Tíminn - 16.05.1976, Page 33
Sunnudagur 16. mai 1976.
galopnum augum út i
næturkyrrðina. — Harry
Douglas hafði haft rétt
fyrir sér. Þetta var
sannarlega veiðiför,
sem ekki var hægt að
gleyma.
Allt i einu kom hann
auga á höfuð á stóru dýri
rétt fyrir framan sig.
Liklega aðeins 10—15
metra frá honum. Þetta
var ljón!
„Skjóttu, meistari
Árni! Skjóttu, skjóttu!”
æpti Songo. Hann stóð
nokkur skref að baki
Árna.
Árni lét skotið riða af.
Til þess að hægara
væri að miða rifflinum i
dimmu, var á honum
hvitt sigti, en drengur-
inn var svo æstur, að
hann hafði suðu fyrir
eyrunum og gætti þess
ekki, að miða nógu ná-
kvæmlega, og þess
vegna hitti hann ekki
ljónið á milli augnanna,
eins og Ibrahim hafði
sagt honum að gera, en i
stað þess lenti kúlan i
hálsinum á ljóninu. í æs-
ingnum gleymdi Árni
þvi, að hann hafði annað
skot i rifflinum, og skaut
ekki aftur.
Við sársaukann rak
ljónið upp öskur og dró
sig saman i hnút til
stökksins. Á næsta
augnabliki var Árni i
dauðans greipum, en
Songo sá hættuna, og á
sömu stundu kastaði
hann sér fram fyrir
Árna og rak langa,
sterka spjótið beint i op-
ið ginið á ljóninu. Við
það missti ljónið kraft-
inn úr stökkinu, en til
allrar óhamingju hras-
aði Songo og féll fram
yfir sig i áttina að ljón-
inu. 1 þvi dundu tvö skot.
Það var Abdullah, sem
sendi bæði skotin úr
rifflinum á örstuttu færi
beint i hausinn á ljóninu.
Þetta stóra rándýr
steyptist fram yfir sig
dauðskotið, en i dauða-
teygjunum náði það að
tæta Songo og særa hann
miklu sári hægra megin
frá herðablaði og niður
eftir siðunni.
Ibrahim og burðar-
mennirnir komu hlaup-
andi. Þeir losuðu Songo
undan ljónshrammin-
um, en hann engdist
sundur og saman af
kvölúm. Mikið blóð foss-
aði úr sárinu. — Þeir
höfðu hvorki með sér
sárabindi eða kvalastill-
andi meðul, og Ibrahim
gaf þvi strax fyrirskipun
um, að þeir skyldu bera
Songo sem fljótast heim
i þorpið. — Þannig sár
eftir ljónshramm er
venjulega lifshættuleg. I
klónum á ljónunum, eða
milli þeirra, eru oft kjöt-
tægjur og önnur óhrein-
indi, sem geta orsakað
blóðeitrun. í flýti bjuggu
þeir til börur úr
bambusstengum og
jurtaflækjum. Á þær
lögðu þeir Songo með
mikilli varúð og báru
hann hina löngu og erf-
iðu leið til baka.
Árni var alveg eyði-
lagður eftir þessa veiði-
ferð. Hann áleit það sér
að kenna, þetta
hræðilega slys með
Songo. — Guð almáttug-
ur, hvað átti hann af sér
að gera? Ef hann aðeins
hefði verið rólegur og
miðað betur eða um-
fram allt munað eftir
hinu skotinu, þá hefði
þetta aldrei komið fyrir.
Árni var alveg niður-
brotinn. Ibrahim reyndi
að hressa hann við og
tala um fyrir honum.
Hann fullvissaði hann
um, að fáir menn væru
svo kjarkgóðir að geta
staðið augliti til auglitis
x fíMínn
við tryllt ljón og miðað
rólega á það. Svona ó-
happ gæti vel hent ágæta
veiðimenn.
En Árni lét ekki hugg-
ast. Hann var mjög
beygður og ásakaði sig
stöðugt. Að hugsa sér, ef
'Songo dæi af sárum sin-
um. Trygglyndi, hug-
prúði Songo, sem hafði á
siðasta augnabliki
bjargað lifi hans og lagt
sitt lif i hættu.Hvað
ætli Berit hugsi? —
Hræðilegt, að þetta
skyldi vera hans eigin
sök.
Þau systkinin höfðu
bæði verið svo hrifin af
Songo, þessum lifsglaða,
ágæta negrapilti. Aldrei
brá hann skapi sinu og
annaðist um þau, eins og
þau væru systkini
hans...
Árni barðist við grát-
inn. ,,Songo, Songo, —
þú mátt ekki deyja,”
hvislaði hann hvað eftir
annað. En það var ein-
mitt það, sem allir voru
hræddir um. Þeir höfðu
engin tæki eða þekkingu
á að stöðva blæðingu og
blóðtapið var svo mikið,
að kraftar Songos virt-
ust fjara út smátt og
smátt. Hann var hálf-
meðvitundariaus, en
brosti þó hlýlega, þegar
Árni beygði sig yfir hann
og nefndi nafn hans.
Að lokum náðu þeir á-
fangastað.
Gamli Kemal, sem
eitthvað þekkti til lækn-
inga, tók Songo strax að
sér. Hann hreinsaði sár-
ið og bjó um það eftir
föngum. Hann lét hann
dreypa á einhverri vin-
blöndu, og ofurlitið lif
virtist færast i hann. Ef
til vill sigraðist Songo á
þessu. Kemal sagðist
hafa dálitla von um það,
en aðeins veika von.
En sú von brást. Undir
morguninn hljóp drep i
sárið og um hádegið dó
Songo, og hafði aldrei
fengið meðvitund, eftir
að hann kom i hús Kem-
33
als. Hann var jarðsettur
um kvöldið.
Árni og Berit voru nú
mjög einmana og sorg-
mædd. — Það var þeim
ekkert til ánægju, að
Kemal bauðst til að út-
vega þeim annan þjón.
Það gat enginn komið i
stað Songós. Þessi nýi
þjónn var annars ágæt-
ur. Hann var kurteis og
hugsunarsamur, en
innilegt vinarsamband
kom þarna ekki til
greina. Það tilheyrði að-
eins minningunni um
Songo.
LESTU EKKI ÞESSA
AUGLÝSINGU
ef þú hefur engan
áhuga á að vera sjálfs
þín herra.
Til sölu er, á tækifæris-
verði, litið notaður off-
setf jöJritari. Miklir
möguleikar þar sem
prentsmiðjur eru ekki
starfandi. Upplýsingar
í síma 91-35727.
I
I
Einstakt tækifæri
Fólksbíla Vörubíla
Dróttarvéla og Jeppa
hjólbardar
á gamla verðinu,
án hækkaðs vörugjalds
- Takmarkaðar birgðir
Sparið þúsundir
- kaupið Barum í dag.
TEKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ
Á ÍSLANDIH/E
AUÐBREKKU 44-46 SÍM/ 42606
AKUREYRI: SKODA VERKSTÆÐIÐ Á AKUREYRI H/F. ÓSEYRI 8.
EGILSTAÐIR: VARAHLUTAVERSLUN GUNNARS GUNNARSSONAR.
GARÐABÆR: NYBARÐI H/F GARÐABÆ.