Tíminn - 16.05.1976, Blaðsíða 13
Sunnudagur 16. mai 1976.
TÍMINN
13
Myndlistarskólinn í Reykjavík:
Nemendasýning um helgina
JG-RVK. Myndlistarskólinn I
Reykjavik, sem er til húsa i As-
mundarsal að Mimisvegi 15
(horni Freyjugötu og Mimisv.),
heldur sina árlegu vorsýningu um
þessa helgi.
Eru þar sýnd verk nemenda
sem þar hafa stundað nám i vet-
ur.
Nemendur Myndlistarskóláns i
Reykjavik eru rúmlega 200 tals-
ins, og er kennt i 12 deildum, mál-
aradeildum, teiknideildum, högg-
myndadeild og grafikdeild. Auk
þess eru barna- og unglingadeild-
ir, þar sem kennd er leirmótun,
teikning og málun, auk annars.
Barnamúsikskóli
Kennarar i skólanum i vetur
eru 9 talsins, og eru það mestan
part þekktir listamenn. Skóla-
stjóri er Katrin Briem.
Sýningin verður opið frá kl.
14—22 á laugardag og sunnudag.
Að sögn þeirra Hrings
Jóhannessonar listmálara og
Katrinar Briem skólastjóra hefur
þetta verið ágætur vetur hvað
skólastarfið snertir. Ahugi nem-
enda er mikill og ástundun góð.
Nemendur finna að þessu sinni
upp á nýjungum til þess að vekja
athygli á skóla sinum og sýning-
unni. Gerðar hafa verið grimur,
sem nemendur munu bera i aug-
lýsingagöngu, og sérstakt auglýs-
ingaplakat hefur verið gert vegna
sýningarinnar. Þá hafa menn i
hyggju að sýna höggmyndir á
svölum hússins, sem eru mjög
rúmgóðar, en það er þó aðeins
unnt að framkvæma ef veður er
þurrt, þar eð myndirnar eru fæst-
ar úr efni sem þolir útivist i vond-
um veðrum. Hafa myndirnar ver-
ið varðar með sérstakri blöndu
gegn regni.
Þegar blaðamenn komu i húsið,
var verið að leggja siðustu hönd á
undirbúning sýningarinnar, en
verkin munu skipta hundruðum,
ef allt er talið.
Ekki er að efa að fjölmenni
verður á sýningu Myndlistarskól-
ans i Reykjavik um helgina, ef að
likum lætur.
Reykjavíkur:
Hvers vegna
URSUS?
URSUS ER STERKUR
URSUS ER SPARNEYTINN
URSUS ER ÓDÝR
Svo ódýr, að mismunurinn jafnvel nægir til
að mæta áburðarhækkuninni.
Góð þjónusta og nægir varahlutir.
141 < l<
SUNDABORG
Klettagörðum 1 • Simar 8-66-55 £ 8-66-80
Lll
Auglýsið í Tímanum
350 nemendur í
skólanum - 13
útskrifuðust í vor
Barnamúsikskóli Reykjavikur
hélt lokatónleika sina s.l. sunnu-
dag, 9. mai. Haldnir voru tvennir
tónleikar þennan dag, i Austur-
bæjarbiói og i félagsheimili
Karlakórsins Fóstbræðra. A
tónleikunum komu fram hljóm-
sveit skólans, sönghópur, börn úr
forskólanum og fjölmargir hljóð-
færaleikarar, allt frá einleik til
fjölmenns samleiks.
13 nemendur útskrifuðust úr
skólanum, og fara þeir flestir i
Tónlistarskólann i Reykjavik til
framhaldsnáms.
1 vetur voru um 350 nemendur i
skólanum, þar af um 50 i útibúi
skólans i Breiðholti (Fellahelli).
Skólinn er, eins og undanfarin ár,
meira en fullsetinn, og hamla
húsnæðisvandræði eðlilegum
vexti hans.
Um 20 kennárar starfa við skól-
ann, og er kennt á pianó, gitar,
fiðlu, selló, klarinettu, altflautu,
þverflautu og hörpu.
1 vetur var starfsemi skólans
mjög fjölbreytt. Fyrir utan fjöl-
marga tónleika, sem haldnir voru
innan veggja skólans, var farið i
nokkrar tónleikaferðir i skóla
borgarinnar og leikið og sungið
fyrir nemendur þar. Einnig var
farið i tónleikaferð til Akraness 2.
mai og haldnir sameiginlegir tón-
leikar með tónlistarskólanum
þar. (Fréttatilkynning)
VANTAR
YÐUR
starfsfólk?
Höfum vinnufúst fólk, vant margvisleg-
ustu störfum.
Atvinnumiðlun stúdenta
Simi 1-59-59.
Að mörgu er aö hyggja,
er þú þarft aö tryggja
Brunar og slys eru of tíóir vióburóir í okkar þjóófélagi. Þegar
óhapp skeóur er hverjum manni nauósyn, aó hafa sýnt þá
fyrirhyggju, aó fjárhagslegu öryggi sé borgió.
Hagsmunir fyrirtœkja og einstaklinga eru þeir sömu.
SJÓVÁ tryggt er vel tryggt
SUÐURLANDSBRAUT 4 -SÍMI 82500
11