Tíminn - 21.09.1975, Blaðsíða 24

Tíminn - 21.09.1975, Blaðsíða 24
24 TÍMTNN LÖ GREGL UHA TARINN 21 Ed McBaÍn Þýðandi Haraldur Blöndal - — ^ — Það var heldur betur hrollvekjandi kvikmynd, sagði Kling. — Ég var með hjartað í buxunum, þegar ég sá mynd- ina, og það var þó i sjónvarpinu, sagði Cindy. — Varstu með hjartað í buxunum í sjónvarpinu? Frammi fyrir fjörutíu milljónum manna, sagði Kling. — Nei. Ég sá Frankensteinmyndina í sjónvarpinu, sagði Cindy kímin og danglaði í hann. — Ég vona bara að þetta sé ekki Heyrnarsljói maður- inn, sagði Kling. Þetta var í fyrsta sinn sem nokkur maður í lögreglu- sveitinni lét uppi þann möguleika, að morðingi lögreglu- fulltrúans væri sá hinn sami og olli þeim svo mikum vandræðum fáeinum árum fyrr. Það var ekki laust við að þessi tilhugsun hefði lamandi áhrif á mannskapinn. Bert Kling var ungur maður, og alls ekki sérlega heim- spekilega sinnaður. En honum skildist, að heyrnarsljói maðurinn gat áætlað líkur með nákvæmni tölvunnar. Hann gat valdið ótta og upplausn og haft svo rækilega endaskipti á öllum hlutum, að af þvi leiddi rugling og jaf nvægisleysi í fastmótuðu og stíf u skriff innakerf i lög- reglunnar. Þá varð lögreglan gjarna eins og Keystone lögreglan í þöglu myndunum gömlu. Eitt sinn undirritaði Heyrnarsljói maðurinn tilkynnintu frá sér með orðun um L. Sordo. Fyndið í meira lagi. El Sordo þýðir sá Heyrnarlausi, á spænsku. Kling vissi það ósjálfrátt og fyrir víst, að reyndist morðingi lögreglufulltrúans vera Heyrnarsljói maður- inn, þá var þetta mál alls ekki úr sögunni. Kling treysti sér alls ekki til að hugsa þá hugsun til enda, hvað Heyrnarsljói maðurinn kynni að gera og ætlaði að gera. Ösjálfrátt fór um hann kuldahrollur, og Kling vissi, að þar var kuldinn ekki að verki. — Ég vona að þetta sé ekki hann, sagði Kling. Vindur- inn þeytti burt orðum hans. — Kysstu mig, sagði Cindy skyndilega. — Gefðu mér svo heitt súkkulaði, nízkunösin þín. XXX upp yf ir höf uð sér og hafði reimað hana þétt um hnakk- ann. Samt sem áður var hettan allt of stór og rann sífellt af honum. Hann bisaði við að ýta henni yfir höfuð sér, í sama mund og hann gekk inn á lögreglustöðina. Hann strauk úr nef inu á sér með hinni hendinni, sem hann not- aði einnig við að halda á umslagi. Enn einu sinni strauk hann úr nef inu á sér, leit svo á Murchison varðstjóra og sagði: — Ert þú varðstjórinn hérna? — Já, svaraði Murchison, án þess að líta upp úr skjala- bunkanum, sem hann var að vinna við. Klukkan var tólf á hádegi. Eftir rúmlega eina og hálfa klukkustund yrðu vaktaskipti. Einkennisklæddir lögregluþjónar streymdu á stöðina og nafnakall færi fram á ný.Ennnýjar skýrslur að útfylla og ganga frá. Sannkölluð vitieysisvinna. Murchison fannst, að hann hefði átt að verða slökkviliðs- maður eða póstberi. — Ég átti að láta þig fá þetta, sagði strákurinn og teygði fram höndina í átt að Murchison til að rétta hon- um lokað umslagið. — Þakka þér fyrir góði, sagði Murchison og tók við umslaginu, án þess að líta á drenginn. Svo leit hann snögglega upp og sagði: — Biddu við. — Hvers vegna? Hvað er að? — Vertu kyrr þarna eitt andartak, sagði Murchison og opnaði umslagið. Hann braut sundur eina hvíta pappírs- örk, sem var snyrtilega brotin saman í þrjá jafna parta. Hann las það sem stóð á blaðinu, og leit svo aftur á strák- inn og sagði: '— Hvar fékkstu þetta? — Hérna fyrir utan. — Hvar fyrir utan? — Það var einhver náungi, sem lét mig fá þetta. — Hvaða náungi? — Stór náungi, hérna fyrir utan. — Hvar fyrir utan? — Rétt hjá skrúðgarðinum, Hinum megin við götuna. — Lét hann þig fá þetta? — Já. Pilturinn, sem kom inn í liðskönnunarherbergið síð- — Hvað sagði hann? degis þennan sama miðvikudag, var um það bil tólf ára — Hann sagði mér að fara með umslagið hingað og fá gamall. Hann var í af lóga skíðagalla af eldri bróður sín- það varðstjóranum. um. Gallinn var blálitur, og að minnsta kosti þremur — Þekkir þú þennan náunga? númerum of stór á hann. Hann var með hettuna dregna — Nei. Hann gaf mér f imm dollara fyrir þetta. En hvað Jjieð Rauðh»fctu stóm þá,? ~ >■ •Þú ert of stór . fýrir §vqleiðis ^^^sögii. Viltu lesa " \ ^ Rauðhettu litlu fyrir mig? T Sunnudagur 21. septembcr 1975. SUNNUDAGUR 21. september. 8.00 Morgunandakt. Hr. Sig- urbjörn Einarsson biskup flytur ritningarorö og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög. 9.00 Fréttir. Útdráttur úr for- ustugreinum dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar. (10.10 Veðurfregnir). a. Tilbrigði eftir Bach um sálmalagið „Af himnum ofan hér kom ég”. Michel Chapuis leikur á orgel. b. Konsert i C-dúr fyrir fiðlu, pianó, selló og hljómsveit eftir Beethoven. David Oistrakh, Mastislav Rostropovitsj, Svjatoslav Richter og Filharmóniu- sveit Berlinar l§ika, Her- bert von Karajan stj. c. Pianósónata i A-dúr eftir Schubert. Wilhelm Kempff leikur. 11.00 Messa i Háteigskirkju. Prestur: Séra Arngrimur Jónsson. Organleikari: Martin Hunger. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.20 Minir dagar og annarra. Einar Kristjánsson frá Hermundarfelli spjallar við hlustendur. 13.40 Harmonikuiög Frankie Yankovic leikur. 14.00 Staldrað við á Patreks- firði — sjötti og siðasti þátt- ur. Jónas Jónasson litast um og spjallar við fólk. 15.00 Miðdegistónleikar: Frá útvarpinu i Stuttgart. Kammerhljómsveitin i Wurtemberg leikur, Jörg Faerber stjórnar. a. Sinfónia i g-moll eftir Vanhal. b. Konsert i C-dUr (K 190) fyrir tvær einleiks- fiðlur, óbó, selló og hljóm- sveit eftir Mozart. c. Kon- sert i D-dúr fyrir þrjár einleiksfiðlur og strengja- sveiteftir Bach. d. Sinfónia i D-dúr (K 181) eftir Mozart. 16.15 Veðurfregnir. Fréttir. 16.25 Ailtaf á sunnudögum. Svavar Gests kynnir lög af hljómplötum. 17.15 Barnatimi: Kristin Unn- steinsdóttir og Ragnhildur Helgadóttir stjórna. Flutt verður dagskrá um Astrid Lindgren. Meðal annars les Þorleifur Hauksson smá- söguna „Linditréð” i þýð- ingu Áslaugar Árnadóttur og Skeggi Ásbjarnarson les Ur þýðingu sinni á „Karli Blómkvist”. 18.00 Stundarkorn með Kjell Bækkelund. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 Úr handraðanum. Sverr- ir Kjartansson annast þátt- inn. 20.00 tslensk tónlist. Sinfóniu- hljómsveit Islands leikur, Páll P. Pálsson stjórnar. a. Forleikur að óperunni „Sig- urði Fáfnisbana” eftir Sig- urð Þórðarson. b. „Ég bið að heilsa ”, balletttónlist eft- ir Karl O. Runólfsson. 20.30 Skáld við ritstjórn. Þætt- ir um blaðamennsku Einars Hjörleifssonar, Gests Páls- sonar og Jóns Ólafssonar i Winnipeg. — Fyrsti þáttur. Sveinn Skorri Höskuldsson tók saman. Lesarar með honum: Óskar Halldórsson og Þorleifur Hauksson. 21.15 Kvöldtónleikar. a. Arthur Balsam leikur Pianósónötu nr. 38 i Es-dUr eftir Haydn. b. Barry Tuck- well og St. Martin-in-the Fields hljómsveitin leika Hornkonsert i e-moll eftir Weber, Neville Marriner stjórnar. 21.45 „Eva f rökkrinu’’, smá- saga eftir Shirley Jacksón. Ásmundur Jónsson þýddi. Margrét Helga Jóhanns- dóttir leikkona les. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög. Heiðar Astvalds- son velur og kynnir lögin. 23.25 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.