Tíminn - 21.09.1975, Qupperneq 15
Sunnudagur 21. september 1975.
TÍMINN
15
tæknilega var ljóst, að 2 tilboð
komu til álita. Fulltrúar þeirra
tveggja fyrirtækja, sem i hlut
áttu, voru kallaðir hingað til við-
ræðna um samninga og lauk þeim
með þvi að gefin var út viljayfir-
lýsing um kaup á túrbinu-rafal
samstæðum frá Mitsubishi Heavy
Industries Ltd., Tokyo, að fengnu
samþykki rikisstjórnar Islands
og Seðlabanka tslands. Rikis-
stjórnin samþykkti kaupin og var
samningur formlega undirritaður
og hefur fyrsta greiðsla þegar
verið innt af hendi.
Dýrmætur timi vannst
Það var álit ráðgjafa okkar, að
tilboð það, sem tekið var, væri
bezta verð á túrbinu-rafal sam-
stæðu, sem sézt hefði i langan
tima. I tilboðinu var lofað af-
greiðslu á fyrri samstæðunni, 30
MW, eftir 14 mánuði og á siðari
samstæðu, jafnstórri eftir 16
mánuði. Augljóst var þvi, að með
þvi að fara þessa leið með útboð á
túrbinu-rafal samstæðum vannst
timi, sem nemur mörgum mán-
uðum, auk þess sem loforð feng-
ust um mun styttri afgreiðslu-
tima en áætlað var. Ég tel, að
fullkomlega heiðarlega hafi verið
staðið að útboði þessara véla og
að tilboð hafi verið metin hlut-
laust og samið hafi verið við þann
framleiðanda, sem hagkvæmast
bauð og þar að auki framleið-
anda, sem að okkar dómi hefur
einna mesta reynslu i jarðgufu-
aflsstöðvum fyrir „vota” gufu.
Ég get þessa sérstaklega vegna
gagnrýni, sem komið hefur fram
á nefndina fyrir að fara þessa leið
i útboði og samningum um vélár.
Þess má geta hér, að skýrsla
Orkustofnunar um niðurstöður
rannsóknaborana við Kröflu, sem
kom út i febrúar, lá fyrir áður en
gengið var frá samningum um
kaup á túrbinu-rafal samstæðum
og kom i henni i ljós, að aðstæður i
Kröflu voru svo likar aðstæðum i
Námafjalli, að boðnar vélar upp-
fylltu þærkröfur, sem gera þurfti
vegna vatnshita, gufuþrýstings
og efnainnihalds i vatni.
Hversvegna Krafla,
en ekki Námafjall?
— Nú er bæði Námafjall og
Krafla nefnd i lögum um þessa
virkjun. Hversvegna er það?
— Þegar lögin voru sett voru
rannsóknir skammt á veg komn-
ar. Visindamenn bundu þó miklar
vonir við Kröflu, að þar væri
virkjanlegt háhitasvæði. Náma-
fjall, eða hliðar þess, austanvert
voru náttúruundur, eða allt að
þvi, vel þekkt ferðamannasvæði
með bullandi leirhverum og gufu-
strókum. Talið var að miklar
breytingar gætu orðið á hvera-
svæðinu austan Námafjalls.
Dalverpið við Kröflu, sem varð
fyrir valinu er fjarri alfaraleið og
ýmis fyrirferðarmikil mannvirki
valda þar ekki eins áberandi
röskun á náttúrufegurð og orðið
hefði við Námafjail. Þetta er ó-
byggt svæði en fyrr á öldum voru
þarna tvö sel og bjó faðir Fjalla-
Bensa i öðru þeirra. Má enn sjá
móta fyrir húsatóftum þarna.
Þetta er rjúpnaland fyrst og
fremst nú.
Framkvæmdir i
fullum gaugi
— A livaða stigi eru fram-
kvæmdirnar nú?
— Stöðvarhúsi hefur verið val-
inn staður og það er um það bil að
verða fullgert. Hér hafa verið
reistar vinnubúðir, mötuneyti og
annað, sem þarf til þess að nauð-
synlegt starfslið geti hafzt hér
við. Lokið er við tvær borholur.
Fyrri holan er fullgerð og blæs
núna gegnum hljóðdeyfi, en bar-
izt er hetjulegri baráttu við hina
holuna, sem mun vera heitasta
borhola I veröldinni. Væntum við
þess, að þeim takist að koma
böndum á hana sem fyrst.
Við gerum ráð fyrir að unnið
verði við innréttingu á stöðvar-
húsinu i vetur.
— Hvað verður um rafniagnið,
þegar orkuvinnsla hefst?
— Raflinur heyra að visu ekki
undir Kröflunefnd. Hinu er ekki
að leyna, að orkan verður nýtt á
öllu Norðurlandi og væntanlega
verður lögð raflina til Austur-
landslika, þvi orkuþörf er mikil á
þessu svæði. Eins og mál standa I
dag, þykir þessi virkjun vera i
stærra lagi, markaður sé ekki
fyrir alla þessa orku, en ekki eru
allir sammála um það. Þessi
virkjun bætir úr brýnni orkuþörf
og þarf þvi að komast i gagnið
sem fyrst og með tilkomu hennar
myndast ýmsir nýir möguleikar
fyrir orkuveitusvæðið.
Er Kröfluvirkjun
of stór?
— En er virkjunin ekki of stór
fyrir orkuþörf Norður- og Austur-
lands?
— Ekki held ég það. Sumir
virðast að visu hafa áhyggjur af
of mikilli raforkuframleiðslu
norðanlands, og ég býst við að
einhver umframorka geti talizt
verða fyrir hendi i 1—2 ár. En ætli
það fari ekki eftir þvi hvaða for-
sendur menn gefa ser i' sambandi
við orkuspá. Ég veit ekki til þess
að nein algild orkuspá liggi fyrir.
Þvi má ekki gleyma að Norður-
land hefur verið i orkusvelti árum
og áratugum saman. Ætli það
megi ekki segja að það sé búið að
venja okkur Norðlendinga á að
hugsa spart i raforkunotkun, al-
veg eins og að menn tórðu ein-
hvern veginn á kreppuárunum án
þess að hafa peninga á milli
handanna. Það er lengi hægt að
hjara. En ég vil benda á það, að
jafnvel þótt einhverjir geti reikn-
að út umframorku i stuttan tima,
þá vinnst hún upp i raforkuörygg-
inu. Og öryggið er nýtt i raf-
magnssögu Norðurlands. Við höf-
um lengi búið við beinan raf-
magnsskort i þessum landshluta,
og langvinn rafmagnsskömmtun
hefur talizt til sjálfsagðra hluta
áratugum saman.
Að minum dómi getur ekkert
bjargað raforkumálum Norður-
og Austurlands á borð við Kröflu-
virkjun. Hún er langbezti
virk junarkostur, sem völ er á við
núverandi aðstæður. Auðvitað
eru fjölmargir virkjunarmögu-
leikár fyrir hendi á Norðurlandi.
En menn verða að gera sér grein
fyrir þvi, að allar aðrar virkjanir
miðast að meira eða minna leyti
við áframhaldandi erlenda stór-
iðju i landinu.
Kröfluvirkjun
heillandi verkefni
— Hvernig hefur þér fallið að
vinna i Kröflunefnd?
— Þetta er heillandi verkefni
og nefndarmenn taka þátt i starf-
inu af lifi og sál. Það kemur eink-
um I hlut formannsins, Jóns Sól-
nes, að sjá um það daglega, en
allir nefndarmenn eru lifandi i
starfinu. Kröflunefnd réði ekki
yfir neinum tækniher, til að byrja
með, a.m k. og oft hefur hún orðið
að haga störfum sinum með ó-
venjulegum hætti, þannig að hún
hefur legið undir gagnrýni.
Nefndin hefur lagt allt kapp á að
hraða þessari virkjun og vonast
til að geta stytt virkjunartimann
verulega eða um allt að þvi' tvö ár
og hún vonar að þegar timar liða
muni aliir meta störf hennar að
verðleikum, sagði Ingvar Gisla-
son, alþingismaður og varafor-
maður Kröflunefndar að lokum.
JO
Happdrætti
Hóskóla íslands
Aðalskrifstofa happdrættisins, óskar að
ráða skrifstofustúlku frá næstu mánaða-
mótum.
Vélritunarkunnátta áskilin.
Allar upplýsingar veitir Anna Árnadóttir,
fulltrúi, i sima 1-43-65 kl. 10-12 daglega.
Umsóknarfrestur til 25. september.
Happdrætti Háskóla islands.
Oft heyrist talað um að „fóðra” holur. Þetta er „fóðrið” stáirör með götum, sem eru tii þess ætluð að
hleypa gufu og sjóðandi vatni inn i holugöngin og upp á yfirborðiö.
Mikið af ungum æskumönnum úr héraði vinna viö Kröfiuvirkjun. Hér sjást nokkrir þeirra I kaffitiman-
um, en þá gripa menn gjarnan spil. Heimamenn eru í mikium meirihluta starfsmanna við Kröflu og
iðnaðarmenn á Norðurlandi hafa fengið mörg ný verkefni.
ALLAR STÆRÐIR
CHLORIDE-RAFGEYMA
FYRIR
RAFMAGNS-LYFTARA
GETUM VIÐ ÚTVEGAÐ MEÐ STUTTUM
FYRIRVARA
NOTIÐ AÐEINS ÞAÐ BEZTA
L PÓLAR H.F.
0 Auónustjarnan á öllum vegum.
RÆSIR HF.
Skúlagötu 59 sími 19550
LANDKM
Þjónustubifreið frá
MERCEDES BENZ fer um landið
dagana 22. sept. — 9. okt.
Staðsetning bifreiðarinnar, hverju
sinni, auglýst nánar í útvarpi.
0
Mercedes-Benz
MÓNUSTA -UM