Tíminn - 21.09.1975, Blaðsíða 27
Sunnudagur 21. september 1975.
==-----==Umsjón: Sigmundur ó. Steinarsson
7
OPUKEPPNI
Keflvikinga eftir hornspyrnu Jón
fékk knöttinn og smeygði sér
fram hjá varnarmönnum Feren-
cvaros og sfðan lék hann á mark-
vörð Ungverjanna og sendi knött-
inn i netið, við geysilegan fögnuð
hinna 30 þús. áhorfenda, sem sáu
leikinn.
MARTIN PETERS....hinn heims-
frægi leikmaður EnglandsWEst
Ham, Tottenham og nú Norwich,
sést hér (10) skora mark með
skalla fyrir Tottenham gegn
Keflavik á Laugardalsvellinum.
11 þús. áhorfendur sáu leikinn.
SKORAÐI
FYRSTA
MARKIÐ
— fyrir Kefivíkinga í Evrópukeppni
RÚNR J ÚLIUSSON varð fyrstur til að skora mark fyrir Keflvikinga
i Evrópukeppni. Rúnar skoraði markið á Laugardalsvellinum, þegar
Keflvikingar léku gegn ungverska meistaraliðinu Eerencvaros 1965.
Rúnar lék þá skemmtilega á einn varnarmanna Ungverjanna og
skaut föstu lágskoti að marki — knötturinn skall i stöng og þaðan i
netið.
Siðan Rúnar vann þetta afrek, hafa Keflvikingar skorað 6 mörk til
viðbótar. Friðrik Ragnarsson (2) gegn Everton, Jón Jóhannsson —
,,Marka-Jón” gegn Ferencvaros, Ólafur Júliusson gegn Tottenham,
Hjörtur Zakariasson gegn Hibs og Steinar Jóhannsson gegn Hadjuk
Split. Nú er það bara spurningin, hver skorar mark gegn Dundee
United, þegar Keflvikingar leika gegn þessu þekkta skozka liði á
grasvellinum i Keflavik á þriðjudaginn.
Frá Búdapest lá siðan leið
Keflavikurliðsins til Liverpool i
Englandi, þar sem liðið lék
(1970) á Goodison Park, gegn
Everton i Evrópukeppni meist-
meistaraliða Keflvikingar vöktu
geysilega athygli þar, þar sem
þeir náðu forystu 1-0 með marki
frá Friðrik Ragnarssyni sem
sendi knöttinn i markið hjá
Everton eftir aðeins 11 minútur.
Og héldu Keflvikingar siðan þess-
ari forystu i hálftima gegn
meisturunum Everton. Adam var
ekki lengi i Paradis. Alan Ball
jafnaði fyrir Everton, sem vann
siðan sigur (6-2) eftir mikinn
barning. Friðrik skoraði bæði
mörk Keflvikinga i leiknum.
Ensk blöð eyddu miklu rúmi til
að segja frá leiknum, sem var
sjónvarpað um allt England, sem
Match of Midweek”. Keflvikingar
vöktu geysilega athygli i leiknum
gegn Everton, sem hafði leik-
menn innanborðs eins og Alan
Ball (nú Arsenal), Howard
Kendall (nú fyrirliði Birming-
ham) og Joe Royle (nú Manchest-
er City). Þessar stjörnur féllu al-
gjörlega i skuggann, þar sem
ensku blöðin áttu varla orð tíl að
lýsa hrifningu sinni á Þorsteini
ólafssyni i markinu, en mark-
varzla hans var stórkostleg á
GoodisonPark — hann var maður
leiksins og áhorfendur, sem voru
liðlega 28 þús. talsins, klöppuðu
honum hvað eftir annað lof I lófa,
eftir að hann hafði stokkið eins og
köttur milli stanganna og gómað
knöttinn. Siðari leiknum, sem
háður var á Laugardalsvellinum,
lyktaði einnig með sigri Everton
(3:0).
Næstu mótherjar Keflvildnga i
Evrópukeppninni — UEFA-
bikarkeppninni 1971 — voru ekki
af lakari endanum, sjálft stjörnu-
lið frá Lundúnum, Tottenham,
sem hafði landsliðsmenn i hverju
rúmi. Knattspyrnukappa eins og
Pat Jennings (N.-lrland), Joe
Kinnear (Irland), Cyril Knowles
(England), Phil Peal (England),
Ralph Coates (England), Steve
Perryman, Martin Chivers (Eng-
RÚNAR JÚLÍUSSON....skoraöi gegn Ferencvaros.
RÚNAR
ALAN BALL....sést (lengst t.v.) skora jöfnunarmark (1:1) Everton I hinum fræga leik Keflvfkinga og Everton á Goodison Park i Liverpool.
land), Alan Gilzean (Skotland) og
Martin Peters (England).
11 þús. áhorfendur lögðu leið
sina I Laugardal til að sjá þessa
snillinga leika listir sinar gegn
Keflvikingum — og áhorfendur
fengu að sjá, að það er mikill
munur á áhugamannaliði frá litl-
um fiskibæ á norðurhjara verald-
ar og á atvinnumannaliði frá
stórborginni London. Tottenham-
liðið vann öruggan sigur (6:1) á
Laugardalsvellinum og siðan
(9:0) á White Hart Lane i London.
ólafur Júliusson skoraði mark
Keflavíkurliðsins gegn Totten-
ham meðþrumuskoti frá vitateig,
sem Jenningsátti ekki möguleika
á að verja. Til gamans má geta
þess, að Tottenham bar sigur úr
býtum I UEFA-bikarkeppninni —
en Keflvikingar voru fyrsta
hindrun Tottenham i keppninni.
Keflvikingar duttu aftur i
lukkupottinn i Evrópukeppninni
(meistaraliða) 1972, en þá dróg-
ust þeir gegn hinu heimsfræga
spánska liði, Real Madrid. Kefl-
vikingar mættu ' þessu fræga
liði á hinum kunna leikvelli liðs-
ins, Esta do Sandiago Bernabeu i
Madrid og lauk þeim leik með
sigri Real Madrid, 3:0. Þorsteinn
ólafssonátti enn einn stórleikinn
IMadrid — varði stórkostlega. Þá
léku aðrir leikmenn liðsins mjög
vel, með öðrum orðum, þeir
sluppu lifandi úr ljónagryfjunni I
Madrid. Þar voru þeir ekki búnir
að segja sitt siðasta orð, þvi að
þeir voru nær búnir að trygg ja sér
jafntefli (0:0) gegn Real Madrid á
Laugardalsvellinum. En sú von
brást á siðustu stundu, þar sem
Real Madrid tryggði sér sigur
með þvi að skora sigurmark- (1:9)
úr siðustu spyrnu leiksins.
Keflvikingar náðu einnig góð-
um árangri i UEFA-bikarkeppni
Evrópu 1973, þegar þeir mættu
skozka liðinu Hibernian. Fyrri
leikurinn fór fram á Easter Road
i Edinborg og átti Þorsteinn
ólafssonþar enn einn stórleikinn.
Hann þurfti aðeins tvisvar sinn-
um að hirða knöttinn úr netinu
hjá sér. Keflvikingar voru nálægt
sigri á Laugardalsvellinum i sið-
ari leiknum — þar náði Hjörtur
Zakariasson forystu (1:0) með
þvi að skalla knöttinn i netið hjá
Hibs. En Skotarnir náðu að
tryggja sér jafntefli (1:1) f siðari
hálfleiknum.
Arið 1974 léku Keflvikingar vo
við hið fræga lið Hadjuk Split frá
Júgóslaviu.
Fóru báðir leikir fram i Split og
lauk fyrri leiknum með sigri
Hadjuk 7:1, og skoraði Steinar
Jóhannsson mark Keflvikinga.
Siðari leikurinn var mun -jafnari
og lauk með sigri Hadjuk, 2:0.
Nú eru Keflvikingar aftur á
ferðinni i Evrópukeppninni —
UEFA-bikarkeppninni — og eru
mótherjar þeirra nú skozka liðið
Dundee United.