Tíminn - 21.09.1975, Síða 17

Tíminn - 21.09.1975, Síða 17
Sunnudagur 21. september 1975. TÍMINN 17 Göngur og réttir I. t almanakinu segir, að réttir byrji frá og með 21. viku sum- ars. En i 22. viku sumars eru haustjafndægur. Eftir það hall- ar sumri, en haust og vetur sæk- ir fram. Viðfangsefni bænda breytast með árstiðum. Hverri árstið hæfa sin störf, og svo samgróin eru búnaðarstörfin landi voru og timaskiptum, að islenzk tunga hefur stundum sama orð um hvort tveggja verkið og timann, sem það er unnið á. Eitt þessara orða er réttir. II. 1 ársbyrjun 1974 var sauðfjár- eign landsmanna samkvæmt skýrslum 845.796 sauðkindur. Og haustið 1974 var slátrað I sláturhúsum 907.161 kind. Sam- kvæmt þessu hafa þá komið i réttir að hausti allt að 1.8 mill- jón sauðkindur. Ætla má, að sauðfé landsmanna hafi fremur fjölgað en fækkað á þessu ári. Munu þá koma i réttir á þessu hausti allt að 2 millj. kindur. Þessi bUstofn hefur nærzt, vaxið og safnað holdum i sumarhögum á afréttum og i heimalöndum bUjarða. Það eru margar fóðureiningar, sem þessi sauðfjáreign þarf til vaxt- ar og viðgangs 4-6 mánuði árs- ins. Af þessu má ráða, hvað beitilandið er raunverulega verðmætt og gefur mikið af sér. Afurðir suðfjárins eru mikið bUsilag og gott i þjóðarbúið. Ull og gærur eru undirstaða vax- andi iðnaðar. Sláturfé hefur fjölgað ört á siðustu áratugum. Jafnframt hefur fallþungi dilka aukizt. Fjöldi sláturfjár hefur verið sem hér segir: Arið 1940 393 þUsund kindur. Árið 1945 385 þUsund kindur. Ariðl950 254 þUsund kindur. Arið 1955 464 þUsund kindur. Arið 1960 714 þUsund kindur. Árið 1965 772 þúsund kindur. Arið 1970 759þUsundkindur. Árið 1974 907 þUsund kindur. Áætlað er að i haust verði tala sláturfjár um 1 milljón kindur. Af þessu er auðsætt, að með þvi afurðaverði, sem ákveðið er i verðlagsgrundvelli land- bUnaðarinsnemur innlegg bænda af sauðfjárafurðum háum fjárhæðum. En samkvæmt verðlagsgrundvelli er verðmæti sauðfjárafurða um 40% af heildarframleiðslu land- bUnaðarins. III. Göngum og réttum fylgja ávallt mikil umsvif og erfiði. Þrátt fyrir það eru göngurnar heillandi. Listaskáldið mælir vissulega fyrir munn margra, er það kveður: „Eins mig fýsir alltaf þó aftur að fara i göngur.” Um gamla gangnamenn hefur rithöfundur sagt: „Þeim er yndi að tala um öræfin og segja sögur af ferðum sinum þar. Þeir unna öræfunum eins og sjómaðurinn hafinu, þvi að þar hafa þeir leitað og fundið, lúðst og hvilst. Ef til vill hefur þá dreymt fegurstu draumana sina inni við jökla með hnakkinn sinn undir höfðinu.” Jón Thoroddsen dregur upp sanna þjóðlifsmynd, er hann lýsir athöfnum i réttinni i Fagradalsbotni, þarsem réttar- stjóri stóð i dyrum og skoðaði hverja kind, sem dregin var, sagði hver átti og rengdi hann enginn maður, enda var hann svo glöggur á fé, að hann þekkti hverja kind, ef hann hafði séð hana einu sinni áður. Hann vissi og hvaða mark hver maður átti i hinum tveimur næstu sýslum. Litla stúlkan, sem þekkir Kollu sina I réttinni og segir: „Æ, þarna er hún Kolla min blessuð komin af fjallinu,” er sannur fulltrúi margra sveitabarna. Það er og hliðstætt þvi sem enn gerist, að við réttina þótti mannfagnaður beztur þar um sveitir. Enn í dag vekja réttardagarn- ir eftirvæntingu og fögnuð i sveitum. Bóndinn fagnar þvi, að fá úr rétt föngulegan fjárhóp, og I islenzkum fjölmiðlum eru auglýstir réttardansleikir sem almennur mannfagnaður I til- efni af göngum og réttum. IV. Hinn stórvitri maður Stephan G. Stephansson segir svo: „1 tvennt skiptast gróðabrögð: gæzluna og aflann, en geymslan snýst þrátt upp i vandræðakafl- ann, eins flókinn um menning sem fé.” Landnemarnir, forfeður okk- ar.voru svo gæfusamir að þurfa ekki að taka landið herskildi. Og búseta kynslóðanna frá upphafi landsbyggðar hefur um aldir tengt saman land og þjóð. Rækt- að land er að sjálfsögðu hærra metið en óræktað. En beitiland, þar sem um tvær milljónir sauðfjár eru i sumarhögum og auk þess nautgripir og hross, sýnir m.a., að landið er afar verðmætt. Þjóðin i heild á að gæta þess að landið spillist ekki af manna- völdum. Bændum ber skylda til aðgefa þvi gætur,hvaða búfjár- fjöld beitilandið þolir án þess að gróðurfari hnigni. Þeir þurfa og eiga að hafa góða samvinnu við þá, sem gróðurfarið rannsaka og taka fegins hendi stuðningi rikisins. Gróðurrannsóknir, sem unnið er að, og beitar- tilraunir, sem verið er að hefja á nokkrum stöðum, geta orðið góður leiðarvisir til þess að fundinn verði hinn gullni meðal- vegur i þessu efni. Samlif þjóðarinnar við landið hefur mótað og eflt islenzka menningu. Einn þáttur þjóð- menningar er atvinnulif þjóðar og þróun atvinnuvega, þ.e. sú þekking og sá þroski, sem fæst i viðskiptum þjóðar við land sitt. Göngur og réttir hafa verið ár- viss þáttur i atvinnulifi sveita- manna frá þvi að land byggðist. ílögum, em Jónsbók geymir og sett voru fyrir nálega 700 árum, segir svo: „Eigi skulu réttir fyrr vera en sex vikur lifa sum- ars. Hver maður, sem sauði á, skal ganga eitt sinn á fjall og um landeign sina hvert sinn, er lög- rétt skal vera, skipa svo öðrum göngum sem þeir ráða.” Fjallablærinn frjáls og hreinn svalar sannarlega smalamanni við starf hans. Og ef kaldur stormur næðir „og kinnar bitur og reynir fót, þá finnur hann hit- ann i sjálfum sér og sjálfs sin kraft til að standa mót.” Smölun afrétta er jafnframt landkönn- un, og ungur maður lærir þá af hinum eldri og reyndari að þekkja kennileiti og um örnefni á landinu. Þessi þáttur atvinnu- lifsins er svo athyglisverður og mörgum hugþekkur, að hann hefur orðið ýmsum skáldumv yrkisefni. B. Merkur rithöfundur islenzkur mælir vissulega rétt, er hann segir: „Markmið vort verður þvi að vera það að haga lffi voru iöllum efnum þannig, að þjóðin eflist sem bezt af landinu og landið af þjóðinni, en menningin af hvoru tveggja.” Þeim, sem ertamtaðfara með tölur, þykir mikið hagræði að handleika reiknistokk og lesa á hann. Reiknistokkur er vafalaust þarft áhald, en hann er samt ekki og verður aldrei algildur mælikvarði. Þjóðmenning verð- ur ekki mæld með honum frem- ur en lifshamingja einstaklinga. Þeir, sem gefa þjóðinni þau ráð að leggja niður landbúnað, en reisa i þess stað álbræðslur hafa látið undir höfuð leggjast að skýra mörg atriði, sem málið varða. Hér skal að sinni látið nægja að benda á þetta: Hver er fær um að reikna eða telja i tölum, hvað i'slénzk menning myndi missa mikið, ef sá þáttur hennar.sem tengdur er Islenzkum landbúnaði og sveita- lifi ætti að hverfa úr þjóðlifinu jafnframt elzta atvinnuvegi landsmanna? Ætli islenzk tunga auðgist mikið af orðtökum óg örnefnum i sambandi við störf manna i ál- bræðslum? Yrði ekki beiskur veruleiki með islenzkri þjóð það, sem St. G. St. bendir á, ef hún hætti að yrkja land sitt, að gæzla is- lenzkrar menningar snerist brátt upp i flókinn vandræða- kafla i þjóðarsögunni? Páll Þorsteinsson. msœ. Auglýsið í Tímanum

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.