Tíminn - 26.03.1976, Page 13
Föstudagur 26. marz 1976
TÍMINN
13
nina
eri að fletta ofan af spillingu, til
þess að leggja grundvöllinn að
raunverulegum kærleika meðal
manna, en nóg um það. Leikur-
inn er settur upp i raunsæisstil,
hvert smáatriði fylgir þeirri
linu, baráttan verður að fara
fram innan þessa sviðs, sama
hvort gefið er púrtvin og þegar
borið er lik af ungri stúlku.
Pétur Einarsson túlkar hinn
taugaveiklaða kaupmannsson i
samræmi við þessa stefnu.
Hann skapar taugabilaðan,
flausturslegan mann, og frá
sjónarmiði þeirrar stefnu er
tekin var, er leikur Péturs mjög
áhrifamikill. Hvort mismæli eru
hluti af leiknum, eða vegna tak-
markaðra æfinga veit ég ekki.
Steindór Hjörleifsson leikur
Hjálmar Ekland, ljósmyndara,
sem er liklega aumkunarverð-
asta persóna leiksins. Steindór
hefur ekki verið betri i öðru
hlutverki hvað ég man. Sama er
aðsegja um Margréti ólafsdótt-
ur, en telja verður, að hún hafi
skilið sina stöðu rétt. Jón Sigur-
björnsson leikur Werle, stór-
kaupmann af reisn og virðu-
leika, og Guðmundur Pálsson
lifgar upp á sýninguna með lif-
andi og skemmtilegri túlkun á
Ekdal gamla.
Þá var frammistaða þeirra
Helga Skúiasonar og Jón
Hjartarsonar ágæt. Að lokum
skal svo minnzt á leik Valgerðar
Dan, sem gerði þessu annars
einhliða hlutverki ágæt skil, og
hún hefur nú losað sig við ýmsa
galla, sem hana hafa hrjáð i
málhreimi.
Sviðsmynd úr Villiöndinni.
Leikmynd Jóns Þórissinar
var ágæt, og hefur sjaldan verið
rýmra um fólk á hinu þrönga
sviði i Iðnó.
1 tramhaldi af þessu langar
mig til þess að vikja ögn að
framsögn i leikhúsum almennt.
Það á ekki við þessa sýningu
fremur en aðrar. Svo virðist
sem leikarar okkar séu að kom-
ast á eitthvert muldurstig hvað
framsögn snertir. Mýkt i leik og
tali á fullan rétt á sér, menn
þurfa ekki alltaf að leika sterkt,
en áheyrenda vegna þarf það þó
að heyrast hvað sagt er, — eða
öllu heldur að skiljast. Það má
ekki leika aðeins fyrir fremsta
bekk. Aftar i húsinu er lfka fólk,
sem gjarnan vill fylgjast með.
Eg held að leikarar ættu að taka
þetta til athugunar, og gera
átak vegna öftustu bekkjanna.
Ef til vill á sjónvarps- og kvik-
myndaleikurhérnokkra sök. Að
hann geri leikarana að ,,mikra-
fónsöngvurum ”. Sviðsleikur
krefst framsagnarlistar.
Að lokum er ekki annað eftir
en að þakka Leikfélagi Reykja-
vikur fyrir enn eina ágæta sýn-
ingu i vetur. Jónas Guðinundsson
Bandalag kvenna ályktar:
Skipulögð verði þjónusta
fyrir heimili, þar sem
ofdrykkja er vandamál
Aðalfundur Bandalags kvenna i
Reykjavik, sem haldinn var i
febrúar sl. ályktar:
1. Aðalfundurinn telur nauðsyn-
legt að drykkjumannahælið i
Vifilsstaðalandi, sem staðið hefur
fullbúið til notkunar siðan i júli
s.l., verði tekið i notkun og full
nýting verði þar svo fljótt sem
mögulegt er, og að á þessu hæli
verði jöfn aðstaða fyrir konur
sem karla.
2. Aðalfundurinn beinir þeim
tilmælum til Alþingis að veita
aldrei minna fé árlega i gæzlu-
vistarsjóð en sem nemur 2% af
ágóða Áfengis- og tóbaksverzlun-
ar rikisins, til þess að sjóðurinn
geti staðið undir þeim kostnaði við
uppbyggingu nauðsynlegra stofn-
ana, sem lög kveða á um.
3. Aðalfundurinn beinir þeim
eindregnu tilmælum til Borgar-
stjórnar Reykjavikur að hún hlut-
isttil um það, að skipulögð verði
hið bráðasta þjónusta, sem veiti
vernd og skyndihjálp þeim
heimilum, sem þjökuð eru af
völdum ofdrykkju.
Fundurinn vill leggja áherzlu á,
að súþjónusta,sem hér um ræðir
er orðin mjög aðkallandi.
4. Aðalfundurinn skorar á alla
þá aðila, sem hafa með áfengis-
og fikniefnamál að gera, að láta
einskis ófreistað til þess að upp-
ræta sölu áfengis og fiknilyfja til
unglinga og að þeir, sem gerast
sekir um slikt, hljóti þung viður-
lög.
5. Aðalfundur Bandalags
kvenna i Reykjavik telur afnám
áfengisveitinga i opinberum
veislum mikilvægan stuðning i
baráttunni gegn áfengisbölinu,
þar sem slikt mun draga úr
áfengisneyzlu. í þessu efni hvetur
fundurinn Alþingi til að sam-
þykkja bann við áfengisveiting-
um i samkvæmum á vegum hins
opinbera.
ALMENNUR
BORGARAFUNDUR í
RANGÁRVALLASÝSLU
Almennur borgarafundur um
atvinnumáþi Rangárvallasýslu.
Verkalýðsfélögin i Rangárvalla-
sýslu, sveitarstjórnir og sýslu-
nefnd Rangárvallasýslu hafa i
sameiningu ákveðið að halda al-
mennan borgarafund um at-
vinnumál i héraðinu laugardag-
inn 3. april nk. kl. 14.00.
Fundurinn verður haldinn i
Hellubiói. Frummælendur verða
Sigurður Óskarsson, fulltr.
Verkalýðsfélagsins Rangæings,
og Jón Gauti Jónsson, sveitar-
stjóri á Hellu. Fundarstjórar
verða Hilmar Jónasson, form.
Verkamannadeildar Rangæings,
og Ólafur Guðmundsson, bóndi
Hellatúni.
Félagsmálaráðherra mun
mæta á fundinum, og sérstaklega
hafa verið boðaðir til fundarins
þingmenn Suðurlandskjördæmis
og fulltr. Alþýðuflokksins og
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna.
Kirkjuhljómleikar í Borgarnesi
TÓNLISTARFÉLAG Borgar-
fjarðar gengst fyrir Kirkjuhljóm-
leikum i Borgarnesi n.k. laugar-
dag kl. 21. Eru hljómleikar þessir
haldnir i samvinnu við Félag isl.
hljómlistarmanna. Einleikarar
verða Árni Arinbjarnarson orgel-
leikari og Sæbjörn Jónsson
trompetleikari ásamt 8 manna
flokki málmblásara, en hann
skipa: Jón Sigurðsson trompet,
Kristján Kjartansson, trompet,
Ellert Karlsson, trompet,
Christina Tryk, horn, Sandra
Carlile, bariton, Reynir Guðna-
son, básúna, Daði Einarsson,
básúna, Brian Carlile, túba. A
efnisskránni verður m.a. verk
eftir J.S. Bach, H. Purcell, J.
Pezel, E. Grieg, O. Lindberg og J.
Staden, Mozart og Páll Isólfsson.
Tónlistarfélag Borgarfjarðar
var stofnað i janúar 1965 og var
aðalhvatamaður að stofnun þess
Ásgeir Pétursson sýslumaður.
Tónlistarskóla stofnaði félagið
árið 1967 og hefur Jón Björnsson
verið skólastjóri hans frá
upphafi. Kennarar skólans eru
fimm og stunda 125 nemendur
nám við skólann. Kennt er á 4
stöðum á félagssvæðinu.
Tónlistarlif i Borgarfirði hefur
staðið með blóma þrátt fyrir erfið
skilyrði og hafa að meðaltali
verið haldnir fernir hljómleikar á
ári, m.a. tók tónlistarfélag
Borgarfjaðar annað tveggja á
móti norsk-islenzku ungmenna-
sinfóniuhl jómsveitinni á s.i.
sumri.
Þess má geta að fá tónlistarfé-
iög hafa fengið Sinfoniuhljóm-
sveit Islands jafn oft i heimsókn.
Stjórn félagsins frá stofnun
hafa skipað Friöjón Sveinbjörns-
son sparisjóðsstjóri. Borgarnesi.
Hjörtur Þórarinsson skólastjóri
Kleppjárnsrevkjum og Jakob
Jónsson. bóndi Varmalandi.
(Fréttatilkynning frá F.t.H.)
Arni Arinbjarnarson.