Tíminn - 07.03.1976, Qupperneq 25

Tíminn - 07.03.1976, Qupperneq 25
Sunnudagur 7. marz 1976. TÍMINN 25 • • HUOMPLOTUDOMAR NÚ-TÍMANS ★ ★ ★ ★ ★ + Countryttínlistin hefur eignazt nýjan fulltrúa, sem nú er aðal- lega I þvi þessa dagana að færa harðsnúna rokkflytjendur skrefi nær Countrytónlist. Bandariska söngkonan EmmyLou Harris er nú loksins að öðlast frægð eftir margra ára baráttu fyrir viður- kenningu. Hún vakti fyrst at- hygli er hún söng með Gram Parsons á fyrstu sóltíplötu hans GP (1973), og svo verulega at- hygli gagnrýnenda er hún söng með Parsons á seinni plötu hans.Grievious Angel (1974). Sú plata kom út nokkrum mánuð- um eftir dauða Parsons og ákvað plötufyrirtækið að aug- lýsa EKKI plötuna, til þess að græða ekki á dauða Parsons, — þar með rann fyrsta tækifæri EmmyLou til frægðar út í sand- inn. Siðan fréttist ekkert af EmmyLou i eitt og hálft ár, eða þar til hún gaf út sina fyrstu sóltíplötu siðast liðið sumar „Pieces Of The Sky” — og viti menn! Platan varð blaðamatur tónlistarblaða um heim allan og brezkir gagnrýnendur kusu hana Countryplötu ársins 1975. Þvi verður ekki neitað, að Pieces Of The Sky er meistara- verk og átti skilið allt það lof, sem hún hlaut, enda ein vandað- asta og tónlistarlega fullkomn- asta plata sinnar tegundar. Meðal þeirra sem heilluðust af plötunni var Bob Dylan, og það varð úr að hann fékk EmmyLou til liðs við sig. Hún fer meþ stórt hlutverk á Dylan plötunni „Desire” og á sinn þátt i stór- fengleik þeirrar plötu. Látum þetta þá nægja í bili um fortið- ina. (Grein um EmmyLou er i uppsiglingu), og snúum okkur að nútiðinni og nýju plötunni Elite Hotel. A Elite Hotel blandar Emmy- Lou saman gömlum og nýjum country og country-rokk lögum, plús einu Bitlalagi. öll lögin eiga það sameiginlegt að vera i eðli slnu góð, en I meðförum EmmyLou eru þau ekki lengur góð, heldur stórkostleg eða frá- bær. Tökum t.d. lag Buck Owens, „Together Again”, sem EmmyLou syngur af mikilli innlifun og fágun, þannig að maður fær álit á Buck Owens sem lagasmið (eins og það er nú annars fráleitt), eða þá hið gull- fallega lag Don Gibsons, „Sweet Dreams”, sem neglir mann fastan við sætið og maður gerir sér grein fyrir hvað countrytón- listin býr oft á tiðum yfir mikilli fegurð. EmmyLou gerir meira en að hitta mann beint I hjarta- stað — hún sýnir lika mikið hug- EmmyLou Harris, banda- rlska countrysöngkonan, hefur verið nefnd drottning countrytóniistarinnar, en á sl. ári voru flestir hljóm- plötugagnrýnendur sam- mála um, að plata hennar „Pieces Of The Sky” væri bezta countryplata ársins. EmmyLou hefur nú kveðið sér hljtíðs á ný — og hvar- vetna hlýtur platan lofsam- lega dtíma, m.a. hér i Nú-timanum,eins og sjá má. rekki með þvi að flytja tvö Bur- ritolög og eitt Bitlalag. Af fyrstu plötu The Flying Burrito Brothers, The Gilded Palace og Sin (Mesta meistara- verki countryrokksins), flytur hún lögin „Sin City” og „Wheels”, bæði eftir Gram Par- sons og Chris Hillman. Emmy- Lou slær að visu ekki út Burrito i lögunum, enda ekki hægt að ætlast til þess af henni né nokkr- um öðrum. Hún flytur þau eins vel og hægt er (að þeim undan- skildum), enda held ég að engin manneskja hafi skilið, né skilji, Gram Parsons og tónlist hans. Bítlalagið er „Here, There And Ewerywhere” af Revolver, og finnst mér EmmyLou taka Bítlana i smá kennslustund i hvernig rólegt ástarlag verður há rómantlskt, — enda flutt hér af mikilli innlifun. Þannig væri hægt að halda áfram nærri endalaust, þvl að öll lögin eru frábær, og vel það. Það er ekkert á Elite Hotel, sem ekki er fullkomlega úthugsað, hvert smáatriði gengur full- komlega upp. Það er að visu eitt atriði sem finna mætti að, hún flytur lagið „Jambalaya” (að vísu „live” ásamt tveim öðrum lögum), og er það flutt á óað- fi.nnanlegan en hefðbundinn hátt. Allur hljóðfæraleikur er I al- gerum sérflokki, enda ekki neinir viðvaningar þar á ferðinni. Uppistaðan eru menn úr hennar eigin hljómsveit, The Hot Band, og má þar nefna git- arsnillinginn James Gurton, Glen D. Hardin pianó, Jaon Ware trommur, Emoiy Gordy bassi, Hank Divito stál gltar, og ýmsa vini eins og Bernie Leadon, Byron Berline, Lindu Ronstadt og Herb Pedersen. Hljóðfæraleikur þessara kappa er eins og áður sagði I al- gerum sérflokki, og er það helj- ar stúdia, hvernig þeir flétta leik sinn saman og skjóta inn stuttum sólóum með hinum ýmsu hljóðfærum á hárréttu augnabliki, eða þegar þeirra er sizt von. Að lokum vil ég segja það, að ég held að það sé á móti öllum náttúrunnar lögmálum að kunna ekki að meta Elite Hotel. Ef Desire er rokkplata ársins, þá er Elite Hotel countryplata ársins og ef Desire er j'afnfrámt bezta plata ársins, er eiúu ósanngjarnt að Elite Hotel sé sú næstbezta. Þetta eru stór orð i byrjun árs, en einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni, að þessar tvær plötur séu hápunkt- urinn á þessu ári — G.G. r 11 stærdum GLUGGAR GLUGGA- OG HURÐAÞÉTTINGAR mecí innfræstum ÞÉTTILISTUM GUNNLAUGUR MAGNÚSSON (Dag- og kvöldsimi). húsasmidam. SIMI 165 59 Bifvélavirkjar Óskum að ráða bifvélavirkja TEKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐID Á ÍSLANDI H.F. AUÐBREKKU 44-6 SIMI 42600 KÓPAVOGI i Norrænir iðnfræðslustyrkir Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svlþjóðar munu á þessu ári veita nokkra styrki handa tslendingum til náms við iðnfræðslustofnanir i þessum löndum. Er stofnað til styrkveitinga þessara á grundvelli ályktunar Norðurlandaráðs frá 1968 um ráðstafanir til að gera islenzkum ungmennum kleift að afla sér sér- hæfðrar starfsmenntunar á Norðurlöndum. Styrkirnir eru einkum ætlaðir 1. þeim, sem lokið hafa iðnskólaprófi eða hliðstæðri starfsmenntun á tslandi, en óska að stunda fram- haldsnám I grein sinni, 2. þeim, sem hafa hug á aö búa sig undir kennslu I iðn- sktílum, eða iðnskólakennurum, sem leita vilja sér framhaldsmenntunar, og 3. þeim.sem öska að leggja stund á iðngreinar, sem ekki eru kenndar á íslandi. Varðandi fyrsta flokkinn hér að framan skal tekið fram, að bæði koma til greina nokkurra mánaða námskeið og lengra framhaldsnám fyrir þá, er lokið hafa sveinsprófi eða stundað sérhæfð störf i verk- smiðjuiðnaði, svo og nam við listiðnaðarskóla og hlið- stæðar fræðslustofnanir, hins vegar ekki tæknifræði- nám. Hugsanlegt er, að i Finnlandi yrði styrkur veittur til náms i húsagerðarlist, ef ekki bærust umsóknir til náms á þeim sviðum, er að framan greinir. Styrkir þeir, sem I boði eru, nema I Danmörku 10.000 d.kr., i Noregi 8.100 n. kr., i Sviþjóð 6.000 s.kr. og i Finnlandi 6.000 mörkum, og er þá miðað við styrk til heils skólaárs. Sé styrkur veittur til skemmri tima. breytist styrkfjárhæðin I hlutfalli við timalengdina. Til náms i Danmörku eru boðnir fram fjórir fullir styrkir, þrir I Finnlandi, fimm i Noregi og jafnmargir i Sviþjóð. Umsóknum um framangreinda styrki skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 10. april n.k. I umsókn skal m.a. skýrt frá náms- og starfsferli og tekið fram, hvers konar nám umsækj- andi hyggst stunda, hversu lengi og viö hvaða náms- stofnanir. Fylgja skulu staðfest afrit prófskirteina og meðmæli. Umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.