Tíminn - 02.11.1975, Side 8
8
TÍMINN
Sunnudagur 2. nóvember 1975.
NtJ ER kominn vetur ef maöur
fer eftir almanakinu, en ef fariö
er eftir veörinu er enn haust, og
dapurleg skýín sigla inn yfir
sundin og hella úrfelli yfir skelk-
aöar manneskjurnar, þvi aö þaö
er dimmt i sálinni, fiskurinn er aö
drepast og blikur eru á iofti I
landhelgismáiinu. Hundruö
manna koma ofan úr Sigöldu á
eftir fénu, sem nú hefur flestu
veriö siátraö, þvi upp á hálendinu
er ekkert hægt aö gera á vetrin,
og þeir fara I ýmsa vinnu. Jarö-
vegsmannvirki munu leggjast
undir fönn ásamt tækjum og hús-
um, svo veröur allt grafiö upp i
vor, af sólinni og mönnunum, sem
koma til þess aö taka til hendinni
og Ijúka viö hana Sigöldu, sem
breytir þunglyndislegum söng
fallvatnsins i rafmagn, sem nú
heitir orka.
Fyrir noröan, norður i Kröflu,
eru þeir liklega hættir að bora.
Þeir gerðu tvær djúpholur i sum-
ar, sem báðar settu á flot sögur.
Hin fyrri sagði, að liklega myndi
Kröfluvirkjun mistakast vegna
gufuskorts, hin siðarnefnda benti
til þess að fjallið springi i loft upp
og með þvi draumurinn um hina
snöfurlegu stórvirkjun, sem
gengur dags daglega undir nafn-
inu Krafla.
Orka og þorskur
t haust fórum við i Kröflu, en
vegna stórtiðinda úr öllum áttum
var ekki búið að skrifa allt, sem
sagt var, og það sem verra er,
eftir var aö lýsa þessari nýju
gufuvirkjun, sem i rauninni brýt-
ur blað i virkjunarsögu tslands,
þvi að nú opnast (ef til vill) nýr
möguleiki til stórfelldrar orku-
vinnslu á Islandi og sumir halda
jafnvel að gufan undir landinu sé
ekki minna virði en þorskurinn og
sildin, jafnist meira að segja á við
oliulkndir rikja, sem hafa orðið
rikar á þessum svarta legi, sem
nú er dýrmætari en gull.
Við slógumst i förina með
Ingvari Gislasyni, alþingismanni
upp að Kröflu, en hann er vara-
formaöur Kröflunefndar. For-
maður er nú Jón Sólnes, alþingis-
maður, sem tók við starfinu af
Páli Lúðvikssyni, vélaverkfræð-
ingiog er Jón álika gamall i starfi
og rikisstjórnin sem nú situr.
Kröflunefnd hefur aðsetur sitt
(skrifstofur) á Akureyri og i
Kröflu.
Við hittum ýmsa verkmenntaða
menn og visindamenn að máli i
Kröflu, þar á meðal Eirik Jóns-
son, verkfræðing, en hans starf er
að fylgjast með hagsmunum
Kröflunefndar og þar með hags
munum þjóðarinnar gagnvart
verktökum, að farið sé eftir orð-
anna hljóöan um gerð mann-
virkja. Við báðum Eirik að lýsa
Kröfluvirkjun fyrir lesendum,
Vinna við Kröfluvirkj-
un hófst i vor
— Vinna við sjálfa virkjunina
hefst með vinnubúðunum, sem
reistar voru hér I vor. Aðdrag-
andinn var auðvitað miklu lengri,
en sjálfar virkjunarframkvæmd-
irnar hófust þá.
Rætt við
Eirík Jónsson,
verkfræðing
Krafla
verður
þriðja
stærsta
orku-
verið á
íslandi
r* ;C, ,
r fenginn sérstaklega til land&ins til þess aöhraöa fyrir
. Hann getur boraiý2-t!U(kmetra niður i jörðina. Metrinn
2-:i00 þúsund kró»mi\ .«,* ■ • ; ♦
,.:■ ■■'■■ .*•*■ . mu ■ ■■ » ' -.. V-
Kröfludalur, áður en virkjun þessa svæðis hófst. Þá var þetta rjúpnaland, en nú þruma þar orkuholur
bormanua og blandast skrölti frá vinnuvélum og jarðvinnslutækjum.
Jón G. Sólnes, alþingismaður,
formaður Kröflunefndar i tið nú-
verandi rikisstjórnar.
Fyrsta verkefnið var að gera
athuganir á landsvæðinu hér og
velja stað fyrir stöðvarhúsið. Það
var vandasamt verk, þvi að túr-
binurnar þurfa helzt að vera á
sem traustustum grunni. Þarna
voru boraðar holur og tekin voru
sýni og siðan var stöðvarhúsinu
valinn staður. Alag á undirstöður
slikra vélahúsa er mikið og þurfa
þær að vera traustari en i venju-
legum húsum. Bæði eru túrbin-
urnar sjálfar á þungri undirstöðu
og svo bætist við sveifluálag.
f stöðvarhúsinu verða tvær
gufutúrbinur, og inn á þær er tvö-
falt þrýstikerfi. Túrbinur þessar
minna á stóra þotuhreyfla að
fyrirferð og afli.
Með ofsahraða
Þessar túrbinur snúast 3000
snúninga á minútu, sem er tals-
vert meira en á vatnsaflsvélum.
(Venjulegar gufuvélar og stórar
disilvélar snúast um og innan við
100 snúninga á minútu til saman-
burðar).
Við þeskar túrbinur eru svo
tengdir rafalar, einn á hvora afl-
vél, og þessar vélar eiga að geta
framleitt við venjuleg skilyrði
2x30 megavött, eða 60 megavött.
Til samanburðar má geta þess,
að Búrfellsvirkjun er með 220
metavött, uppsett, og Sogið er
með 80—90 megavött, allar stöðv-
arnar. Sigalda verður siðan 150.
Laxárvirkjun er 20 megavött.
Krafla verður þriðja stærsta
rafstöðin þegar henni er lokið.
Krafla er fyrsta stóra jarðgufu-
stöðin hér á landi, en fyrir er litil
gufuvirkjun i Bjarnarflagi, sem
er 3 megavött. Hún hefur verið
rekin i nokkurn tima.
Túrbinur frá Japan
— Eru þessar aflvélar svipaðar
og notaðar eru i gufuaflsvirkjun-
um erlendis og svipaöar þeim,
sem' eru I túrbinustööinni viö
Elliöaár?
— Vélarnar, eða túrbinurnar,
sem framleiddar eru I Japan, eru
i meginatriðum svipaðar vélum i
hinum therminskuorkuverum, en
þær eru ekki eins.
Til eru orkuver og vélar starf-
andi úti i heimi, bæði i notkun og i
byggingu. Td. er verið að reisa
stöð eins og þessa núna á Filipps-
eyjum.
Við erum hér á „votu” svæði,
og það sem kemur upp úr holun-
um er blanda af vatni og gufu.
Siðan er vatnið skilið frá i sér-
stökum búnaði. Það er gufa með
tvenns konar hitastigi, sem fer
inn á vélarnar. Siðan fer gúfan út
úr vélunum i sérstakan kælibún-
að. Siðaner vatninu, sem er litið,
veitt burtu, og fer það I læk undir
Búrfellshraun og þaðan fer það á
nokkrum áratugum út i Mývatn.
Aður hafa ýmsefni (botn)fallið úr
þvi.
Með þvi að hafa vélarnar
tveggja þrepa, þá eykst orkunýt-
ingin um helming.
— Annars vil ég taka það fram,
að orkuvinnslan og það sem frá
vélunum kemur er mál Orku-
stofnunar, en ekki Kröflunefndar.
Hvert fer rafmagnið?
— Nú þcgar orkuvinnsla hefst,
/aö verður þá um allt rafmagn-
ið, sem framleitt verður?
— Stöðin verður tengd dreifi-
kerfinu og verður það Norður-
landsvirkjun sem annast það,
þegar hún hefur verið stofnuð.
Um tvo möguleika virðist vera að
ræða, að byggja linu beint héðan
til Akureyrar en hinn möguleik-
inn er að leggja linu i Laxárvirkj-
un og veita raforkunni svo þaðan
áfram, einsog nú er gert með raf-
magnið frá Laxá.
Þá er og gert ráð fyrir þvi i lög-
um, að samtengt verði við
Austurland. Rafmagn mun þvi
fara i báðar áttir frá Kröflu.