Fréttablaðið - 06.11.2005, Side 78

Fréttablaðið - 06.11.2005, Side 78
 6. nóvember 2005 SUNNUDAGUR46 FRÉTTIR AF FÓLKI Nýjasta skáldsaga Hallgríms Helga-sonar, Rokland, kemur út á Sauð- árkróki næsta þriðjudag við formlega athöfn í Fjölbrautaskóla Norður- lands vestra. Mál dagsins verður að afhenda sveitarstjóra Skagafjarðar eintak af bókinni. Það er svo sem ekki að undra þar sem skáldsagna- persónan, Böddi Steingríms, er þaðan. Böddi er dæmigerður lúði, býr ennþá hjá móður sinni þrátt fyrir að vera löngu orðinn fullorðinn. Böddi bloggar í frístundum um lífið og tilveruna á Króknum, bæjarbú- um til mikillar hrellingar. Ýmis atvik verða til þess að hann verður sífellt afskiptari í bænum og að lokum ákveður hann að flytja til Reykjavíkur. Böddi er svona maður sem er alltaf rangur maður á röngum tíma, of stór fyrir Ísland. Það skemmtilega er að Hallgrímur heldur úti bloggsíðunni rokland.blogspot.com þar sem hugleiðingar Bödda fá að njóta sín. Hallgrímur verður þó að gæta þess að festast ekki í karakter því það hlýtur að vera mun betra að vera Hallgrímur Helgason en Böddi Steingríms. Stelpnahljómsveitin Nylon sendir frá sér sína aðra breiðskífu á þriðjudaginn. Undirbúningur að gerð plötunnar hófst strax í janúar á þessu ári og hafa stelpurnar verið inn og út úr hljóðverum með jöfnu millibili. Upptökur fóru fram á Íslandi og í London. Platan hefur fengið nafnið „Góðir hlutir“ og er hún unnin af Óskari Páli Sveinssyni, Friðriki Karls- syni og Richard Barraclough. Flest lögin á plötunni eru ný en „Dans, dans, dans“ og „Einskonar ást“ eru endurunnin og voru þau sótt til áranna milli sjötíu og áttatíu. Fjöldi íslenskra og erlendra lagahöfunda eiga verk á plötunni og ekki spillir fyrir að Alma Guðmundsdóttir úr Nylon fyllir nú flokk þeirra sem hafa samið lög fyrir hljómsveitina. Margir lögðu leið sín á Grand Rokk á föstudagskvöld þar sem valinkunn- ur hópur reiðra skálda tróð upp. Meðal þeirra sem fengu útrás fyrir reiði sína á sviðinu voru Stefán Máni, Kristjón Kormákur, Kristín Eiríksdóttir og Erpur Eyvindarson. Hallgrímur Helgason hafði reyndar spúð sinni reiði inn á segulband eitthvað fyrr og var það leikið um kvöld- ið. Samkoman fór prúðmannlega fram í alla staði, sem gæti allt eins verið von- brigði fyrir hina steyttu hnefa sem höfðu komið kurteisislegum ábendingum á framfæri í fjölmiðlum um að hvers kyns frammíköll og óskundi væri vel þeginn. Að öðrum ólöstuðum þótti framlag Erps Eyvindarsonar standa upp úr en vestfirska kraftaskáldið Eiríkur Örn Norðdahl sýndi og sannaði í eitt skipti fyrir öll að honum er ekki síður lagið að kveða um líkamsop af öllum stærðum og gerð- um en vessa. FRÉTTIR AF FÓLKI Glæpasagan er heldur betur komin í tísku á Íslandi og forleggjarar keppast nú við að dæla krimmunum út á færibandi. Árni Þórarinsson, Arn- aldur Indriðason, Ævar Örn Jósepsson, Stella Blómkvist, Þráinn Bertelsson og Viktor Arnar Ingólfsson eru þegar komin á kreik með nýjar bækur og á þriðjudag bætist Jón Hallur Stefáns- son í hópinn með glæpasögu sinni Krosstré sem kemur út hjá Bjarti. Bjartsmenn búast við miklu af Jóni Halli, kalla hann „krónprins íslenskra glæpasagna“ og láta það fljóta með á heimasíðu sinni að þegar „fyrstu 15.000 eintök bókarinn- ar koma inn á lager útgáfunnar á mánudag“ séu liðin nákvæmlega þrjú ár frá því að höfundur mund- aði pennann í fyrsta sinn til að rita bókina. Annað upplag bókarinnar Mynd- in af pabba - Saga Thelmu er uppselt. Edda útgáfa er nú að láta prenta þriðju útgáfuna en það má vera ljóst að bókin er fyrsta met- sölubók þessa jólabókaflóðs. Sigurður Svavarsson, útgáfu- stjóri almenns efnis hjá Eddu, var að vonum mjög ánægður með söluna. „Bókin er að spyrjast vel út og fólk vill kynna sér sögu Thelmu af eigin raun,“ útskýr- ir hann. Að sögn Sigurðar vakti Myndin af pabba ennfremur athygli á bókahátíð í Frankfurt. „Það sem er svo vel gert hjá þeim Thelmu og Gerði er að bókin segir alltaf sögu sigurvegara,“ sagði útgáfustjórinn stoltur. Gerður Kristný, höfundur bók- arinnar, var að vonum í skýjun- um yfir þessum fréttum. „Þetta er dásamlegt og viðbrögðin við bókinni hafa verið framar öllum vonum,“ segir rithöfundurinn og bætir því við að þær Thelma hafi í upphafi rennt blint í sjóinn með viðtökur á bókinni. Þetta hafi enn fremur verið nýtt fyrir þær báðar því Myndin af pabba er fyrsta viðtalsbók Gerðar. Rithöfundurinn staðfesti að hún hefði heyrt af áhuga erlendra bókaútgáfa. „Það eru aðallega útgáfur frá Norðurlöndunum og Þýskalandi sem hafa gefið bók- inni gaum,“ segir hún en gerir sér enn fremur grein fyrir því að slíkt ferli taki langan tíma en sé í eðli- legum farvegi. „Æska Thelmu er þess eðlis að bókin á fullt erindi út fyrir landsteinana.“ Thelma hefur sjálf haft í nógu að snúast síðan bókin kom út. Gerður segir að fólk stöðvi hana úti á götu, vilji fá áritanir og ræða við hana. Þá hafi Thelma ávarp- að málþing í vikunni sem bæjar- yfirvöld í Hafnarfirði héldu fyrir starfsmenn sína. Hún bendir enn fremur á að tilgangur bókar- innar hafi fyrst og fremst verið sá að vekja athygli á kynferðis- ofbeldi gagnvart börnum og sýna að þau geti náð sér að einhverju leyti. „Fólk er svo þakklátt fyrir það hugrekki sem Thelma hefur sýnt með því að stíga fram,“ segir Gerður. „Thelma bar það með sér þegar ég hitti hana fyrst að hún væri í góðu jafnvægi og hefði sigrast á sínum erfiðleikum. Það kom því aldrei til greina að lýsa henni öðruvísi en sem sigur- vegara.“ freyrgigja@frettabladid.is Arna Sif Þórsdóttir í Menntaskól- anum við Sund fékk óvænta heim- sókn á dögunum í miðja kennslu- stund. Kristján Freyr Halldórsson, fulltrúi Pennans, afhenti henni Volkswagen Fox-bíl sem hún fær til afnota fram á næsta haust. Bíllinn eru verðlaun í skólaleik Pennans í samvinnu við Heklu og VÍS. Svo skemmtilega vildi til að Arna Sif hafði að morgni þessa sama dags lokið bílprófi. „Ég hafði farið í bílpróf um morgun- inn og var einmitt næstum búin að missa af kennslustund. Þá mæta ljósmyndarar og maður frá Penn- anum í tímann og spyrja um mig. Mér brá heilmikið og var búin að gleyma að ég hefði tekið þátt í þessum leik,“ segir Arna Sif hlæj- andi. „Ég var beðin að koma út fyrir skólann og þar beið mín nýr bíll og bíllyklar. Þetta var alveg meiriháttar.“ Bíllinn er skreyttur ýmiss konar skemmtilegu graffiti sem vekur sannarlega athygli um bæinn. „Það voru allir að horfa á mig fyrstu dagana og ég hélt að ég væri svona afleitur ökumaður þar til vinkona mín benti mér á að þetta væri bara bíllinn,“ segir hún og skellir upp úr. Sigurbjörn Bárðarson í Versl- unarskólanum og Sunna Lind Pét- ursdóttir í Verkmenntaskólanum fengu sams konar verðlaun. Sunna Lind var daginn áður á ferðinni á bílasölum bæjarins með pabba sínum í þeim tilgangi að finna not- aðan bíl til að skrölta á í skólann. Græddi bíl í skólann SIGURÐUR SVAVARSSON Er að vonum ánægður með hversu góð viðbrögð Myndin af pabba - saga Thelmu hefur fengið. MYNDIN AF PABBA: UPPLAG TVÖ UPPSELT Saga Thelmu hefur snert íslensku þjóðina Hvað er að frétta? Ferlega gott, er massahýr. Augnlitur: Smaragðsgrænn með hálfbláu ívafi. Starf: Sjónvarpsmaður. Fjölskylduhagir: Nútímalegir. Singúll með gommu af börnum. Hvaðan ertu? Ég ólst upp í návígi við óblíð náttúruöfl í Garðabænum. Ertu hjátrúarfull(ur)? Nei, hreint ekki. Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Kastljós og Lost. Uppáhaldsútvarpsþáttur: Þessi sem er á Rás 2 á sunnudögum milli 13 og 16 er frábær. Uppáhaldsmatur: Sushi er gott. Sveittir hammarar líka. Fallegasti staður: Highbury. iPod eða geislaspilari? iPod í seinni tíð. Það eru bara nördar sem nota geislaspil- ara í gymminu. Hvað er skemmtilegast? Um þessar mundir er það vinnan. Get ekki hugsað mér skemmtilegra samstarfsfólk. Hvað er leiðinlegast? Þegar ég dett í tuðið. Er hreint náttúrutalent í því á köflum þótt ég slái Eyrúnu seint út. Helsti veikleiki: Skapið mitt, þegar ég er illa stemmdur. Get líka verið óskap- lega viðskotaillur áður en ég borða á morgnana. Helsti kostur: Það væri gaman að geta sagt stundvísi en það væri lygi. Helsta afrek: Er að sjálfsögðu afskaplega montinn af börnunum mínum. Mestu vonbrigði: Þegar Ragnhildur Steinunn kom tvisvar í sömu fötunum í vinnuna í einum mánuði. Hver er draumurinn? Bara að hafa gaman af því sem ég er að gera hverju sinni. Hver er fyndnastur/fyndnust? Jón Gnarr og Táta Tromsö. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Þegar Þórhallur reynir að fá mig út að reykja á meðan við ræðum verkefni dagsins. Jafn- smekklegt og að bjóða upp á launaviðtal á útikamri. Uppáhaldskvikmynd: Life Is Beautiful er mögnuð en annars erfitt að nefna eina. Uppáhaldsbók: Síðustu vikur hefur saga Thelmu hrist rækilega upp í heilabúinu. Hvað er mikilvægast? Að Jóhanna Vilhjálms nái að klára sykurumfjöllun sína á næstu áratugum. Það verður tæpt en hefst vonandi. HIN HLIÐIN SIGMAR GUÐMUNDSSON FRÉTTAMAÐUR Highbury er fallegastur THELMA OG GERÐUR Hafa báðar fundið fyrir jákvæð- um viðbrögðum eftir að bókin kom út en Gerður segir þær hafa rennt blint í sjóinn í upphafi. HRÓSIÐ ... fær Silja Magg fyrir að hafa náð ótrúlega langt sem ljósmynd- ari þrátt fyrir ungan starfsaldur. 7.04.69

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.