Fréttablaðið - 06.11.2005, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 06.11.2005, Blaðsíða 32
8 ATVINNA 6. nóvember 2005 SUNNUDAGUR Sigurður Margeir Magnússon gröfu- maður, annar eigandi SM-verktaka, segist oft vinna frameftir kvöldi. „Ég vakna venjulega klukkan sjö og er mættur í vinnuna klukkan hálf átta. Í dag var ég að vinna við nýja Morgunblaðs- húsið við Hádegismóa við að taka hæðir inni í sökkli,“ segir Sigurður Margeir Magnússon gröfumaður en hann er ann- ar eigandi SM-verktaka, fyrirtækis sem hann rekur ásamt föður sínum. Þeir feðgar sérhæfa sig í lagningu frárennsl- islagna ásamt því að leggja hitaveitu og raflagnir í jörðu. Fyrirtækið rekur fimm gröfur og tvo vörubíla. Sigurður Margeir segir að dæmigerð- ur vinnudagur standi oft fram á kvöld hjá sér og gjarnan með viðkomu á nokkrum stöðum. Að lokinni vinnu við sökkulinn um fimmleytið lá til dæmis leiðin hjá honum að Hallsvegi í Grafar- vogi þar sem hann þurfti að lækka brunna í stíg sem verða seinna meir teknir upp í malbik. „Því var lokið um klukkan hálf sjö og þar með var mínum vinnudegi lokið,” segir Sigurður sem játar að hann vinni oft lengi frameftir á kvöldin og að þessi dagur hafi í raun verið með styttra móti. Hann viðurkennir að hafa mikið að gera og fagnar því. „Eins og staðan er í dag er nóg um verkefni og vonandi heldur það bara áfram.“ „Eins og staðan er í dag er nóg um verkefni og von- andi heldur það bara áfram,“ segir Sigurður Margeir. Fréttablaðið/E.Ól. Hefur miki› a› gera og fagnar flví Meginhlutverk skólastjóra er að: stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi Leitað er að umsækjanda sem: hefur kennaramenntun, og er með framhalds- menntun á sviði stjórnunar, uppeldis- eða kennslu- fræði æskileg hefur stjórnunarhæfileika og reynslu af stjórnun hefur reynslu af kennslu og vinnu með börnum og unglingum er lipur í mannlegum samskiptum Staða skólastjóra Engjaskóla Reykjavíkurborg leggur áherslu á þróun skóla í átt til einstaklingsmiðaðs náms, samvinnu nemenda, sterka sjálfsmynd þeirra og skóla án aðgreiningar. Auk þess er lögð áhersla á að styrkja tengsl skóla við grenndarsamfélagið og sjálfstæði skóla. Grunnskólar Reykjavíkur Engjaskóli í Reykjavík er heildstæður grunnskóli með 350 nemendum. Skólinn var byggður 1997 og er með íþróttahúsi, fullkomnu eldhúsi og ríkulega búinn tölvum og öðrum kennslugögnum. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám og gott samstarf við foreldra og hefur skólinn verið móðurskóli í foreldrasamstarfi. Mikil og fjölbreytt listgreinakennsla er í skólanum og mikil samvinna innan árganga og stiga. Jafnframt er lögð áhersla á góð samskipti nemenda og starfsfólks og stöðuga símenntun alls starfsfólks. Staðan er laus frá og með 1. janúar 2006 en þó er mögulegt að viðkomandi hefji störf síðar samkvæmt nánari samkomulagi. Umsóknum fylgi yfirlit yfir nám og störf og gögn er varða frumkvæði á sviði skólamála, greinargerð um hugmyndir umsækjenda um framkvæmd skólastarfsins, auk annarra gagna er málið varðar. Umsóknarfrestur er til 5. desember 2005. Umsóknir sendist Menntasviði Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 1, 101 Reykjavík. Upplýsingar gefa Ingunn Gísladóttir, starfsmannastjóri, netfang: ingunn.gisladottir@reykjavik.is og Anna Kristín Sigurðardóttir, skrifstofustjóri grunnskólaskrifstofu, anna.kristin.sigurdardottir@reykjavik.is í síma 411 7000. Laun eru skv. kjarasamningi LN og KÍ. Járniðnaðarmenn Hamar ehf óskar eftir að ráða vélvirkja ,vélstjóra og Stálsmiði einnig er möguleiki á að taka inn nema á vélaverkstæðin á Eskifirði, Kópavogi og Akureyri. Mikil og fjölbreytt vinna. Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Davíð Þór Sigurbjartarson í GSM 660 360 david@hamar.is. eða Eskifjörður Sigurður Kristinn Lárusson GSM 660 3613 siggil@hamar.is Aðstoðarverkstjóri Byggingafélag Gylfa og Gunnars auglýsir eftir aðstoðarverkstjóra. Starfið felst í umsjón á byggingarstað. Aðstoðarverkstjóri starfar undir stjórn byggingastjóra. Nánari uppl. veitir Guðjón í síma 562-2991. Hjá okkur er virkt starfsmannafélag og góður aðbúnaður. Við leitum eftir fólki á öllum aldri. Veislan veitingaeldhús óskar eftir að ráða starfsmann í 100 % starf, góðan og ábyrgan aðila sem getur séð um borðbúnaðardeild Veislunnar ásamt ýmsu öðru. Óskum eftir duglegri konu til að sjá um þrif á skrifstofum og fl. í Veislunni 2 í viku, vinnutími er samkomulag, þarf að geta byrjað sem fyrst. Við tökum við glæsilegum sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni 10 nóvember, þurfum að bæta við okkur starfsfólki, það er þjónar, aðstoðarfólk í smurbrauð, eldhús og uppvask. Áhugasamir vinsamlega komið á Austurströnd 12, Seltjarnarnesi eða hafið samband í síma 561-2031 einnig hægr að senda póst á arny@veislan.is 100% Vegna forfalla er laust hlutastarf íþóttakennara við Hamarsskóla í Vestmannaeyjum. Einnig er laust til umsóknar 50% starf þroskaþjálfa við sama skóla. Upplýsingar fást hjá Halldóru Magnúsdóttur skóla- stjóra og Sigurlási Þorleifssyni aðstoðarskólastjóra í síma 481-2644. Vestmannaeyjabær auglýsir einnig eftir talkennara til starfa við grunn- og leikskólana í bæjarfélaginu . Áhugavert og fjölbreytt starf sem miðar að því að samhæfa þjónustu við börn á tveimur skólastigum. Upplýsingar hjá Ernu Jóhannesdóttur fræðslufulltrúa í síma 488-2000. Fræðslu- og menningarsvið Vestmannaeyja Amma óskast Erum að leita eftir barngóðri konu til að aðstoða við heimilisstörf og annast 5 ára strák. Upplýsingar í síma 893 2628 eða 893 2632. 25-36 og 45-42 (01-20) Rað-augl 5.11.2005 16:02 Page 8
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.