Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.11.2005, Qupperneq 25

Fréttablaðið - 06.11.2005, Qupperneq 25
[ ] FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL Arcadia Ísland óskar eftir að ráða innkaupafulltrúa til starfa. Hæfniskröfur: *Reynsla af innkaupum og verslunarrekstri *Skipulögð og nákvæm vinnubrögð *Frumkvæði og metnaður *Hæfni í mannlegum samskiptum *Mjög góð ensku- og tölvukunnátta *Brennandi áhugi á tískuTOPSHOP TOPMAN Umsóknir sendist til Hildar Björgvinsdóttur, starfsmannastjóra, í netfangið hildurb@hagar.is Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 14. nóvember nk. Starfssvið: Umsjón með vöruflæði í verslanir okkar, samskipti við erlenda birgja og umsjón með rekstri deilda okkar í Hagkaupum. Um framtíðarstarf er að ræða. Sjúkraliðar Öryggisverðir Kennarar Verkefnastjóri Sölustjóri Ráðgjafi Smiðir Lögfræðingar Verslunarstjóri Bílvélavirki Þjónar Lyfjafræðingur Afgreiðslufólk Framkvæmdastjóri Aðstoðar rekstrarstjóri Vaktstjóri Bókunarstjóri Veitingastjóri Innkaupafulltrúi Fræðslustjóri Iðjuþjálfi STÖRF Í BOÐI SMÁAUGLÝSINGAR SÍMI: 550 5000 ÞÚ GETUR PANTAÐ SMÁAUGLÝSINGAR Á visir.is Jón Erlendsson hefur starfað hjá Land- helgisgæslu Íslands í átta ár. Hann segir að íslenskir sjómenn séu senni- lega betur undirbúnir þegar slys beri að höndum en sjómenn annars staðar í heiminum. Jón er menntaður flugvirki en vinnur bæði sem flugvirki og spilmaður hjá Landhelg- isgæslunni. „Ég er yfirspilmaður núna þar sem ég er með hæsta starfsaldurinn en spilmaður stjórnar spilinu sem er utan á þyrlunni. Það er vír sem fer upp og niður og hífir upp fólk og vörur og sigmennina okkar,“ segir hann. Jón segir að spilmenn- irnir séu fjórir hjá Landhelgisgæslunni og þeir séu á vöktum í eina viku í mánuði hver og fylgi þá þyrlunni í öll útköll. „Hinar þrjár vikurnar í mánuðinum vinn ég sem flugvirki og geri við flugvélar og þyrlur hjá Landhelgisgæslunni.“ Jón segir að honum finnist flugvirkjastarfið mjög skemmtilegt og svo auki það líka fjölbreytnina að vera í áhöfninni á þyrlunni sem spilmaður og fara í útköll og annað. Jón segir að það sé misjafnt eftir árs- tíðum hversu tíð útköll séu en Landhelgis- gæslan fari á æfingar í hverri viku. „Við förum á æfingar með björgunarsveitum, lögreglunni, slökkviliðinu og sjómönnum. Við tökum þátt í námskeiði sem Slysavarn- arskóli sjómanna er með fyrir sjómenn og þeir fá að kynnast því hvernig er að láta hífa sig um borð í þyrlu. Íslenskir sjómenn eru örugglega einna best þjálfaðir í heimin- um og ef eitthvað kemur upp á og þeir þurfa að fara um borð í þyrlu vita þeir alveg hvað þeir eiga að gera.“ Jón segir að á þeim árum sem hann hafi verið hjá Landhelgisgæslunni hafi hann farið í fjölda útkalla þar sem mannslífum hafi verið bjargað. „Það er góð tilfinning að taka þátt í ferðum sem skila árangri og sjá fólk sem hefur verið í háska komast í faðm ættingja sem hafa beðið eftir því.“ emilia@frettabladid.is Góð tilfinning að bjarga mannslífum Jón Erlendsson á æfingu hjá Landhelgisgæslunni og slökkviliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Samningur hefur verið gerður um sameiningu Verslunarmanna- félags Reykjavíkur og Verslunar- mannafélags Vestmannaeyja. Í honum er gert ráð fyrir viðamiklu samstarfi félaganna og samein- ingu eftir tveggja ára reynslutíma. Samningurinn var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum á félagsfundi Verslunarmanna- félags Vestmannaeyja þann 1. nóvember 2005. 30.000 starfsmönnum Deutsche Telekom verður sagt upp á næstu árum. Ástæðurnar eru sagðar sparnaður vegna vaxandi sam- keppni en fyrirtækið var áður með einokunarstöðu á þýska síma- markaðnum. Þó er fyrirhugað að búa til 6.000 ný störf á sama tíma svo stöðugildum fækkar í það heila um 24.000 sem eru um tíu prósent starfsmanna fyr- irtækisins. Verð á hlutabréfum fyrirtækisins hækkaði um rúm þrjú prósent í kjölfar fréttarinnar. Atvinnuleysi í Þýskalandi minnk- aði nýlega um 0,2 af hundraði og er nú ellefu prósent. Barnaþrælkun er útbreitt vanda- mál í Bólivíu samkvæmt nýrri úttekt Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga á ástandi þar í landi. Talið er að um 800 þúsund börn séu í vinnu, flest í landbún- aði og byggingariðnaði. Jafnframt er talið að um 120 þúsund börn vinni við lífshættulegar aðstæður í námaiðnaði. Þá er barnavændi útbreitt. Í Bólivíu eru rétt- indi verkafólks og annarra launþega lítil sem engin. Til dæmis er þeim bann- að að bind- ast samtök- um á borð við stéttar- félög. LIGGUR Í LOFTINU [ATVINNA] Góðan dag! Í dag er Í dag er sunnudagur 6. nóvember, 310. dagur ársins 2005. Reykjavík 9.27 13.11 16.55 Akureyri 9.23 12.56 16.28 Fræðslustjóri Laus er til umsóknar staða fræðslustjóra við Hrafnistuheimilin. Hrafnista óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í stöðu fræðslustjóra frá 1. desember 2005. Hrafnistuheimilin samanstanda af dvalar- og hjúkrunarheimilunum Hrafn- istu í Reykjavík og Hafnarfirði og hjúkrunarheimilunum Víðinesi og Vífilsstöðum Helstu verkefni: • Umsjón og skipulag fræðslu starfsfólks • Samskipti og tengsl við menntastofnanir • Umsjón með RAI-mati • Vinna við gæðamál Hæfniskröfur: • Próf í hjúkrunarfræði og æskilegt að viðkomandi hafi viðbótarmenntun • Góð tölvukunnátta • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum Nánari upplýsingar veitir Dagbjört Þyri Þorvarðardóttir, hjúkrunarforstjóri, sími 585 9400, netfang: thyri@hrafnista.is. Umsóknir ásamt ferilskrá óskast sendar hjúkrunarforstjóra fyrir 18. nóvember nk. Hvernig verður maður tamningamaður bls. 6 Sigurður Margeir Magnússon er gröfumaður bls. 8
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.