Tíminn - 13.06.1976, Side 15

Tíminn - 13.06.1976, Side 15
Sminudagur 13. júni 1976 TÍMINN 15 \ ------T SMIDJUVEGI6 SÍMI44544 m KJÖRGARDI SÍMI16975 en þá kom óminnisdvali á mig og hvarfmér veröldin. Höfðu þeir þá talað um að bera mig upp, en ég hafði svarað styggt: „Ég get sjálfur gengið.” Sama höfðu þeir talað um, er upp að kleifunum kom, og ég svaraði hinu sama. Þeir fóru með mig i búð þá, er næst var, og er ég var að fara úr treyjunni, hvarf dvalinn allt i einu og ég man fyrsta orðið, sem ég sagði: ,,Fæ ég nokkurn með mér af piltum minum?” Þeir báðu mig að hugsa ekki um það, og vera rólegur, og skildi ég þá hvernig var. Ég hafði vonað, að einhverjum hefði kastað upp lif- andi af þeim, sem fyrst hurfu þar við sandinn. Mér var sagt, að litið á fjórða klukkutima hefði verið frá þvi að þetta tilfelli skeði við Sandinn og þar til ég kom á land. En Berg- sveinn, er til Ólafsvikur fór, kom aftur út á Sandinn á sömu stundu og ég kom á land. Tveim dögum siðar fannst lik Péturs Péturssonar. Lóðarönglar höfðu fest sig i brók hans og þvi hefir hann kallað: „Haldið ekki i Vegna hagræðingar og betri aðstöðu í nýjum húsakynnum að Smiðju- vegi 6 hefur okkur tekist að lækka framleiðslukostnaðinn verulega: Bergamo Sófasettið hefur nú lækkað í verði um kr. 53.000 Staðgreiðsluverð í dag kr. 179.000 Bergamo er nýtízku sófasett í „Airliner’’ stíl. Traustbyggt, afburða þægilegt og fallegt. Meiri framleiðsla — betri vara — lægra verð Hergilsey á Breiðafirði, þar sem Snæbjörn átti heima. þrif til annarrar neglunnar og næ henni úr. Við það kyrrðist bátur- inn og hvolfdi ekki um stund. Ég var i skutnum, og Andrés frammi ibarka, og var þá mun hægra. Við héldum okkur og stungum höfð- um undir hverja báru, en drógum andann i milli, og gátum talað saman fá orð i bili, t.d. spurði ég hann, hvort hann væri nú ánægð- ur að deyja með mér, og kvað hann já við þvi. „Ég er ánægður, þó við fylgjumst að,” sagði hann, „okkur hefir alltaf fallið vel.” Svona leið nokkur timi, ef til vill allt að hálftimi. En allt i einu, er ein holskeflan reið yfir, heggur báturinn niður á steini eða klett, sem þar er á tanganum norðan við lendinguna, og kastast um á augabragði. Báðir komumst við á kjölinn aftur. Reið þá jafnharð- an önnur bára yfir, og gat ég haldið mér föstum á kilinum, en er hún var af gengin, var Andrés ekki hjá mér. Hann hafði slitnað af og sokkið. Nú var ég eftir einn, og munu þá hafa verið liðnir fullir tveir klukkutfmar, að mér var sagt sið- ar. Ég gat litið hugsað um annað en að reyna að bjarga lifinu meðan hægt væri. En ég man, að hugur- inn flaug heim til foreldra minna, og bað ég guð að hugga þau, þvi nú misstu þau mig, eina barnið, er þau hefðu átt. Ég man lfka, að ég bað guð fyrir foreldrum hinna , er dánir voru. Nú var ég orðinn svo þreyttur, að engu tali tók. Hendurnar dróg- ust eftir kilinum, þegar bárurnar buldu á, og stundum losnaði ég við bátinn, en náði honum aftur. En oft fannst mér brjóstið ætla að rifna, er ég var niðri i kafinu. Ég átti erfitt með að komast upp, til að ná andanum, þó ég brytist um af alefli. Og siðan gat ég ekki, þegar upp kom, dregið andann nema örfáum sinnum i bili, þang- að til bára gekk yfir aftur. Þá var það um það leyti, að bára sló mér á kjalarhæl bátsins á brjóstið. Ég man ég rak upp hljóð, þegar höfuðið kom upp úr sjónum, höggið var svo þungt og sárindin mikil. En þau liðu frá og brjóstið eins og dofnaði, svo ég gat haldið áfram að bjarga mér. Um það bil sá ég bát koma framan af miðum og nærri upp til min, auðsjáanlega til að athuga, hvort lendandi væri. Þar var hann um stund og ég vissi, að mennirnir sáu mig öðru hvoru. Ég veifaði til þeirra hendinni tvisvar, en hugsaði með mér: „Þeir skulu ekki geta sagt, að þessi maður, sem þeir horfa á, hljóði til þeirra.” Þeir máttu ekki koma til min, það var ófæra. En þeir áttu að reyna til að bjarga, með þvi að láta bárurnar bera dufl á streng upp til min, i' þeirri von, að ég kynni að ná i það. En þeir undu upp segl og sigldu inn i Rif. Svo frétti ég siðar, að for- maðurinn hefði bannað mönnum sinum að geta þess, að þeir hefði séð neitt til min, en allt komst upp, og það var, að formaður áleit ómögulegt að viðhafa neinar björgunartilraunir. Eftir það vissi ég minna hvað leið, en ég hafði fullt ráð á þvi að verja andrúmið, þá er ég var i kafinu i' hvert sinn, þó að mér fyndist brjóstið stundum ætla að rifna. En oft kom ég upp i þeim svifum, er að þroti var komið. Þó vissi ég, að kraftarnir voru að smálamast. Þegar svo var komið, sá ég ná- lega engan mann koma ofan á bakkana, og sögðu þeir mér siðar, að þeir hefði ekki viljað láta þennan mann, hver sem hann var sjá sig, og margir hefði óskað, að dauðastriði hans lyki sem skjót- ast, úr þvi engin ráð væri til björgunar. En nú hefir bátinn rekið upp, þó ég vissi það ekki, þvi eitt sinn, er báran hafði rekið mig af bátnum og ég kom upp svo sem faðms- lengd frá honum og ætlaði að ná i hann aftur, gat ég það ekki. Næsta bára tók mig i kafið og fór ég þá til botns, enaldreiáður. Þar varsandur. Nú vaknaði ný lifsvon og brauzt ég um af alefli, komst upp og gat náð andanum meðan næsta bára var að risa. En er hún tók mig, kom ég aftur niður á sand og reyndi að grafa niður hendurnar, þegar ég fann að út dró. „Nú er með guðs hjálp að reyna að ná landinu,” hugsaði ég, og gjörði það, sem ég gat fram- ast. Það var lifsvon, sem jók mér aflogáræði,égvissi, að nú var ég nærri lentur, enda var það svo. Þegar næsta bára hafði tekið mig og dró út aftur, var ég á knjám og höndum i sandinum á þurru landi. Þá heyrði ég kallað fyrir ofan mig: „Stattu ekki upp!” 1 þvi skall næsta bára, og a§ henni lok- inni var ég nær manninum, og enn kallar hann: „Stattu ekki upp!” Hann sá, að ég ætlaði að reyna það. En þá kom siðasta báran ogfleytti mér til mannsins. Ég lá þá á bakinu og náði í brók hans, og um leið náði hann hand- festu á mér. Þessimaður var Jóhannes, for- maður af hinum bátnum. Hann hafði bundið sig i vað, en aðrir héldu i cíar, og stóð svo framar- legasem unnt var, enda hélt hann mér þarna meðan sjórinn flanaði upp fyrir hann á sandinn. Leiddi hann mig svo upp, að óhætt var, og hleypti sjó úr brók minni. Þar til hafði ég allt ráð og rænu, Bændur ''O.M'-' Til sölu hænuungar á öll- um aldri — einnig dag- gamlir. Við sendum til ykkar um allt land og nú er bezti timinn til að endur- nýja hænurnar. Skarphéðinn — Alifuglabú Blikastöðum I Mosfellssveit. Simi um Brúarl. (91-66410). A BÓRNINI SVEITINA Heklupeysur Heklubuxur Denimsett Ullarhosur Strigaskór Stígvél Sfyðjum íslenzkan iðnað cylusturstræti

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.