Tíminn - 13.06.1976, Page 16
16
TÍMINN
Sunnudagur 13. júni 1976
Rif á Snæfellsnesi, þar sem nú er höfn og þorp.
Hellissandur á Snæfeilsnesi, þar sem slysiö varö.
mig,” eins og áöur er getið. Aðrir
fundust ekki.
Ég var við jarðarför hans og
lagði svo af stað gangandi til
Stykkishólms-og Bergsveinn með
mér. Við komum laugardag fyrir
páska til Flateyjar, en það var
erfið ferð, þvi ég var svo lasinn,
bringubeinið brotið, sagði læknir,
og stórlega marinn á báðum hlið-
um.
Það var einu sinni eftir aö ég
var nýlega kominn heim, aö ég
var á gangi úti við mér til
skemmtunar, þvi vinnu þoldi ég
ekki fyrst um sinn. Þá mætir
amma min mér, horfir fast á mig
og segir: ,,Það, sem nú er fram
komið, var það, sem hann Torfi
sagði fyrir andlát sitt. Þetta sá
hann allt og sagði frá þvi i óráð-
inu. En ég áleit ekki rétt að segja
frá þvi, fyrr en þaö kæmi fram,
enda hefi ég oft óskaö, að það
væri tóm markleysa.”
Eftir þetta man ég aldrei eftir
þvi, að amma varaði mig við
sjónum.
En áöur en ég skil algjörlega viö
þennan þátt, vil ég geta þess, er
kom fyrir i Flatey, sama dag og á
sömu stundu dagsins og ég var að
velkjast i brimgarðinum undir
Jökli.
Ingimundur Jónsson I Fiatey
kom þennan sama dag undan
Jökli, hafði róið þar um veturinn,
en fór heim fyrir páskana, til
Flateyjar. En er hann var á leið
heim til sin frá sjónum, verður
honum litið þar út á bótina, og
rekur uppóp nokkurtog biður guð
að hjálpa sér, og var nær fát á
honum. Hann segir: „Þarna er
hann Snæbjörn að farast með öll-
um mönnum sinum. Ég horfi á
það, sjáið þið þetta ekki?” segir
hann við þá, sem viðstaddir voru.
Þetta horfði hann á örlitla stund,
þar til sýnin hvarf. Ég hefi oftar
Húnvetningar Reykjavík
Aðalfundur Húnvetningafélagsins i
Reykjavik, verður haldinn i félagsheimili
þess að Laufásveg 25, þriðjudaginn 22.
þessa mánaðar, og hefst kl. 20,30.
Dagskrá: Aðalfundastörf.
Stjórnin.
9S FERÐASKRIFSTOFA
RÍKISIAS
Snæfellsnes og Vestf irðir
Kynnist náttúrufegurð Snæfellsness og Vestfjarða. Ferðaskrifstofa ríkisins
efnir til 7-daga hringferða um Snæfellsnes, Breiðafjörð, Barðaströnd og
Vestfirði til ísafjarðar; heim um Djúpveginn nýja, Laxárdalsheiði og
Borgarfjörð. Kunnugur leiðsögumaður verður með í förinni, gist á
hótelum. Verð kr. 54.900 á mann, allt innifalið. Brottför 20. og 27. júní,
4., 11. og 25. júlí. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni, Reykjanes-
braut 6, simar (91) 1.1 5.40 og 2.58.55.
"
Bifreiðaeigendur
Eigum mikið úrval af sóluðum hjólbörð-
um á góðu verði.
Einnig nýja hjólbarða i flestum stærðum
Sendum í póstkröfu
Fljót afgreiðsla
Gúmmívinnustofan
Skipholti 35 — Simar 31055 og 30360
en einu sinni spurt Ingimund um
þeitaog hefirhann alltaf sagt eins
frá. Þessum fyrirburöi eða sjón
Ingimundar var ha.'dið leyndri.
En þó kom grunur með vöruskipi,
er kom til Flateyjar næstu daga.
Norðmenn sögðu manntjón undir
Jökli.
Dagana eftir gat Ingimundur
þess til, að ég mundi lifandi, þótt
slys hefði orðið á mönnum héöan.
Ég spurði hann siöar, af hverju
hann hefði dregið það. Hann
sagði, að eftir sýnina hefði hann
ekki minnzt þess, að hafa séö mig
með hinum er voru að farast.
Vaka eða víma
Um hvað á að fræða?
Hvað er hlægilegt við
drykkjuskapinn? Svo var spurt i
Lesbók Morgunblaðsins nýlega.
Og svo er sjálfsagt spurt viðar.
Einhver kynni að vilja svara
þessu sem svo að stundum séu
drukknir menn hlægilega vit-
lausir... Þó mununú flestir hafa
þá reynslu af drykkjuskap ein-
hverra, sem þeim er ekki sama
um, að þeim sé fremur I hug
annað en hlátur þegar rætt er
um drykkjuskap. Þaö þarf held-
ur ekki mikla ölvun til þess að
deyfa og sljóvga þá eiginleika
sem einkum greina mann frá
skepnu.
t Lesbókargreininni kom
fram mikil trú á fræðslu um á-
fengismál. Auövitaðer fræðslan
góð — og I þeim efnum er margt
vanrækt. En um hvað þarf helzt
að fræða?
Vissulega vita það allir sem
sjá mannllf þessa lands opnum
augum að drykkjuskapur getur
veriö ljótur og hættulegur. Það
vissu ógæfumennirnir áður en
þeir byrjuðu. Hitt hafa þeir
e.t.v. ekki vitað hversu mikill
hluti þeirra sem snerta áfengi á
annað borð veröa ógæfumenn.
Þeir hafa ef til vill ekki vitaö
að i landi þar sem aögangur að
áfengi er jafn auöveldur og hér
og tilefhi til drykkju jafn mörg
verður 1 af hverjum 10 áfengis-
neytendum það sem læknar
kalla áfengissjúklingur áður en
lýkur.
Þaö eru ekki templarar sem
hafa talið þetta saman og reikn-
að út. Það hafa læknar gert. En
templarar hafa reynt að fræöa
menn um niöurstööurnar.
Þeirhafa e.t.v. ekki vitaö það
heldur aö verulegur hlijti þeirra
sjúklinga hefur allt til þessa
reynzt ólæknandi hvar sem er i
veröldinni.
Þeim hefur ef til vill ekki
heldur veriö bent á það, að sam-
kvæmt þessu vinnur bindindis-
hreyfing, sem heldur þúsund
mönnum frá þvl að drekka
fyrsta staypið, það mann-
bótastarf að vernda 200 manns
frá vandræðum, skömm og
skaða, vegna áfengisneyzlu
sjálfra sin og fækkar jafnframt
áfengissjúklingum þjóðarinnar
um eitt hundrað.
Þessi sannindi eru þeim húlin
sem tala um áhrifaleysi bind-
mdishrey fingarinnar.
Þeir vita ekki aö bindindi er
björgunarstarf.
Þó aö bindindishreyfingin nái
ekki að móta að sinum smekk
nema einn mann af hverjum 10,
dugar það þó til þess að fækka
islenzkum ógæfumönnum um
tvö þúsund samkvæmt athugun-
um þeirra lækna, sem einkum
sérhæfa sig á þessu sviði.
1 þessu sambandi er rétt að
minna á að um það bil hálf þjóö-
in er innan við 25 ára aldur og
þvi eiga tölurnar um sjúklinga-
fjöldann ekki við I dag en við
sjáum að hverju fer.
Ógæfumennirnir, áfengis-
sjúklingarnir eöa hvað sem þeir
eru kallaðir, vissu það fyrir-
fram, að sumir fara illa af á-
fengisnautn. Þeir hafa vanmet-
iðáhættuna. Þeimhafa brugðizt
vonirnar aö verða sjálfir I þeim
fjórum fimmtu hlutum áfengis-
neytenda, sem hafa vald á
drykkjuhneigö sinni. Þeir von-
uðu aö það yrðu bara einhverjir
aðrir, sem drykkju sér til skaða.
Eða vonuðu þeir að það yrðu
alls engir.
Fræðslan er góö. En við skul-
um gera okkur grein fyrir þvi
um hvað á að fræða.
H.Kr.
CONCERTONE
Fyrsta flokks
.. "
CO^L t )1
amerIskar
„KASETTUR"
ó hagstæðu
verði:
C-90 kr. 515
C-60 kr. 410
Sendum gegn
postkröfu hvert ó land sem er
*
ARMULA 7 - SIMI 84450