Tíminn - 21.09.1975, Side 26
26
TÍMINN
Sunnudagur 21. september 1975.
Kefl-
víkingar
hafa
oftast
verið
fulltrúar
Islands í
Evrópu-
keppni
KEFLVÍKINGAR í EVR
KEFLVÍKINGAH....sjást hér ganga inn á hinn heimsfræga leikvang Real Madrid — Estado Sandiago
Bernabeu.
KEFLAVíKUR-liöiö er þaö lið, sem oftast hefur tekið
þátt í Evrópukeppni í knattspyrnu fyrir hönd islands.
Keflvíkingar tóku fyrst þátt í Evrópukeppni 1965, en þá
fengu þeir Ferencvaros frá Ungverjalandi, sem mót-
herja. Siðantóku Kef Ivíkingar aftur þátt í Evrópukeppni
1970 og hafa þeir siöan ávallt keppt fyrir hönd íslands i
Evrópukeppni, og er þetta sjötta árið í röö, sem þeir
leika í Evrópukeppni og nú þegar hafa þeir einnig tryggt
sér rétttil aö leika í Evrópukeppni bikarhafa 1976-77 —
þannig aö þá verður þaö sjöunda árið í röð, sem þeir
leika í Evrópukeppni. Ekkert annað íslenzkt lið hefur
leikið þetta eftir KefIvíkingum, sem hafa leikið gegn
sterkustu liðum Ungverjalands, Englands, Spánar, Skot-
lands og Júgóslavfu í Evrópukeppni. Saga þeirra í
Evrópukeppni er stutt — en mjög skemmtileg:
Keflavikurliðið lék fyrst i
Evrópukeppni 1965, þá sem
íslandsmeistarar. Þá dróst liðið
gegn ungverska meistaraliðinu
Ferencvaros.sem flaggaði með 5
landsliðsmenn úr hinu geysi-
sterka landsliði Ungverjalands —
þar á meðal var hinn frægi Flori-
an Albert, sem vakti mikla at-
hygli i HM-keppninni i Chile 1962
og Englandi 1966, og var þá
kallaður hinn nýi Puskas.
Ferencvaros sem hafði þá nýlega
unnið sigur yfir Manchester
United, lék fyrri leikinn i Evrópu-
keppni meistaraliða á Laugar-
dalsvellinum. Keflvikingar, sem
börðust þá hetjulegri baráttu
gegn ofurefli, töpuðu 1-4. Það var
Rúnar Júlíusson, sem skoraði
mark Keflvikinga, og þar með
fyrsta mark þeirra i Evrópu-
keppninni.
Síðan hélt Keflavíkurliðið til
Ungverjalands, þar sem liðið
mætti Ferencvaros á NEP-
þjóðarleikvangi Ungverja í Búda-
pest. Þar léku Keflvikingar i flóð-
ljósum i fyrsta skipti og var það
nýstárlegt og framandi fyrir leik-
menn Keflavilcurliðsins. Kjartan
Sigtryggsson, markvörður átti
ekki rólegan dag á NEP-leik-
vanginum — hann mátti hirða
knöttinn 9 sinnum úr netinu hjá
sér i leiknum, sem lauk með sigri
Ferencvaros 9-1. Jón „Marka
Jón” Jóhannsson skoraði mark
— þeir hafa leikið gegn sterkustu
félagsliðum Ungverjalands, Englands,
Spónar, Skotlands og Júgóslavíu