Tíminn - 07.03.1976, Qupperneq 27

Tíminn - 07.03.1976, Qupperneq 27
Skipatjórinn »U Áma heljarhögg fyrir brjóstið. neitt til að hjálpa við matreiðsluna, eins og á seglskútunni. Henni leizt ekki á eldhúsið, sem lyktaði af óþrifnaði og henni geðjaðist ekki heldur að matreiðslu- manninum, sem var frá Mexiko og mjög skugga- legur i útliti. Hitinn var óþolandi, og þeim syst- kinunum fannst hver dagur lengi að liða, og þau söknuðu daganna i Las Palmas. Vic var þeim þó til mikillar gleði. Þau voru alltaf hrifnari og hrifnari af honum. Þess vegna varð þeim báðum mjög mikið um, er skipstjórinn, sem þann dag var i vonzku- kasti, gekk að Vic og sparkaði i hann, svo að hann kútveltist ýlfrandi eftir þilfarinu. Árni kreppti hnefana og óð beint framan að skip- stjóranum og spurði, hvort hann skammaðist sin ekki fyrir að niðast svona á varnarlausu dýri. Svarið, sem hann fékk, var heljarhögg i brjóstið, svo að hann hneig niður meðvitundar laus út við borðstokkinn. Berit fleygði sér niður hjá Áma háhljóðandi. Stýrimaðurinn kom með vatn i glasi, en Vic sleikti Árna i framan. Eftir dálitla stund rakn- aði Árni aftur við. Hann hafði ekki meiðzt alvar- lega, en i nokkra daga á eftir var hann slæmur fyrir hjarta og órór. Hver dagurinn varð þvi enn leiðari en sá fyrri. Gufuskipið Rosario gekk lika mjög illa. Varla meira en 8 milur á klukkustund, þótt gott væri i sjóinn. Þótt ekkert yrði að, tók það þvi alltaf 10 til 12 daga að fara frá Las Palmas til Matadi við mynni Kongófljóts. En ferðin sú fór nú heldur fram úr þeirri áætlun. Einn morguninn, þegar Árni kom upp á þilfar, sá hann, að sjór- inn hafði tekið litaskipt- um. Áður hafði hafið verið dimmblátt og tært, en nú var á yfirborði þess fyrst gulleitur blær, og siðar varð það grugg- ugt eins og leysingar- vatn á vori. Árni spurði stýrimanninn af hverju þessi litur væri á hafinu. Hann sagði, að það væri framburði Kongofljóts- ins að kenna, en það bæri með sér feiknin öll af leir og mold út i hafið. Hann sagði lika, að vatnsmagn Kongofljóts- ins gengi næst vatns- magni Amasonsfljóts- ins. Flytur. Kongofljótið 75-80 þúsund smálestir (teningsmetr a rúmm) út i hafið á hverri sekúndu. (Til samanburðar má geta þess, að Missisippi flyt- ur fram 34 þúsund smálestir á hverri sekúndu, Dóná 5200, Rin 2100, Glommen i Noregi 600 og Þjórsá um 500 teningsmetra). Þegar Kongofljótið flæðir yfir bakka sina, þá tætir það sundur jarðveginn og hann blandast vatninu. Af þessu fær hafið þenn- an brúnleita blæ, og lit- arbreytingin sést meir en 400 km frá ármynn- inu. „En það er riú ekki aðeins leir og mold, sem Kongo ber með sér út i hafið”, bætti stýrimað- urinn við. „Feikn af trjáviði frá skógum Mið-Afriku flýtur á bár- um fljótsins og öll skip, sem nálgast ósa Kongo- fljóts, mega gæta sin vel að rekast ekki á trjástofnana, sem mara i hálfu kafi á siglinga- leiðum”. Um þetta var ekkert hugsað á Rosario, og þvi fór svo, að morguninn eftir skall stór trjástofn i skrúfu skipsins og mölv- aði tvö skrúfublöðin. Skipið hafði verið gang- litið áður, en nú keyrði þó um þverbak. Skipið vann ekki á móti straumnum og rak nú undan stjórnlaust til hafs. En þá rann strax af skipstjóranum. Sýndi hann nú hinn mesta dugnað og kom upp bráðabirgða seglbúnaði og komst svo nærri landi á seglunum, að dráttar- bátur Var sendur frá Matadi til að draga skip- ið til hafnar. Þetta óhapp hafði þó seinkað ferðinni um þrjá sólarhringa, og það fyrsta, sem þau systkin- in fréttu, er þau komu upp á bryggjuna i Matadi, var, að skipið, sem þau ætluðu með til Ameriku, hefði lagt úr höfn daginn áður. Eng- inn gat sagt þeim, hvenær næst félli skips- ferð þaðan yfir Atlants- hafið. Systkinunum brá mjög i brún, er þau fréttu þetta. Nú var kominn miður mai. Það var liðinn meira en mánuður, siðan þau lögðu upp i þessa ferð, og enn voru þau álika langt frá Hawaii, og þá er þau voru heima i Nor- egi. Hitinn var óþolandi, þótt ekki væri komið lengra en þetta fram á sumarið, enda er litill munur árstiða þarna rétt við miðbaug. Ekki kom til mála að halda áfram með Rosario. Þeim hafði alltaf leiðzt og liðið illa eftir að þau komu þar á skipsfjöl. Berit var hálflasin. Hún þoldi ekki fæðið á skip- inu, og skipstjórinn leit Árna aldrei réttu auga, eftir að hann hafði leyft sér að standa uppi i hár- inu á honum, þótt hann léti hann hlutlausan. Yfirleitt hafði hann aldrei talaö við þau systkinin, eftir að hann barði Árna, en þó fremur ávarpað Berit. Það var þvi hún, sem herti upp hugann og fór til skipstjórans og spurði hann, hvað nú væri til ráða, þegar skipið væri farið, sem þau hefðu ætlað að fara með. Hann svaraði stuttur i spuna, að það kæmi sér ekkert við. Hann hefði komið þeim áleiðis til Matadi, og þar með hefði hann uppfyllt sinn hluta af samningnum. Þau Framhald Halogen-ljós fyrir J-perur - ótrúlega mikiö Ijósmagn PERUR í ÚRVALI NOTIÐ ÞOBESTA H F Skipholti 35 • Símar: 8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæöi • 8-13-52 skrifstofa 13LOSSI Sunnudagur 7. m'arz 1976. ar, sætar kökur. Allt var svo likt og á hátiðlegum stundum heima i Nor- egi. En gleðin náði þó hámarki, er frú Roncali kom með einn af sinum fallegu, vitru hundum og sagðist ætla að gefa Berit hann að skilnaði. Berit réð sér ekki af gleði og sagðist aldrei á ævi sinni hafa séð svona fallegan hund og með jafn gáfuleg augu. Hún sagðist ætla að kalla hann Vic, til minningar um leikbróður sinn heima i Noregi, sem . hafði dáið ungur. Rétt áður en skipið Rossario skyldi leggja úr höfn, fylgdu hjónin þeim Áma, Berit og Vic hátiðlega á skipsfjöl. Skilnaðarstundin var sorgblandin. Systkinin söknuðu þessara góðu gömlu hjóna, og Signor Roncali og kona hans voru mjög áhyggjufull yfir hinni löngu ferð, sem lá fyrir vinum þeirra, og þau söknuðu þeirra mjög. Ef þau hjón hefðu haft nokkurn grun um alla þá erfiðleika og allar þær hættur, sem á vegi þeirra urðu i þess- ari löngu og ævintýra- riku för, þá hefðu þau aldrei sleppt þeim út úr sinu húsi. 3. Gufuskipið Rosario var ekki að neinu leyti likt Titanic. Þetta var gamalt vöruflutninga- skip, sem flutti járn- brautarteina frá Balti- more i Bandarikjunum til Matadi við mynni Kongofljóts. Skipið hafði komið við i Las Palmas, til að fá gert við sprungna gufuleiðslu, sem þeir gátu ekki gert við úti á opnu hafi. Vistin á skipinu var ekki að neinu leyti ánægjuleg. Skipstjórinn var reyndar myndar- maður i sjón, en hann var oft drukkinn og leit illa eftir öllum hlutum á skipinu. Þegar rann af skipstjóranum, var hann oft i mjög illu skapi og fékk heiftarleg vonzkuköst og var þá oft beinlinis hættulegt að vera nærri hinu þung- henta heljarmenni. Áhöfnin á skipinu var marglit og frá mörgum þjóðlöndum. Þar var margt af svertingjum. Oft voru áflog og barsmiðar hjá hásetum. Árni og Berit höfðu klefa i skipinu nálægt klefum skipstjóra, stýrimanns og fyrsta vélstjóra. Mat- urinn var mjög vondur og illa fram reiddur. Ekki langaði þó Berit

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.