Tíminn - 13.06.1976, Síða 7

Tíminn - 13.06.1976, Síða 7
Sunnudagur 13. júni 1976 TÍMINN 7 HELGARSPJALL Kristjdn Benediktsson Alþingi Skammt er slöan Alþingi lauk störfum. Þingiö i vetur var hiö 97. i rööinni frá þvi þaö var end- urreist um miöja siöustu öld. Nú I seinni tiö hefur meira veriö rætt og ritaö um störf Al- þingis, völd þessog viröuleik, en dæmi munu um áöur. Margt af þvi, sem sagt hefur veriö og skrifaö, hefur veriö i litlum vin- semdartón gagnvart þessari æöstu stofnun þjóöarinnar. Vissir aöilar viröast næstum hafa haft þaö sem aöalstarf aö skrifa niörandi um Alþingi, og geralitiö úr þeim mönnum, sem þar sitja og störfum þeirra. Hafa sum af dagblöðum okkar verið óspör á rúm undir skrif af þessu tagi. Vitanlega má benda á eitt og annaö, sem betur mætti fara i störfum Alþingis, og vissulega eru þingmennirnir misjafnir, enda varla viö ööru aö búast, þar sem þeir eru spegilmynd af þjóöinni sjálfri. Gagnrýni er nauðsynieg Gagnrýni er ekki aöeins æski- leg heldur nauðsynleg stofnun eins og Alþingi. En þvi aöeins gerir hún gagn, aö hún sé mál- efnaleg, sanngjörn og jákvæö. Gagnrýniafþvitagi.sem hér er fjallað um, getur aldrei oröiö til annars en ills eins. Þeir sem i alvöru halda þvi fram, aö Alþingisé hin mesta ó- þurftarstofnun og alþingis- mennirnir hafi það helzt sér til dundurs aö finna nýjar og nýjar leiðir til aö skattpina almenning og gera honum lifiö sem leiöast, og séu nánast samsafn ónytj- unga og misindismanna, eru á alvarlegum og hættulegum villigötum. Slikur og þvilikur málflutningur þjónar ekki öðr- um tilgangi en þeim, að rýra traust fólksins i landinu á þess- ari æðstu og nauðsynlegustu stofnun þjóðarinnar og þeim mönnum, sem kjörnir hafa ver- ið i frjálsum almennum kosn- ingum til þess að halda þar um stjórnvöl. Verter fyrir þá, sem vilja viö- halda hér lýöræöi og þingræöi meö frjálsum kosningum aö gera sér grein fyrir, hvaö ætti aö koma i staö Alþingis, þegar búiö væri aö sverta þaö svo f vit- und fólks, og rýra þaö áliti og trausti að það væri ekki lengur færtum aðgegna hlutverki sinu i þjóöfélaginu. Ósanngjörn og neikvæö niöurrifsgagnrýni á Al- þingi og störf þess miöar aö þvi aö veikja þaö stjórnkerfi, sem viö búum viö og fæst okkar vilja raunar missa, þrátt fyrir allt. Alþingi tómiátt Þeim sem þetta ritar, finnst, aö Alþingi sjálft hafi veriö furöu tómlátt að svara þeim árásum, sem þaö heiúr oröiö fyrir. Þd hefur forseti þingsins As- geirBjarnason tekiö upp mynd- arlega málsvörn bæöi I útvarpi og sjónvarpi og hiö sama má segja um fyrirrennara hans i forsetastóli , Eystein Jónsson. Báöir þessir menn, fyrrverandi og núverandi forsetar samein- aös Alþingis, gera sér auösjá- anlega grein fyrir mikilvægi þess, aö Alþingi skipi viröuleg- an sess I vitund þjóöarinnar og störf þess séu metin aö veröleik- um og dæmd af réttsýni og sanngirni. Kristján Benediktsson. Umræður utan dagskrár Þvi verður hins vegar ekki meö neinni sanngirni neitaö, aö alþingismenn sumir hverjir eiga allmikla sök á þeirri vægö- arlausu gagnrýni, sem beint hefur veriö aö störfum Alþingis. Þeir san fýlgdust meö þing- störfum sl. vetur komust ekki hjá aö veita þvi athygli, hve sumir þingmanna eyddu mikl- um tima i langar umræður utan dagskrár, oft af litlu tilefni. Einkum voru talsmenn stjórnarandstööuflokkanna slæmir meö þetta og komu þá gjarnan i ræðustólinn allir þrfr og fluttu nánast sömu ræöuna oft á tiöum. Þessar umræöur tóku stund- um allan fundartimann þann daginn og stundum næsta dag einnig, þótt á hinni prentuðu dagskrá væri fjöldi mála sem biöu eftir afgreiöslu. Viöurkennt skal, aö stundum áttu þessar umræöur utan dag- skrár rétt á sér og geröu gagn, en langoftast virtist vera um aö ræöa einskonar málfundaæf- ingu og keppni milli foringja stjórnarandstööuflokkanna, aö eiga frumkvæöi aö umræöun- um, og halda lengstu ræðuna. Frá afrekunum var svo greint i æsifréttastil i flokksblaöinu næsta dag. z. Þá er enginn vafi á þvl, aö all- ur málatilbúnaðurinn i sam- bandi við stafsetninguna og um- ræöurnar um Z-una vörpuöu verulegri rýrö I augu almenn- ings á Alþingi sem heild, þótt ekki ættu nema nokkrir þing- menn þar sök á. Einmitt um þaö leyti, sem haldnir voru mara- þonfundir daglangt og náttlangt { þingsölum og rifizt um, hvort taKa skyldi aö nýju upp Z i is- lenzku ritmáli, var um fátt meira rætt utan veggja Alþingis en nýjustu fréttir af mikilli skuldasöfnun erlendis og slæmri fjárhagsstööu rikissjóös. Mun mörgum, sem utan veggja voru, hafa fundizt, aö alþingismönnum stæöi nær aö reyna aö finna úrræöi til aö bregöast viö þeim vanda, en aö deila nótt og dag um þaö, hvort hefja skyldi aö nýju aö kenna „heldri manna stafsetningu” I skólum landsins. Löggjöf og landhelgissamningar Aö sjálfsögöu eru alþingis- menn mannlegir og sum mál þeim hugleiknari en önnur eins og gengur. Þótt hér hafi verið drepiö á tvennt ámælisvert I störfum siöasta þings, fer þvi víðsfjarri að störf Alþingis I heild veröi dæmd út frá sliku. A siöasta þingi voru sett mörg merk lög og fjallaö aö nokkru um mikinn fjölda frumvarpa, sem ekki hlutu endanlega af- greiöslu og biöa næsta þings. f þeim flokki eru nokkur þeirra frumvarpa, sem dómsmálaráð- herra, Ólafur Jóhannesson flutti um endurbætur og nýskipan dómsmálanna. Þau mál hafa verið mikiö til umræöu aö und- anförnu og réttmæt gagnrýni komiö fram um, hve afgreiðsla dómsmála sé seinvirk. Sann- leikurinn er hins vegar sá, aö þaö sem vantar er fyrst og fremst meira starfssviö til þess aö hraöa megi afgreiöslu dóms- mála og gera réttarkerfiö skil- virkara en þaö nú er. Þetta kostar hins vegar aukin fjárút- lát. Er þar e.t.v. aö finna skýr- inguna á þvi, aö Alþingi sam- þykkti ekki sum af frumvörpum dómsmálaráöherra. En varla veröur ráöherrann sakaöur um aö hafa ekki gert sitt til að fá fram nauðsynlegar breytingar á réttarf arsk erf inu. Annað, sem mjög setti svip sinn á þingstörfin sl. vetur voru. samningar um landhelgina, en gerðir voru samningar viö Vest- ur-Þjóöverja, Norömenn, Fær- eyinga og Belgiumenn, sem staöfestir voru af þinginu. Þá setti deilan viö Breta vissulega svip sinn á störf Alþingis. Aug- ljóst er, aö mikið starf hefur hvilt á herðum utanrikisráö- herra Einars Agústssonar vegna allra þessara samninga, nú siöast samning viö Breta i Osló. Sá samningur markar þáttaskil og hlýtur þaö aö vera okkur tslendingúm fagnaöar- efni, aö deilan viö Breta skuli hafa leystst á svo farsælan hátt. Hallbjörg efnir til málverkasýningar Allir vita, aö Hallbjörg syngur. Færri hefur grunaö, aö hún málar lika. Fyrir nokkrum árum missti hún röddina (sem jafnaði sig þó, guöi sé lof, innan tiöar), og þá fór hún fyrst aö mála af kappi. Og nú efnir hún til málverkasýningar i Casa Nova, og sýnir alls þrjátiu og tvö verk. Sýningin hefst nú i byrjun vikunnar og stendur til mánaöamóta. Hallbjörgu Bjarnadóttur er sem sé ekki fisjað saman, og þaö verður hreint ekki sagt, að hún sé viö eina fjölina felld, þótt kunnust sé hún af söng sinum. Ævintýri hennar eru orðin mörg — einu sinni rugluðust Sviar á nafninu Bjarnadóttir og Bernadotte og veittu henni viðtökur i samræmi viö þaö. Enda hefur hún sennilega verið jafnvel að viöhöfninni kom- in og þó þaö heföi veriö greifinn þeirra. Og nú er hún sem sagt komin heim meö málverkin sin. Þau eiga hér lika heima eins og nöfnin bera meö sér: Kaupakona, Kaupamaður, Bliöa vor, Viö ána, Kýr á heimleiö, Heysátur, Siöustu beðin. Þau eiga áreiðanlega að meira eða minna leyti ætt að rekja á Skagann, þar sem Hall- björg sleit barnsskónum og hafði ekki hugboð um, að hún átti eftir að verða fræg. Islendingarnir í 5. og 11. sæti — íalþjóðlegri keppni unglinga á reiðhjólum og léttum bifhjólum —hs-Rvik. Dagana 20. og 21. maf sl. fór fram i Vin I Austurriki al- þjóöleg keppni á reiöhjólum og léttum bifhjólum. Fjórir Islenzkir þátttakendur voru I hvorri keppni og lentu þeir i 11. sæti af 18 I reiö- hjólakeppninni en 5. sæti af 12 möguiegum i bifhjóiakeppninni. _ Sigurður Agústsson hjá Um- ferðarráði sagði, að megintil- gangur keppninnar væri að verð- launa sigurvegara i landskeppn- unum, sem væru undanfarar al- þjóöakeppninnar, og auka þannig þátttökuna, sem vonandi leiddi til aukinnar umferöarfræöslu. Keppnunum var þannig hagaö, aö fyrst voru fræöilegar spurn- ingar um umferö og farartæki, en siöan voru verkleg hæfnispróf i sérstökum umferðargarði. Þeir sem tóku þátt i keppninni fyrir Is- landshönd voru: Sveinbjörn Dúa- son, Akureyri, Egill Einarsson, Kópavogi, og Þorkell Guðmunds- son og Tryggvi Þ. Egilsson úr Reykjavik á reiöhjólum, en Þórö- ur Bogason, Magnús Guömunds- son og Jón Sigurður Halldórsson úr Reykjavik og Ólafur Hlöövers- son úr Garöabæ á léttum bifhjól- um. Til þess að mæta umframeftirspurn í orlofsbúðum verkalýðsfélaganna býð ferðaskrifstofa okkar upp á viku eða lengri dvöl á eftirtöldum stöðum á kostakjörum: Laugarvatni, Nesjaskóla, Hallormsstað, Reykjahlíð, Flókalundi og Víðar. Hægt er að fá hálft eða heilt fæði. Skipuleggjum einnig ferðir á fyrrgreinda staði á hagkvæman hátt. Einnig geta viðskiptavinir farið á eigin bílum, Sums staðar verða skipulagðar skoðunarferðir um nágrennið, svo sem á Nesjaskóla, sem ætti að gera dvölina skemmtilegri og gagnlegri. Kynnið ykkur kjörin og dragið ekki að panta, þar sem takmarkað gistirými er á hverjum stað. LANDSÝN-ALÞÝÐUORLOF Ferðaskrifstofa launþegasamtakanna SKÓLAVÖRÐUSTlG 16 SlMI 28899

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.