Tíminn - 21.09.1975, Side 31
Sunnudagur 21. september 1975.
TÍMINN
31
Megas — Millilending
Pemant h.t.
★ ★ ★ ★
MEGAS
millilending
HLJOAAPLOTUDOAAAR
NÚ-TÍAAANS
EFTIR margra ára þögn um
tónlistarmanninn og skáldiö
Megas (Magnús Þór Jónsson),
fylltust öll blöð af greinum og
viðtölum viö hann, og var engu
likara en að nýr snillingur væri
á meðal vor. Þaö er af sem áður
var, þvi þá þótti nafnið Megas
varla prenthæft, og er hann gaf
út i litlu upplagi fyrstu plötu
sina, var hún rifin niöur og
henni hallmælt af gagnrýnend-
um þeirra tfma. En timarnir
breytast og mennirnir með, þvJ
að nú er Megas orðinn nokkurs
konar tizkufyrirbrigði, og ekki
þætti mér ótrúlegt aö einhvers
konar Megasarmania væri I
uppsiglingu.
Ef svo er, þá er sú mania full
seint á ferðinni, þvi að strax
eftirfyrstu plötuna átti hún rétt
á sér, en það er bara svona með
landann, — hann er oft full seinn
að taka við sér, og raunar hefði
súplata (fyrsta ..Underground”
plata Islendinga) átt að feykja
Megasi upp i þann flokk is-
lenzkra listamanna sem fær
heiðurslaun frá rikinu.
Snúum okkur nú að nýjustu
sköpun Megasar ,,Millilend-
ingu”:
Jónas ólafur:
Lag i þjóðlagastil um útlag-
ann eða bjargvættinn Jónas,
sem reið yfir landið að likna
þeim ófáu, er lifvana hjörðu við
hungur og neyð.
Súlnareki:
Landnámssöngur Megasar
lýsir komu Ingólfs og Hjörleifs
og viðbrögðum þeirra, er þeir
héldu á land og sögðu einum
rómi: alveg drulla-klistrað.
*
Ég hef ekki tölu:
Allóvenjulegt lag, lagið er
raunar upptalning, og gengur
sama melódian I gegn aftur og
aftur, þannig að lagið býður upp
á ýmsa möguleika i undirspili,
sem Magnús Kjartansson not-
færir sér óspart.
Erðfaskrá:
(Ekki vildi ég erfa Megas, ef
þetta er hans erfðaskrá). Fall-
egasta melódia plötunnar er
einn bezti textinn, flutningurinn
tignarlegur
,,ég unnandi hluta
ánáfna likum þá skrift
að tætast i sundur ögn fyrir
ögn
& una þvilikri typt”.
Ég á mig sjálf:
Smelhð lag sem segir sex.
Textinn er sá fyndnasti á plöt-
unni, og má segja að þar fari
Megas á kostum.
„Og ég fór á ball
og ég var svo skver
og ég fór með véggjum
og var ein og sér
allir með öllum
enginn með mér — nei
endaði stök
æ þvi fór nú ver.
Ragnheiður biskupsdóttir:
Bezti rokkari plötunnar, lag
sem á eftir að ná miklum vin-
sældum, en hræddur er ég um
að textinn komi i veg fyrir að
lagið eigi eftir að berast á öldum
ljósvakans um landið.
Sennilega það siðasta:
Eina lag plötunnar, sem ég
sætti mig ekki fullkomlega við,
þó svo að þetta sé þokkalegasta
lag. Skortir öll frumlegheit.
Mannúöarmálfræði:
Lengsta lagið, heilar átta
minútur, og það eru skemmti-
legar átta minútur, bezti textinn
og mikil pæling.
Silfurskotturnar hafa sungið
fyrir mig:
Megas endar plötuna á ró-
legu, fallegu lagi um öldung,
sem er að undirbúa brottför sina
úr þessum heimi.
„mitt ævistarf er orðið
næsta nóg
& nú mun ráð að tygja sig
til farar
þvi sá er meiri er sekkur
djúpin i
með sinum knerri þeim er i
hálfu kafi marar
Framhald á bls. 37
LP-plata vikunnar — AAegas — AAiililending
Randver — Randver
011 — Hljóntar útgáfa
★ ★ ★
UM ARARAÐIR voru hin svo-
nefndu „þjóðlagatrló” alls ráö-
andi skemmtiatriði hér á landi
og „þjóðlagatónlistin” setti
mjög svip sinn á allt músiklif
hér. Nú um skeið hefur hins
vegar veriö lægð i þessari tón-
list hjá landanum, utan hvað
Þokkabót gaf út plötu á siöasta
ári.
Nýlega kom á ntarkaðinn LP-
plata með söngsveitinni Rand-
ver úr Hafnarfirði, en hana
skipa fimnt söngntenn. Tónlist
þeirra félaga flokkast undir
þjóölagatónlist, enda er helm-
ingur laganna á plötunni þjóð-
lög, fimnt frá trlandi og eitt frá
Rretlandi. Hin lögin eru úr ýms-
um áttum.
Hér er á ferðinni fyrst og
fremst skemmtileg plata. Yfir
henni er „léttleikansblær” og
textarnir, sem aðallega eru eftir
þá félaga, eru hnyttnir og falla
vel aö tónlistinni. Söngurinn er i
flestum tilfellum hnökralaus, en
á stundum virðast raddirnar þó
ekki vera alveg nógu samæfðar.
Hljóöfæraskipunin er allsér-
stæð, en þeir nota mikið niandó-
lin og banjó hljóðfæri, sem Is-
lendingar hafa ekki notað að
neinu marki. Þessi tvö hljóðfæri
setja mjög svip sinn á tónlist
Randvers, en auk þeirra nota
Randversntenn gitara og munn-
hörpu. Hljóðfæraleikurinn er
einfaldur i sniöum og átakalaus-,
— og virðast Randversmenn
nota hljóðfærin mjög smekklega
og alltaf i fyllsta samræmi við
aðra þætti laganna.
Hins vegar er áberandi hvað
sum laganna eru endaslepp. og
er það ein af stærstu göllum
plötunnar. Ætti þeim félögum
ekki að vcra skotaskuld að lag-
færa það, fari þeir aftur i plötu-
gerð.
Hljómun cr þokkaleg, en dá-
litið grunn og eru raddirnar i
mörgum tilfellum of „aftar-
lega” sem leiðir til þess, að þær
virðast renna of mikið saman.
Eins og áður segir er hér fyrst
og fremst um skemmtiefni að
ræða, og er platan sem slik, —
mjög góð. Sérstaklega ber i
þessu sambandi að nefna texta
Ellerts Borgars Þorvaldssonar,
sem eiga stóran þátt i að gera
þessa plötu skemmtilega. —
Randversmenn hafa farið vel af
stað og er vonandi að framhald
veröi á þeirra samstarfi.
The Isley Brothers — The Heat
Is On PZ 33536 — T-Neck Stereo
★ ★ ★ ★ -T-
THE ISLEY BROTHERS er
raddmikil hljómsveit fimm
bræöra, en auk bræðranna er
einn utanaðkomandi i hljóm-
sveitinni. Sennilega er hann þó
eitthvað tengdur fjölskyldunni!
Hljómsveitin er mjög virt
soul-hljómsveit i Bandarikjun-
um og nýtur umtalsverðra vin-
sælda i heimalandi sínu. Um
þessar mundir er m.a. eitt lag
þeirra, „Fight The Power”
mjög vinsælt vestan hafs, en
það er af þessari nýju LP-plötu
þeirra, The Heart Is On.
Hljómsveitin byggir mikið á
góðum söng og þar verður henni
heldur ekki fótaskortur, þvi
bræðurnir eru með afbrigðum
góir söngmenn og nota sönginn
til hins ýtrasta. Hljóöfæraleik-
urinn er einnig fyrsta flokks
gæðavara.
THE ISLEY BROTHERS
sækja mikið til Steve Wonders
eins og titt er um flesta soul-tón-
listarmenn. Þeir „stæla" hann
þó engan veginn, og gera ýmis-
iegt harla ólikt honum. A þess-
ari nýju plötu er meirihlutinn
róleg lög, — 4 á móti 2 — og
þykir mér þeim takast betur
i'upp i þeim en hraðari lögum.
„Fight The Power” cr þó annað
hraðara lagið og platan ber heiti
hins hraða lags, þannig aö þeir
telja sjálfsagt að það séu væn-
legri lög.
Soul-tónlistin sækir stöðugt á,
og Isley-bræðurnir eru góðir
fulltrúar soul-rokksins.
l-fvaöa listamann/hljó'm-
sveit, sem fram hefur
komió i popptónlistinni á
siöastliönum fimm árum
(frá 1970) telur þú
athyglisveróastaí n)?
V
AAest seldu plöturnar
Vikan frá
8.-15. september:
Stórar plötur
1. O'Lucky man — Alan Price
2. Blues for Allah — Greetful Dead
3. American Graffity — Ýmsir
4. E.C.was here— Eric Clapton
5. One of These Nights — Eagles
6. Janis lan — Between the Lines
7. Ritchie Blackmore's — Rainbow
ð. Sumar á Sýrlandi — Stuömenn
9. Stuö, Stuð, Stuö — Lónlí Blú Bojs
10. Chicago — VIII
Litlar plötur:
1. Black Superman — Johnny Wakelin
2. The Hustle — Van McCoy
3. El Bimbo — Bimbo Jet
4. Þrjú tonn af sandi — Haukar
5. Misty — Ray Stevens
____________________________________/
Faco hljómdeild
Laugavegi 89
simi 13008
SENDUM I PóSTKRoFU
Faco hljómdeild
Hafnarstræti 17
simi 13303.