Tíminn - 21.09.1975, Blaðsíða 40
1 '
Suiinudagur 21. september 1975.
■-
SÍM113234
tíERRA
^GARÐURINN
A'ÐALSTRfETI 3
SÍS-FÓmJR
SUNDAHÖFN
fyrirgódan mai
^ KJÖTÍÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
BYGGING HEILSU-
GÆZLUSTÖÐVAR
OG SJÚKRAHÚSS
Á ÍSAFIRÐI HAFIN
GS-lsafirði. — Sl. föstudag var
tekin fyrsta skóflustungan að
Heilsugæzlustöð og sjúkrahúsi
hcr á Isafirði. Heilbrigðismála-
ráðherra, Matthias Bjarnason,
tók fyrstu skóflustunguna. Aaage
Steinsson, rafveitustjóri, for-
maður bygginganefndar, rakti
tildrögin að byggingunni en
heilsugæzlustöðin kemur til með
að þjóna tsafirðiog Suðureyri, en
sjúkrahúsið að nokkru Þingeyri
og Flateyri, auk Súðavikur og
hreppanna inni í Djúpi.
Þessi nýja bygging stendur á
nýrri uppfyllingu á Torfunefsbug,
sem fyllt var fyrir tveimurárum.
Hönnuður byggingarinnar er Jes
Einar Þorsteinsson, og hefur
hann notið til þess verks aðstoðar
fjölmargra sérfræðinga.
Viðstaddir athöfnina voru, auk
þeirra, sem áður er getið,
sveitarstjórar viðkomandi
sveitarfélga, þingmenn
kjördæmisins og fleiri, og var
viðstöddum boðið til kaffidrykkju
að athöfninni lokinni.
Myndin til vinstri sýnir
heilbrigðismálaráðherra, taka
fyrstu skóflustunguna og hér til
hægri sjást viðstaddir. Tima-
myndir G.S.
K.Sn.-Flateyri. Práttarvél var ekiö út af brúnni
við Sólvelli á miðvikudag. ökumaður hafði litið
um öxl til að fylgjast með múgavél, sem var aft-
an i dráttarvélinni, en gætti þess ekki að hann
lagði á stýrið um leið. Práttarvélin stöðvaðist
svo i vegarkantinum eins og myndin sýnir, en
kanturinn er snarbrattur og 8—10 metrar niður á
jafnsléttu. ökumaðurinn slapp með skrekkinn.
Timamynd: K.Sn.
9K
I göngum á
Göngur og
réttir
M.Ó. Sveinsstöðum. t gær og
fyrradag var réttað i Vatns-
dalsrétt, Víöidalsrétt og
Auðkúlurétt.
Af Grimstunguheiði kom
safnið til byggða seint á
fimmtudagskvöld og var það
stærra cn nokkru sinni fyrr
— vart undir 10 þúsund fjár.
A heiðinni skiptust á skin og
skúrir leitardagana og á
Stórasandi var snjókoma —
og var ekkert hægt að leita
þar. Búast má við að margt
fé sé eftir á afréttunum og
verður mönnum þvi örugg-
lega fjölgað I seinni göngum.
Gamla spari-
sjóðshúsið ó
Akranesi rifið
SJ-Reykjavfk— í gærmorgun var
hafizt handa um að rifa niður
gamla bankann á Akranesi, sem
stóð við Skólabraut og Akratorg.
Lokið var við smiði nýs banka-
húss fyrir nokkrum árum og
stóðu húsin hlið við hlið og þröngt
á milli. Notaður var stórvirkur
krani og lóð til að brjóta niður
veggina, sem voru úr hlöðnum
steini. Áætlað var að ljúka verk-
inu á laugardag.
Tvö um-
ferðarslys
SJ-Reykjavík. Undir tólf á föstu-
dagskvöld varð umferðarslys á
Bústaðavegi. Volkswagenbifreið
var ekið austur Bústaðaveg, að
þvi er ökumaður taldi siðar ekki á
meira en 60 km hraða. Á undan
fór ungur piltur á léttu bifhjóli,
skellinöðru. ökumaður telur pilt-
inn hafa sveiflast til á götunni.
Kræktist hann i bilinn og dróst
með honum út á vegarbrúnina,
þar sem bifreiðin rakst á steyptan
kant. Skipti það engum togum að
bifreiðin valt og lenti á þakinu
fyrir utan götuna. Þrir menn voru
i bilnum og sluppu þeir ómeiddir.
Pilturinn hlaut meiðsli en var
furðu hress, hugsanlegt var talið
að hann hefði fótbrotnað.
Fyrr um kvöldið varð harður
árekstur á Grensásvegi milli
Austin Mini, sem ekið var norður
götuna og Volvo, sem var á leið
suður og beygði i átt að Skeifunni.
Kona og telpa, sem voru i Mini-
inum, méiddust, en ekki alvar-
lega.