Tíminn - 26.03.1976, Page 3
Föstudagur 26. marz 1976
TÍMINN
3
Fengsæl hörpudiskmið
fundin í Húnaflóa
Mó- Reykjavik — Eitt sam-
felldasta skelfisksvæðið. sem nú
er þekkt hér við land er i Húna-
flda við Skagann vestanverðan.
bar er mikill hörpudiskur á 12
milna svæði allt innan frá
Blönduósi eða skammt þar fyrir
norðan og út á móts við Króks-
bjarg. Rannsóknaskipið Dröfn
var þar við rannsóknir nýlega og
fengust þar 550 kg af hörpudiski i
15 minútna togi. 1 þorpunum við
Húnaflóa er nú verið að kanna
möguleika á að hefja hörpudisk-
vinnslu, og er vonast til að slik
vinnsla geti bætt atvinnuástand i
þorpunum verulega.
Hrafnkell Eriksson fiski-
fræðingur sem var leiðangurs-
stjóri á Dröfn, sagði i viðtali við
blaðamann Timans að þessi mið
væru miklu meiri en þeir hefðu
búizt við og þar mætti örugglega
taka mikinn afla án þess að um
hættu á ofveiði væri að ræða.
Hugmyndir hafa verið uppi um
að Húnaflóasvæðið þyldi um 500
lesta ársafla, en eftir þennan
leiðangur taldi Hrafnkell ekki
óliklegt að það magn mætti tvö-
falda og jafnvel meir, þó á þessu
stigi væri ekki hægt að fullyrða
um slikt.
Auk miðanna við Skagann
fannst allmikið magn af hörpu-
diski viðar um Húnafóa. Þar á
meðal nokkurný mið. T.d. fannst
hörpudiskur beggja vegna við
Vatnsnes. A móts við Valdalæk
fengust 100 kg. af Hörpudiski i 15
minútna togi og 150 kg. fengust á
sama togtima norðan við Skarðs-
vita.
Þá voru miðin á vestanverðum
Flóanum einnig könnuð, og á
Ófeigsfirði fengust 100 kg. i 15
min. togi og svipað aflamagn
fékkst á Steingrimsfirði. Einnig
fékkst falleg skel út af Bjarnar-
firði en þar fengust ekki nema 75
kg. í 15 min togi. Svæðið i Reykja-
fjarðarál var ekki kannað, en
reiknað er með að þar sé ástand
einnig allgott.
Jón Kristinsson sveitarstjóri á
Hólmavik sagði i viðtali við
blaðamann Timans i gær, að
Hólmvikingar væru nú að kanna
hvort ekki væri hægt að hefja
skelfiskvinnslu á nýjan leik. Þar
hefur slík vinnsla legið niðri um
nokkurra ára skeið, enda verðlag
á fiskinum mjög lágt. Hins vegar
telja margir að verðlag á skel-
fiski sé nú stigandi og þvi ástæða
að hefja vinnslu.
Jón sagði að ávallt væri at-
vinnulif mjög dauft á Hólmavik
frá þvi að rækjuveiðum lyki og
þar til handfæraveiðar hæfust um
eða eftir miðjan júni. 1 ár lýkur
rækjuvertiðinni nú i vikulokin og
væri þvi mjög gott ef hægt væri að
vinna skelfisk þennan tima.
Jón Jónsson stjórnarformaður
rækjuvinnslunnar á Skaga-
strönd sagði, að þar lyki rækju-
vertiðinni nú i vikulokin, og hefði
mikið veriðum það rætt á Skaga-
strönd að hefja veiðar á hörpu-
diski. 1 vetur tók Rækjuvinnslan á
Skagaströnd i notkun nýtt hús-
næði, og þar er ágæt aðstaða til að
vinna hörpudisk.
Þá hefur Rækjuvinnslan á
Skagaströnd fengið vélar til
niðursuðu og niðurlagningar.
Hugmyndin er að þar verði soðin
niður rækja og einnig hefur verið
rætt um að leggja niður skelfisk
og jafnvel gera kaviar.
Hugmyndir uppi um
að hefja skelfisk-
vinnslu á ný
Kristján Thorlacius formaður BSRB:
Vongóður um að
samningaviðræur
hef jist á ný
gébé Rvik — — Ég er vongóður
um að samningaviðræður hefjist
á ný, sagði Kristján Thorlacius
formaður BSRB í gær. Ekki sagö-
ist Kristján þó geta sagt til um
hvenær þær viðræður gætu hafizt.
Nú er tæp vika til stefnu, en ég tel
að ef viðræður hefjist nú, verði
hægt að ná samningum, sagði
Kristján — auðvitað verður það
mikið verk, en ætti að takast ef
timinn er vel notaður. Það er mín
von að komizt verði hjá vinnu-
stöðvun, þvi það er ekki það sem
við sækjumst eftir, heldur
samninga r. Kristján vildi ekki
ræða nein efnisatriði samninga-
viðræðnanna á þessu stigi, en
kvaðst myndu senda út fréttatil-
kynningu til fjölmiðla þegar að
þvi kæmi. Timanum barst i gær
ályktanir frá fundum starfs-
manna BSRB iKópavogi, Kjósar-
sýslu, Hafnarfirði og Akureyri.
Fjölmennur fundur kennara i
Kópavogi og Kjósarsýslu var
haldinn nýlega og lýsti yfir fyllstu
andúð sinni og andstöðu gegn þvi
athæfi stjórnvalda að bregða fæti
fyrir þær tilraunir til sam-
komulags, sem virtust vel á veg
komnar, og einnig krafðist fund-
urinn þess að opinberir starfs-
menn fái undanbragðalaust sama'
samningsrétt og sömu aðstöðu til
að semja um kjör sin og aðrir
launþegar i landinu.
Aðalfundur Starfsmannafélags
Hafnarfjarðarkaupstaðar skórar
á rikisstjórnina að standa við þær
tillögur, sem samninganefnd
Fjármálaráðuneytisins hefur lagt
fram og jafnframt að tekið verði
tillit til ábendinga BSRB um end-
urskoðunarrétt aðalkjarasamn-
ings.
Almennur fundur var haldinn á
Akureyri á vegum BSRB og
Starfsmannafélags Akureyrar-
kaupstaðar. Segir i ályktun
þeirra m.a.: Fundurinn skorar á
stjórnvöld að endurskoða afstöðu
sina og vinda bráðan bug að
samningum. Komi ekki fram við-
unandi viðbrögð i þessum efnum,
hlýtur BSRB að ihuga vel öll
hugsanleg úrræði til að knýja á
um úrslit.
A.S.I.
mót-
mælir
verð-
hækk-
unum
Timanum barsti gær eftir-
farandi frá miðstjörn ASÍ:
Miðstjórn Alþýðusam-
bands Islands mótmælir
harðlega þeim verðlags-
ákvörðunum stjörnvalda,
sem teknar hafa verið að
undanförnu og sem hafa i för
með sér gifurlegar hækkan-
ir, einkum á verði opinberr-
ar þjónustu og landbúnaðar-
afurða, en einnig ýmissa
vörutegunda.
Miðstjórnin bendir á, að
aðeins litill hluti þessara
verðhækkana á rætur að
rekja til nýlega gerðra
kjarasamninga, heldur til
þess, að rikisstjórnin hefur
horfið frá nauðsynlegu að-
haldi i verðlagsmálum, jafn-
skjótt og kjarasamningar
höfðu tekizt. Ennfremur tel-
ur hún stórlega vitavert að
verðhækkanirnar eru yfir-
leitt miklum mun meiri en
spár Þjóðhagsstofnunar og
Hagstofu Islands gerðu ráð
fyrir, meðan kjarasamning-
ar stóðu yfir, en þær spár
vom að verulegu leyti for-
senda samninganna.
Miðstjórnin telur þá stefnu
rikisstjórnarinnar i verð-
lagsmálum, sem verð-
hækkanaákvarðanir hennar
sýna, vera beina árás á lifs-
kjör almennings og auk þess
háskalega fyrir efnahags-
þróunina i heild. Krefst mið-
stjórnin þvi þess, að þessar
ákvarðanir verði endur-
skoðaðar þegar i stað, og að
upp verði tekin virk aðhalds-
stefna i verðlagsmálunum.
Rit um land-
helgismálið
"200
miles"
SJ-Reykjavik. Út er komið rit á
ensku um landhelgismálið, „200
miles”, sem Landhelgisfélagið
gefur út. Fjölmörg viðtöl við
áhrifamenn eru i ritinu. í forystu-
grein segir Borgþór Kjærnested,
að tilgangurinn með útgáfunni sé
að greina frá ástandi fiskstofn-
anna við tsland með þvi að túlka
viðhorf verkalýðsleiðtoga, for-
ystumanna og starfsmanna i
sjávarútvegi, verzlun og iðnaði og
kynna þannig eins fjölbreytt
sýnishorn og hugsanlegt er af við-
horfum fólks hér til fiskveiðideil-
unnar, sem valdið hefur svo mikl-
um ágreiningi milli brezku rikis-
stjórnarinnar og þeirra r islenzku.
Ennfremur segir, að von ritstjóra
„200 miles” sé sú, að ritið verði
ómetanlegt uppsláttarrit um
landhelgismálið, þar sem fáist
skýringar á stefnu og aðgerðum
Forsiða rits Landhelgisfélagsins
islenzku stjórnarinnar siðustu ár-
in.
Ritstjóri „200 miles” er Ásgeir
Hannes Eiriksson, Borgþór
Kjærnested hefur ritað viðtölin,
sem birt eru, en J. Meldon D'Arcy
þýtt þau á ensku. Uppsetningu
annaðist Halldór B. Kristinsson.
teikningar gerði Gunnlaugur S.E.
Briem, fjöldi ljósmynda er i rit-
inu.sem er prentað i Blaðaprenti.
Ýmis fyrirtæki, félög, stofnanir
og einstaklingar hafa staðið
straum af kostnaði við útgáfuna.
en ritinu er dreift ókeypis.
KOSID í STJÓRN
VIÐLAGASJÓÐS
AÞ-Reykjavik. — i gær fór
frani kosning sjö inanna i stjórn
Viðlagasjóðs og jafnmargra til
vara. Gildir kosningin til næstu
áramótá.
Aðalmenn voru kjörnir Guð-
laugur Stefánsson framkvstj.,
Helgi Bergs bankastj., Gisli
Gislason forstj., Vilhjálmur
Jónsson forstj. Reynir Zoega
vélstj., Garðar Sigurðsson al-
þm., og Tómas Þorvaldsson
framkvstj.
Varamenn voru kjörnir: Jó-
hann Friðfinnsson kaupm., Sig-
urður Markússon framkvstj..
Björn Guðmundsson útgerð-
arm., Bogi Hallgrimssson, Jón
Hallgrimsson framkvstj.. Ólaf-
ur Jónsson. Kópavogi og Helgi
S. Þórðarson.