Tíminn - 13.06.1976, Page 6

Tíminn - 13.06.1976, Page 6
6 TÍMINN Sunnudagur 13. jún! 1976 Ingólfur Davíðsson: Byggt °g búið J I gamla daga 126 Gauti Hannesson kennari hef- ur léö myndir i þennan þátt. Þegar ég kom til Reykjavikur i fyrsta sinn haustiö 1929, var viröuleg járnrimlagiröing um- hverfis Austurvöll og rammleg járnhliö á. Stundum var vatni dælt á völlinn á vetrum og fékkst þar gott skautasvell. Kunni margur þaö vel aö meta eins og myndin sýnir. Fjöldi fólks stendur utan viö giröing- una aö horfa á þá er leika listir sinar á Isnum. Kunnu allmargir vel til skauta sinna og léku létt á svellinu t.d. Katrin Viöar, Helgi Hjörvar og dóttir hans — aömér er tjáö. Kannski man einhver hvenær þessi mynd var tekin? Reykholt i Borgarfiröi geröi Snorri Sturluson frægt til forna, prestssetur hefur þar lengi ver- iö og nú gerir einnig Reykholts- skóli garöinn frægan. Hér sjáiö þiö mynd af staönum, tekna i júli 1932. Gamli reisulegi burstabærinn stendur þarna enn viö hliöina á Iskólasetri nýju i kastalastil. Bregöum okkur austur i Birt- ingaholt i Arnessýslu. Myndin af þessu gamla stórbýli er á korti Helga Arnasonar og sýnir bæinn áriö 1880. Hinir rauö- og gulbrúnu litir þiljanna fara vel viö grænt umhverfiö. 1 þessum fjölbursta torfbæ ólust upp hinir þjóökunnu Birtingaholtsbræöur — Agúst, Guömundur, Kjartan og Magnús Helgasynir. Geröist Agúst bóndi i Birtingaholti, en hinir þrir prestar — og Magnús siöar lengi skólastjóri Kennara- skólans. — Litum á Sandhólabrú I Eyja- firöi. Hún var byggö sumariö 1933 og myndin tekin i septem- ber þaö ár. Brúarsmiöur Karl Friöriksson. 1 bakgrunni sést undir brúarbogann i prestssetr- iö Saurbæ. Aö lokum er birt gömul mynd, sem Helgi Amason lét taka af kaupstaönum Eskifiröi. Mun byggöin þar hafa breytzt all- mikiö síöan. Prentvillupúkinn brá á leik I þættinum 30. mai. Kappreiöum breytti hann i kappræöur og lausum lokkum I ljósa. Númer þáttarinsvarogaöréttulagi 124 (en ekki 123). Gamli bærinn og skólinn I Reykholti Sandhólabrú Birtingahoit (utn 1890). Birtingaholt (um 1890) Eskifjöröur.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.