Tíminn - 13.06.1976, Blaðsíða 23

Tíminn - 13.06.1976, Blaðsíða 23
Sunnudagur 13. júni 1976 TÍMINN 23 © Sigurvin Halldór jafnir. Ég reyndi að teygja fundinn, ef vera kynni að einhver kæmi, sem kysi Halldór, því að ég vildi ekki fyrir nokkra muni ná kosningu. Jú, loksins kom einn, sem kaus Halldór, og þar með var hann búinn að fá . nítján atkvæði. Nú ætlaði ég að slita fundinum, en rétt i þvi • snaraðist maöur inn á fundinn og kaus mig, hátt og snjallt. Nú vor-. um við aftur jafnir, og enn reyndi* ég að draga fundinn á langinn. Loks kom maður á fundinn og • kaus Halldór, og alveg á hæla honum annar, sem kaus mig! Ennþá einu sinni vorum við Hall- dór Steinsson jafnir: Tuttugu at- kvæði á móti tuttugu. Fleiri komu ekki á kjörfundinn, hvernig sem ég beið og beiö. Þaö var þvi ekki um annaö aö ræða en aö slita fundinum og láta fara fram hlut- kesti. Og ekki var aö spyrja aö þvi: Minn hlutur kom upp, ég var kosinn i hreppsnefndina meö hlutkesti. Þegar skóli var úti, þurfti ég að fara til Reykjavikur i atvinnuleit, eins og önnur sumur, en kom aft- ur heim i ólafsvik að áliðnu sumri. Þá var haldinn hrepps- nefndarfundur, og nú kusu póli- tiskir andstæöingar minir mig fyrir oddvita. Þá leiztmér ekki á blikuna, þaö segi ég satt. Um þetta hef ég í rauninni ekki fleira að segja, nema að ég fluttist al- farinn frá Ólafsvik árið eftir! Hættan af hersetunni er geigvænleg — Þú hefur getaö tekið þér i munn llnur úr kvæði eftir Þor- stein Erlingsson: „í þjóðmáiin steyptist ég þvi miður brátt/og þar varð ei hleypt undan blaki....” — Ég veit ekki, hvort þetta á sérstaklega viðmig, þvi aö ég fór aldrei neitt djúpt i þjóömálin, þótt ég fylgdi Framsóknarflokknum að málum og ynni dálitið fyrir hann. Ég tel ekki aö ég færi i framboð fyrir flokkinn fyrr en ár- ið 1949, og var þá orðinn 49 ára gamall. Ég bauð mig þá fram i Barðastrandasýslu á móti gisla Jónssyni, hinum ágæta og dug- lega þingmanni. Framboð mitt bar ekki árangur tvö fyrstu skipt- in, en árið 1956 var ég kosinn á þing. — Það fór vel á meö okkur Gisla Jónssyni. Liklega hef ég stundum verið dálitið striðinn, en ekki var rifrildiö hjá okkur. Ég held, að okkur hafi verið vel hvor- um við annan. Eftir að kjördæmabreytingin var komin á, varð miklu erfiöara að halda lifandi sambandi við kjósendur sina. A meðan ein- menningskjördæmin voru við lýði, hafði ég sama sið og Gisli Jónsson, að ég heimsótti hvert heimili i sveitum Baröastranda- sýslu á hverju ári. Þótt þetta væri dálitið erfitt, þótti mér það alltaf ánægjulegt, og ég held að það sé mjög mikils virði að þingmenn haldi uppi sem nánustu sambandi við kjósendur sina. Það er allt annað að hitta menn heima hjá sér en á opinberum fundum. — En hvað var þér nú efst i huga, — fyrir hverju vildir þú berjast, — þar sem þú varst nú kominn inn á Alþingi? — Auðvitað átti ég mér mörg áhugamál, eins og aðrir menn, en þaö voru lfka á ferðinni mál, sem ég vildi berjast gegn. Þar vil ég fyrst og fremst nefna hersetu i landiokkar. Ég tók þátti samtök- um gegn hersetunni, strax og hún átti sér stað, og hef fylgt þeim málstað siðan. Ég held að ekki fari á milli mála, að það hafi ver- ið mjög mikill óhappaatburður, þegar herinn kom hingað. Ég lft svo á, aö hernum hafifylgt andleg og e&iahagsleg sýking, jafnvel ekki ólik þvi, þegar berklarnir voru að leggja undir sig landið á sinum tima. Reyndar held ég að fólk sé nú loksins að byrja að sjá það, aö þessi her er hér ekki i þágu íslendinga, — og hefur aldrei verið það. Það hafa meöal annars landhelgisdeilurnar sann- aö. Herinn er sannarlega hættu- legur á friðartimum, en á ófríðar- timum er hann beinlinis geigvæn- legur sem skotmark fyrir kjam- orkusprengjur. Þrjátiu og fimm ára herseta hefur mengaö is- lenzkt andrúmsloft, — og hvernig verður það andrúmsloft orðið, ef hersetan varir i niutiu og niu ár, eins og Bandarikin kröfðust, og ýmsir Islendingar virðast stefha að? Baráttan við Bakkus — Fleira mun þaðhafa verið en hersetan, sem þú vildir gjarna berjast gegn? — Já, rétt er það. Ég hef lika alltaf viljað berjast gegn áfengis- neyzlunni i landinu. Ég ólst upp á bannárunum og tel það mikla hamingjufyrirmig. Þegar ég var aö alast upp, þekktist ekki drykkjuskapur i minni sveit, og þar sást aldrei vin á nokkrum manni. Þegar ég var kominn á þing, myndaðist fljótlega samstaða á milli min óg þingmannanna Péturs Ottesens og Alfreös Gisla- sonar læknis, sem þá sátu xáðir á Alþingi, um að vinna saman að umbótum I áfengismálunum. Fýrsta málið sem ég flutti á Al- þingi, fjallaði um áfengismál, en það var auðvitað kolfellt. £vo hurfu þeir af þingi, Alfreð og Pét- ur. Nokkru siöar kom áfengi bjór- inn til umræðu á Alþingi, þvi að ýmsum var hugleikiö að fá hann bruggaðan og seldan hér. Ég barðist af alefli gegn þeim hug- myndum, og svo fór, aö þessar tillögur náðu ekki fram að ganga, þótt þær værú bomar fram ár eft- ir ár, en tæpt stóð það siðast, þvi að þá var tillaga um þetta efni felld i neðri deild meö eins at- kvæðis mun. — Mér lízt ekki á ástandið i þessum efnum, eins og það er núna, og ekki myndi það batna, ef áfengur bjór bættist við allt það flóð sem fyrir er. — Er ekki áfengi oft haldið að þingmönnum, til dæmis í opinber- um veizlum? — Arið 1958 fór ég ásamt nokkr- um öðrum alþingismönnum til Rússlands i boöi Æðsta ráðsins. Áður en lagt var af stað, segir einn þingmaður við mig: „Nú verður þú að drekka vodka i Rússlandi.” „Nei, það geri ég ekki”, svaraði ég. ,,Þú verður til neyddur,” sagði hann, „annars verður þú drepinn, og Rússar eru nú ekki að tvinóna við það.” Þegar til Rússlands kom, voru móttökur hinar glæsilegustu. Eitt sinn vorum við á mikilli útisýn- ingu i Moskvu. Þar voru bomar fram veitingar, þar á meðal vodka. Þá dró ég mig út úr hópn- um,settist afsiðis á bekk og borð- aði ávexti. Brátt kom forseti æðsta ráðsins, sem með okkur var, til min með flösku og staup og bauö mér hressingu, sem ég afþakkaði. Hann leitaði þá fastara á, en afþakkaði enn. Samt vildi hann ekki láta sig. Nú er komið að aftökunni”, hugsaði ég. Greip ég þá til þess ráðs, að ég tók upp tóbaksdósir minar, fékk mér i nefið og bauð honum með mér. Jú, hann þáði það, en þá fékk hann ofsalegan hnerra, greip um nefið og hélt á brott. — Þarna taldi ég mig hafa sigrað Sovétrik- in! Sýnum þjóðinni rétta mynd af Alþingi — En hvernig var hið daglega lif á Alþingi. Voru menn ekki beztu vinir og gáfu hver öðrum i nefið, um leiö og þeir höfðu lokiö viö að deila hver á annan? — Jú, mörgum stjórnmálaand- stæðingum minum hef ég gefiö i nefið, og yfirleitt er persónulegt samkomulag manna gott og skemmtilegt á Alþingi. Hvað það snertir tek ég samflokksmenn mina ekkert fram yfir and- stæðingana. 1 öllum flokkum fyrirfinnast ljómandi skemmti- legir menn og hinir beztu drengir. Hinu er ekki að neita, að oft var hart deilt, og var ekki verið að klipa utan af þvi, sem and- stæðingarnir voru látnir heyra. En þetta var gagnkvæmt, og ekk- ert við þvi að segja. Svo, þegar komið var út úr dyrunum, var allt slétt og fellt, eins og viö værum hásetar á sama báti, — sem við lika vorum. A þessum árum fengust lika ýmsir þingmenn við yrkingar, og man ég þar sérstaklega eftir Skúla Guðmundssyni, Karli Kristjánssyni og Jóni Pálmasyni. Sú skoðun er talsvert útbreidd, aö á Alþingi sitji menn sem hat- ast, og aö þar logi allt i illvigum deilum. Þetta er hinn mesti mis- skilningur. Enn fremur halda sumir, að aðalstarfið séu um- ræðufundirnir, en þaö er ööru nær. Aðalvinnan eru nefndastörf- in, og þar var oft unnið vel, enda ermest undir þvi komið.aðþar sé ekki slegið slöku við. 1 þessu sambandi vii ég taka það fram, að ég álit, að enginn al- þingismaður eigi að hafa neitt annað starf með höndum en þing- mennskuna. Ef hann gegnir ein- hverju öðru embætti jafnhliða, verður útkoman venjulega sú, að hann vanrækir þau bæði. Þing- mennska er alveg fullkomið starf, — á meðan þing situr, — og á sumrin þarf þingmaðurinn að ferðast um landið, kynna kjós- endum sinum þau mál, sem á döf- inni eru, og kynna sér óskir og þarfir kjósendanna. Sumt fólk dæmir Alþingi eftir útvarpsumræðum, jafnvel þegar vantrauststillögur eru á dagskrá. Slikter bláttáfram fáránlegt. Ég held aö það yrði til mikilla bóta, ef sá háttur yrði upp tekinn aö sjónvarpa beint frá Alþingi, þeg- ar engar deilur eiga sér stað, þvi að það er langsamlega algengast, og þannig fengi fólkið i landinu sannasta mynd af löggjafarsam- komu sinni. — Þú ert þá væntanlega and- stæður þeirri hugmynd, sem er furðu lifseig, að þeir sem gefa sig að stjórnmálum, séu oftast hálf- gerðir gallagripir, úlfar eða refir, eöa helzt hvort tveggja? — Ég held þeir næðu varla kosningu, ef þeir væru það. Stjórnmálamenn eru eins og fólk er flest, auðvitað misjafnir, en upp og ofan, hvorki verri né betri en allur almenningur. Hinu neita ég ekki, að á feröum minum um landið hef ég kynnzt fjölda manna, sem eru ekki siður hæfir til þingmennsku en þeir sem ég kynntist á Alþingi. Viða um byggðir landsins er að finna stór- gáfaða menn, sem fylgjastprýði- lega með, en láta þvi miður litið á sér bera. Enn langar mig að nefria eitt, sem ég er ekki ánægður með i okkar stjórnskipulagi. Ég vil að ráðherrar séu ekki þingmenn, — eða að þingmenn séu ekki ráð- herrar, ef menn vilja heldur orða það þannig. Þegar þingmaður verður ráðherra, á hann að leggja niður umboð sitt, og varamaður hans að taka við. Og ef ráðherra leggur niður embætti sitt á kjör- timabilinu, á hann að taka við þingmennskunni aftur. Það fylgir þvi veruleg freisting að vera ráð- herra og hafa mikil völd, jafn- framt þvf að vera þingmaður kjördæmis sins. Og mér finnst engin ástæöa til þess að freista manna þannig til þess að skara eld að sinni köku. Afkomendahópurinn er orðinn stór — Við höfum nú rætt hér tals- vert mikið um afskipti þln af opinberum málum. En ég'mætti ef til vill spyrja þig svolitið að lokum um fjölskyldu þfna og einkahagi? — Já, það er velkomið. Eins og ég held ég hafi minnzt á hér að framan, þá gekk ég i hjónaband árið sem ég útskrifaðist úr Kennaraskólanum.Konan min er skólasystir min og hafði útskrif- azt úr skólanum einu ári á undan mér. Hún heitir Jörina Jónsdóttir og er frá Blönduholti i Kjós. Hún var kennari i ólafsvik siðustu fimm árin sem við vorum þar, og eftir það stundaði hún nokkuð kennslu hér i Reykjavik. Við eignuðumst sjö böm, og sex þeirra náöu fullorðins aldri, þau eru nú öll orðin fullorðið fólk fyrir löngu. Elzta barnið er komið yfir fimmtugt, og barnabörnin eru oröin tuttugu og sex, svo þetta er oröinn all stór hópur, þegar barna-barnabörnineru talin með, en þau eru þegar orðin nokkur. Ég neita þvi ekki, að framan af árum var hinn fjárhagslegi róöur talsvert þungur, en það lagaöist smám saman, og seinna, þegar ég hafði um nóg störf að velja, þá gekk þetta allt miklu greiðlegar. Heilsa min hefur verið góð, þang- að til núna fyrir fjórum árum, en nú erum við hjónin bæði oröin gamalmenni. Ég er oröinn sjötiu ogsex ára gamall. Ég er búinn að lifa tvær heimsstyrjaldir, og nú finnst mér ég vera aö lifa mikla erfiðleikatima i lifi þjóðar minn- ar. Ég hlýt að játa, að mér lizt ekkert á útlitið, eins og það er núna, og hræddastur er ég þó viö skuldasöfnunina við útlönd. Ég veit ekki hvernig þjóðir fara að þvi að glata efnahagslegu sjálf- stæði sinu, ef ekki með þvi aö safna skuldum erlendis i óhæfi- legum mæli. Fleira mætti nefna, en ég ætla að sleppa þvi að sinni. — Já, vfct hefur gengið á ýmsu á liðnum árum ogáratugum, það vitum við báðir. En hvernig er þér nú i hug, þegar þú lítur yfir starfsdaginn? — Ég er ánægður með lif mitt, það hefur lang oftast verið bjart i kringum mig og fólk mitt. Og þegar ég lit á heildina, blasa við framfarir og umbætur i miklu stærri stil en mig heföi nokkurn tima getað órað fyrir, þegar ég var ungur maöur, þótt þá væri vissulega vor i lofti i þjóölifinu. Ég virði fyrir mér börnin, sem ég mæti á förnum vegi núna. Þau eru glöð, hraustleg og vel klædd. Allt fas þeirra og útlit ber vott um góða liðan og sæmilegan, ef ekki góðan, efnahag foreldra þeirra. Þau búa að minnsta kosti viö miklu betri kjör en við, þegar við vorum ung, ég og jafnaldrar min- ir. Ég lit björtum augum til fram- tiðarinnar. Ég efast ekki um aö þjóðin muni sigrast á þeim erfið- leikum sem nú ganga yfir. ís- lendingar eru vel gefin þjóð, og kjarninn i þeim er góður. Ég leyfi mér þess vegna aö trúa þvi, að þeir muni sigrast á áfengisbölinu, hætta að sóa gjaldeyri eins og óvitar, og — að þeir muni af- greiða hallalaus fjárlög I framtið- inni. Vel má vera að þetta lagist ekki á minum dögum,þvi' að þeim fer nú að fækka, en ég efast ekki um, að það muni lagast. Það get- ur hæglega tekið þjóðina dálitinn tima að sjá að sér, en hún sér að sér samt. —VS. FAIASftÁfAft Skrifborðs- sett allar stærðir Svefnbekkir Toddy- sófasettin STÍL-HÚSGÖGN miiurL L'i i n t-:»a*. r\r> skókerslun PETURS /4NDRÉSON4R er fluíf aó LMJGAVEGI Kvenskór, brúnir Verö frá kr. 3.990 Karlmannaskór Verð frá kr. 2.900 Póstsendum. Erum fluttir á Rauðararstíg 1 sími 2o8 2o Seljum stöðluð eyðublöð, skrifstofuvörurr umslög og pappír í miklu úrvali. Sjáum um hönnun og prentun eyðublaða. J EYÐUBLAÐATÆKNIL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.