 og er
hann nú kominn til landsins. Þaö
er skoðun min, að ákveðin ábend-
; ing Kröflunefndar hafi m.a. átt
þáttiþvi,aðsvofljótt var brugðið
við um kaup á þessum bor. Ætti
nú að vera mun auðveldar að
sinna þeim borverkefnum, sem
fyrir liggja og er engin ástæða til
svartsýni um borframkvæmdir á
Kröflusvæðinu.
Vinna ráðgjafanna
hafin
A meðan samningar stóðu yfir
AisgfýsicT i Timanum
við ráðgjafafyrirtækin var rætt
um hugsanlegan stytzta bygging-
atima virkjunarinnar og töldu
ráðgjafarnir, að ljúka mætti
framkvæmdum og koma aflsstöð-
inni i notkun i september 1978, ef
miðaðværi við, að skýrsla Orku-
stofnunar um rannsóknir á
Kröflusvæðinu liærist 1. febrúar
1975, að almennt útboð véla færi
fram og afgreiðslutimi túrbinu-
rafal samstæðna væri 24 mánuðir
eins og útlit var fyrir.
Strax og samið hafði verið við
ráðgjafana var kannað hvernig
standa mætti að útboði þeirra
véla, sem lengstur afgreiðslutimi
var á til þess að komast sem fyrst
að raunverulegum afgreiðslu-
tima svo að hægt væri að sjá
stytztan mögulegan bygginga-
tima aflsstöðvarinnár. Vitað var
hvaða túrbinuframleiðendur hafa
reynslu I smiði gufutúrbina fyrir
jarðgufu, en þeir eru ekki margir,
og þvi var ákveðið að senda þeim
fáu, sem til greina komu, tiltæk
gögn strax og biðja þá um tilboð i
túrbinu-rafal samstæður og siðan
að kanna, hvort á grundvelli
þeirra tilboða, sem bærust, væri
hægt að semja um kaup á sam-
stæöunum. í útboðinu var gerður
fyrirvari um það, að túrbinu-rafal
samstæðurnar yrðu boðnar út á
almennum markaði, ef ekki
fengjust aðgengileg tilboð á þenn-
an hátt.
Vélbúnaður fenginn
i Kröflu
Annað atriði, sem áhyggjum
olli i byrjun, var langur af-
greiðslutimi véla, og var þvi á-
kveðið að reyna sem fyrst að fá
öruggar upplýsingar um hann og
athuga siðan hvernig helzt mætti
bregðast við honum. Til þess að
þetta væri hægt þurfti að ráða
ráðgjafaverkfræðinga til að
hanna aflsstöðina og gera lýsingu
á vélum og búnaði. Kröflunefnd
var sammála um það, að fela is-
lenzkum sérfræðingum sem mest
af hönnunarstörfunum, en aug-
ljóst var að leita þurfti aðstoðar
erlendra sérfræðinga, einkum
hvað vélbúnað varðar, vegna lit-
illar reynslu hér á þvi sviði.
Reynt var að fá tvö stærstu verk-
fræðifyrirtæki hér á landi til að
vinna að hönnun i sameiningu, en
þvi miður tókst ekki samstarf
með þeim. Þvf var’ ákveðið að
taka upp samninga um hönnunina
við Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen sf. og Rogers Engi-
neering Co., Inc. i San Francisco,
sem hafði reynslu i jarðgufu-
virkjunum, og var undirritaður
samningur við þessa aðila 21.
nóvember 1974. Mér er óhætt að
segja, að samvinna þessara ráð-
gjafa hefur verið með ágætum, og
hafa þeir unnið ákaflega vel fyrir
nefndina og staðið við áætlun um
vinnu ákveðinna verkþátta fyrir
tilskilinn tim'a, enda þótt tima-
mörk nefndarinnar hafi oft verið
ákaflega ströng og ytri aðstæður
til hönnunar oft allt annað en á-
kjósanlegar.
Rétt er að geta þess, að ráð-
gjafarnir voru ekki alveg sam-
mála Kröflunefndarmönnum um
aö fara þessa leið með útboð, en
það var ákveðin skoðun nefndar-
manna að reyna til þrautar að
vinna einhvern ti'ma með þvi að
komast hjá almennu útboði og þvi
féllust ráðgjafarnir á okkar óskir.
Samið um vélakaup
frá Japan
Eins og áður segir var erfið að-
staða um útboð svo snemma, þar
sem niðurstöður rannsókna á
Kröflusvæðinu lágu ekki fyrir, en
hins vegar lágu fyrir þekktar að-
stæður á Námafjallssvæðinu.
Starfsmenn Orkustofnunar töldu
liklegt, að svipaðar aðstæður
væru á Kröflusvæðinu og því voru
framleiðendum sendar upplýs-
ingar um aðstæður á Námafjalla-
svæðinu með fyrirvara um ein-
hverjar breytingar, þegar niður-
stööur rannsókna af Kröflusvæð-
inu lægju fyrir. Útboðsgögn voru
send út i byrjun desember 1974 til
7 þekktra framleiðenda og siðar
til 3 framleiðenda, sem sérstak-
lega óskuðu eftir að bjóða. Til-
boðsfrestur var veittur til 15.
janúar 1975 og bárust þá 5 tilboð
frá framleiðendum, sem flestir
höfðu reynslu á sviðí jarðgufu.
Eftir ýtarlegan samanburð á þess
um tilboðum bæði með tilliti til
verðs og afgreiðslutima svo og
Verktakar hafa reist þessa verkstæðisbyggingu viö Kröflu. tbúðarhús, eða braggar eru yfir 150 manns.