Tíminn - 21.09.1975, Síða 7
SunnudaRur 21. september 1975.
TÍMINN
7
Danska listakonan
GORAA HOLTEN
sýnir í Bogasal
JG RVK— Danska lista-
konan Gorm Holten opn-
ar um þessar mundir
málverkasýningu i
Bogasal Þjóðminja-
safnsins, en sýningin er
að tilhlutan Dansk — is-
lenzka menningarsjóðs-
ins.
Listakonan er surreal-
isti, og er meðal annars
þekkt fyrir bókaskreyt-
ingar sinar, og þá eink-
um og sér i lagi skreyt-
ingar á bókum eftir eig-
inmann sinn, sem er
Knud Holten, sem kunn-
ur er hér á landi fyrir
bækur sinar, barnabæk-
ur og visindaskáldsögur.
Jóhann Hjálmarsson, skáld
kynnti listakonuna Tyrir blaða-
mönnum, en hann ritar einnig i
sýningarskrá á þessa leið:
„Rigge Gorm Holten færir
okkur myndir úr kynjaskógi þar
sem menn, dýr og hlutir lifa ein-
kennilegu, draumkenndu lifi. En
þetta lif er ekki tómur hugarburð-
ur. Það á sér rætur i' veruleik,
sem er umhverfis okkur, en
speglar þó einkum dul, töfra og
ævintýri. Heimur þessara mynda
er ekki ógnvænlegur eins og hjá
mörgum listamönnum, sem taka
mið af súrrealisma. Myndirnar
lýsa mikilli hamingju og lifsgleði.
f þeim er allt heillandi, fallegt.
Andrúmsloft myndanna vitnar oft
um holdlegar kenndir, en einkum
takmarkalaust samlyndi alls,
sem lifsanda dregur.
Á okkar timum er óvenjulegt að
kynnast list af þessu tagi. Firr-
ingin, nútimamaðurinn án tak-
marks og tilgangs eru áberandi
viðfangsefni listamanna. En þau
ein segja ekki allt um lif okkar.
Rigge Gorm Holten er dönsk,
fædd 1943. Hún hefur haldið
einkasýningar i Kaupmannahöfn
og Holbæk, á Jótlandi og Fjóni,
tekið þátt i vorsýningum lista-
fnanna i Charlottenborg og haust-
sýningum Den Frie. Hún hefur
gert bókakápur og myndskreytt
margarbækurmannssins, Knuds
Holten.”
Aðeins fjórar myndir eru til
sölu, aðrar eru i einkaeign og
verða ekki seldar.
Sýningunni lýkur um næstu
helgi — JG
Carmina Burana og Sdlumessa Verdis á
vetrarskrd Söngsveitarinnar Fílharmóníu
Vetrarstarf Söngsveitarinnar
Filharmóniu er nú að hefjast.
Eins og undanfarin ár verða æfð
kórverk til flutnings með
Sinfóniuhljómsveit fslands.
Fyrsta verkefni vetrarins verður
Carmina Burana eftir Carl Orff,
og verður verkið flutt i Háskóla-
biói 11. desember n.k. Carmina
Burana, sem samið er 1936,
öðlaðist skjótt mikla hylli tón-
listarunnenda. Var það fyrsta
verkið, sem Söngsveitin tók til
flutnings, og var það flutt i fyrsta
sinn hérlendis i' Þjóðleikhúsinu i
april 1960 undir stjórn dr. Róberts
A. Ottóssonar. Auk Söngsveitar-
innar tóku Þjóðleikhúskórinn,
einsöngvarar og Sinfóniuhljóm-
sveit fslands þátt i flutningi
verksins.
Siðari hluta vetrar verður æfð
Sálumessa (Reqiuem) eftir Verdi
til flutnings með Sinfóniuhljóm-
sveitinni i april 1976. Þetta verk
var frumflutt hérlendis af sömu
flytjendum 4. april 1968 undir
stjórn dr. Róberts, eins og mörg-
um mun enn i fersku minni.
Jón Asgeirsson tónskáld hefur
verið ráðinn kórstjóri Söng-
sveitarinnar, en aðalstjórnandi
Sinfóniuhljómsveitar fslands,
Karsten Andersen, mun stjórna
flutningi beggja verkanna.
Söngsveitin mun starfrækja
kórskóla fyrir þá sem hafa áhuga
á að gerast félagar. Jón Ásgeirs-
son mun annast forstöðu skólans,
en aðrir kennarar verða Sigur-
veig Hjaltested og Snæbjörg Snæ-
bjarnardóttir og e.t.v. fleiri.
Kennd verða undirstöðuatriði
nótnalestrar, tónheyrn og radd-
beiting. Þá mun kórskólinn einnig
gefa kórfélögum kost á raddþjálf-
un og tónfræðslu.
NÚ FARA ALLIR MEÐ SUNNU TIL KANARÍEYJA
Sunnuferðir eru ekki dýrari en aðrar Kanaríeyjaferðir þrátt fyrir
beint dagflug með stórum glæsilegum Boeing þotum. Flugtiminn
er aðeins 5 klukkustundir. Dagflug á laugardögum. Sunna býður
farþegum síiium hótel og íbúðir á vinsælustu baðströndinni, Playa
del Ingles.
Þar er loftslag og hitastig hið ákjósanlegasta yf ir vetrarmánuðina,
þegar skammdegið og rysjótt veðrátta er sem mest hjá okkur.
Farþegar Sunnu eiga kost á að velja á milli bestu hótelanna, íbúð-
anna og smáhýsanna (bungalows) sem Sunna hefur á Kanaríeyj-
um. Eigin skrifstofa Sunnu, með þjálfuðu íslensku starfsfólki, á
Playa del Ingles, veitir farþegum Sunnu, öryggi og þjónustu,
skipuleggur skoðunarferðir, og er farþegum innan handar á allan
hátt.
Fáið bækling um Kanaríeyjaferðir Sunnu á skrifstofunni að Lækj-
argötu 2, og pantið ferðina strax, því mikið hef ur bókast nú þegar.
FERÐASKRIFSTOFAN SUNNA
Lækjargötn 2 síraar 16400 12070