Tíminn - 13.06.1976, Side 28

Tíminn - 13.06.1976, Side 28
28 TÍMINN Sunnudagur 13. júni 1976 Evrópumet á sjó- stangaveiðimóti í Vestmannaeyjum? gébé Rvik. — Taliö er aö nýtt Evrópumet hafi veriö sett i sjó- stangaveiöi á mótisem haldiö var i Vestmannaeyjum á hvitasunnu- dag. Þetta hefur þó ekki fengizt staðfest ennþá. Bogi Sigurösson, Vestmannaeyjum dró ails 491,4 kg, sem er mun meira en gamla metiö segir til um, en þaö var sett á Northsea-festival árið 1970, og var 402,6 kg. Þorbjörn Pálsson, formaöur Sjóstangaveiöifélags Vestmannaeyja, sagði viö Tim- ann nýlega, að beðið væri eftir staöfestingu á meti þessu. Þor- björn gaf Timanum einnig upp úrslit i sjóstangaveiöimótinu og fara þau hér á eftir. — Mótið fór fram i bliðskapar- veðri, sagði Þorbjörn, en þátttak- endur voru 24, frá Akureyri, Reykjavik, Keflavik og Vest- mannaeyjum, ein sveit frá hverj- um stað nema að þrjár voru frá Eyjum. Fjórir bátar voru notaðir viö veiðarnar, en út á miðin var haldið klukkan rúmlega sex á hvitasunnudagsmorgun og komið aftureftir u.þ.b. átta tima útivist. Bogi Sigurðsson Vestmanna- eyjum dró mestan afla, eða 491,4 kg, en Óskar Jónsáon, frá Akur- eyri, varð i öðru sæti með 490,3 kg eða aðeins 1100 gr. minni afla. Langmestveiddist af ufsa, en afli Boga skiptist þannig: Þorskur 76,5 kg. Lýsa 0,8 kg, Ufsi 407 kg, Karfi 1,1 kg og Keila 6,0 kg. Aflahæsta sveitin varð sveit Akureyringa, sem dró alls 1.363,9 kg og Keflavikursveitin varð i ööru sæti með 1.129,8 kg. byngsti fiskurinn sem dreginn var, reyndist vera þorskur, slétt 10 kg, en hann dró Hjálmár Eiðs- son, Vestm. Að öðru leyti voru þyngstu fiskar hverrar tegundar þessir: Steinbitur 1,6 kg sem Halldór Jónsson Vestm. dró, langa 2,2 kg s'em Gréta tJlfarsdótt- ir, Keflavik dró, keila 8,0 kg sem Þorsteinn Þorsteinsson, Vestm. dró, karfi 2,6 kg sem Sveinn Jóns- son Vestm. dró, ufsi 2,6 kg sem Gunnar Loftsson, Vestm. dró, lýsa 1,7 kg sem Vilhjálmur Þórs- son Reykjavik dró og ýsa 2,7 kg sem Þorbjörn Pálsson Vestm. dró. Tvær konur tóku þátt i mótinu, báðar frá Keflavik, Margrét Helgadóttir, sem dró alls 336 kg og Gréta Úlfarsdóttir sem dró 201,3kg. Flestar fisktegundir dró Kristinn Jóhannsson, Akureyri, eða sjö tegundir, flesta fiskana dró Óskar Jónsson, Akureyri eða alls 476stykki. Alfahæsti báturinn var Þristur VE með 2,6 tonn en heildarafli allra keppenda á mót- inu varð 6,1 tonn. Um kvöldið fór fram verð- launaafhending og siðan var haldinn dansleikur eftir miðnætti. Þetta er fyrsta sjóstangaveiði- mótið sem haldið er i Eyjum eftir gos,en Þorbjörn Pálsson sagði að áætlað væri að halda alþjóðlegt mót á næsta ári. Slik mót hafa oft verið haldin i Eyjum áður. Þá er ekki úr vegi að geta þess, að ís- lendingar eru handhafar nokk- urra Evrópumeta i sjóstanga- veiði i dag, og eins og áður er get- ið, eru sterkar likur á þvi að enn eitt bætizt i það safn. Kirkjuhátíð í Glaumbæ AS-Mælifelli. A þrenningarhátið, sunnudag iverður minnzt 50 ára vigsluafmælis Glaumbæjar- kirkju á Langholti. Staðar- presturinn, séra Gunnar Gisla- son, fyrrverandi alþingismaður prédikar og Jón Björnsson, tón- skáld frá Hafsteinsstöðum, leikur á orgel og stýrir söng. Séra Agúst Sigurðsson á Mælifelli flytur er- indi um staöinn, en Glaumbæ sá tu stórbændur og höföingjar fram til siðaskipta er þar varö prestsset- ur. Glaumbæjarprestar voru nær allir lengi á staðnum, jafnvel allt að 60 árum, en aðeins einn þeirra sótti burt, séra Halldór Jónsson, prófastur, er fór að Hofi i Vopna- firði, nafnkenndur þjóðmála- skörungur. Mikil veðurbliða hefur verið i Skagafirði i þrjár vikur og horfir vel um gróður. Er sumarlegt i sveitum og fólkiö bjartsýnt. Aðalfundur banda lags ra leikfélaga AÐALFUNDUR bandalags is- lenzkra leikfélaga verður haldinn i Félagsheimilinu á Seltjarnar- nesi dagana 12. og 13. júni nk. og hefstkl. 13. A fundinn mæta full- trúar um 60 félaga alls staöar aö af landinu. Leiksýning verður i Félags- heimilinu á Seltjarnarnesi laug- ardaginn 12. júni kl. 21 I tilefni af aðalfundinum, en er öllum opinn. Þar sýna leikfélög Hveragerðis og Selfoss Atómstöðina eftir Hall- dór Laxness i leikstjórn Steinunn- ar Jóhannesdóttur, leikmynd eftir Gylfa Gislason. Aðildarfélög bandalagsins eru nú 66 og hefur fjölgað um 10 frá siðasta aöalfundi (1974). I vetur hafa aðildarfélögin sett á sviö 52 leiksýningar og að með- altali má gera ráö fyrir aö hvert leikrit sé sýnt 8-10 sinnum þar af 4-5 sinnum i leikferöum. Haldin hafa verið 12 námskeið i leikrænni tjáningu, leiktækni og látbragðsleik hjá hinum einstöku félögum. Samstarf atvinnuleikhúsanna og bandalagsfélaganna hefur aukizt mikið á árinu og hafa rúm- lega 30 meðlimir félags islenzkra leikara og félags leikstjóra á ís- landi unniö með félögunum. Þar af hafa 3 fastráðnir leikarar Þjóð- leikhússins leikið sem gestaleik- arar. I fyrra hófst samstarf viö Þjóð- leikhúsið um námskeið i tækni leikhúss og nú eru haldin 3 nám- skeið, þ.e. i förðun, Ijósabeitingu og leikmyndagerð. Þátttakendur eru 24 víðs vegar að af landinu pg komust færri að en vildu. Þá eru nú væntanlegir hingað 40 manns frá Norðurlöndum tii að taka þátt I leikbrúðunámskeiði, sem haldið verður i Reykholti dagana 20.-27. júni. En islenzkir þátttakendur veröa 10. Kennarar á námskeiöinu eru frá Austurriki, Danmörku og tslandi. Þá var einnig haldið námskeið i leikstjórn á siðastliðnu ári og veröa tvö nú i sumar og verða haldin að Hailormsstað. Lesendur segja: Jóhann Jónsson: „Gamli rokkurinn" t gamla bæinn ég gekk að lita góss sem var forðum mætt, og fslenzk þjóð mátti áður nýta við iðn sina, kúguð, grætt. 1 rökkvuðu skoti þar rokkinn eygöi rykfallinn upp við þil. Hið gamla, sem timinn i hljóði heygði án harms, þvi nýja i vil. Kembiö var brotið og hnokkarnir horfnir á hjóiinu fulimikið kast, fæturnir lausir og útstæðir orðnir — ýmislegt slitið og fast. Smalinn var farinn aö smella f pallinn og smurningu vantaði á flest, eliimörk sýndust mér aðalgallinn — sem aörir má heitast úr lest. Gamla rokkinn hún amma min átti og á hann sitt band þvi spann, þott sigi á vöku, og sumir hátti, sat hún og ullina vann. Úr bandinu prjónaði peysur og sokka á pabba og systkini hans. Þá urðu konur að þeyta rokka I þágu sins heima og lands. En timarnir breytast og týnast niður þau tök, sem var fyrrum beitt. Með nýjum tbna kom nýrri siður og nú hjá þvi gamla er sneitt. Jóhann Jónsson (4979-9659) Guðmundur P. Valgeirsson: „Margt er skrýtið í kýrhausnum" Undarlegir eru þeir menn, sem stjórna Morgunblaðinu og skrifa það. — Þjónusta þess og þeirra við erlent vald er svo ein- stök að undrun sætir. — Þaö er gömul og ný saga. Sönnun þess er að finna í öllum árgöngum Mbl. á liönum árum og næstum dags daglega. Einkum kemur þetta fram, þegar Islendingar hafa I einhverju átt hagsmuni sina að verja i samskiptum við erlendar og sér stærri þjóðir. — Þessi árátta blaðsins og að- standenda þess, kemur nú enn á ný skýrt fram þegar islenzka þjóðin á i óviöjafnanlega haröri baráttu viðerlenda stórþjóð um eitthvert mesta lifshagsmuna- mál sitt og daglega liggur við, að lifi þeirra raanna, sem fremstir standa i þessu varnar- striöi okkar, sé stefnt i hreinan voða og við stórslysum liggur og hrein mildi aö manntjón hefur ekki orðiö. Að ekki sé talaö um þá eyöileggingu á varðskipum okkar, sem daglega á sér stað. Meðan þessu fer fram, hrópar Morgunblaöiö si og æ, Nato er eini bjargvættur okkar i þessu máli, sem viögetum reitt okkur á. Vinir okkar innan þess eru si- fellt að vinna fyrir okkur, i leit aö friðsamlegri framtiðarlausn. — En sannleikurinn er sá, að þessar bandalagsþjóðir okkar hafa engan hug á þvi og hafa al- drei gert neitt, sem okkur kæmi að gagni. Þetta er aðeins gamalt og nýtt hugarfóstur þeirra Morgunblaösmanna, gert i hreinu blekkingarskyni, gegn betri vitund. öllum ætti að vera i minni yfirlýsingar Geirs Hallgrimssonar frá þorska- striðinu um 50 mflna útfærsl- una. Nýkominn heim úr reisu meðai þessara vina sinna, hélt hann þvi fram þá, að tólf af At- lantshafsbandalagsrikjunum væru reiöubúin til stuðnings við málstaö islendinga i þeirri deilu. En þegar gengið var eftir hver þessi riki væru, gat hann ekkert þeirra nefnt. Fyrir þessu var enginn fótur þá og það sama er enn. I sam- bandi við island og islenzku þjóðina er hérstöðin á Miðnes- heiöi það eina, sem þessar þjóð- ir láta sig varöa. Þetta vita þeir sem skrifa Morgunblaðiö ódcöp vel, þó þeir haldi öðru fram I blekkingarskyni. Það er hin hernaðarlega þýöing lslands fyrir þá sjálfa, sem þeir láta sig nokkru máli skipta. Nú þegar Einar Agústsson utanrikisráöherra fer utan á fund Nato og gerir tilraun til að ná fram árangri i landhelgis- Þótt afstaða þeirra, sem stjórna innan veggja þessarar bygging- ar hafi ekki alltaf þótt jafnljós. deilunni, okkur i hag, og hyggst beita þvi eina vopni, sem bitur og getur komið okkur að gagni, þ.e. hótun um að lsland segi sig úr Nato og loki herstööinni i Keflavik, þá ærast skriffinnar Morgunblaösins hreinlega. Dag eftir dag keppast ritstjórar þess og aðrir greinarhöfundar viö að lýsa þvi yfir, af móöursýki- kenndri ákefð, að þetta komi aldrei til greina. Og I örvænt- ingu sinni hrópa þeir á felu- mennina I V.L. að láta nú málið til súi taka og koma I veg fyrir þessa hótun. — Þar með er þetta vopn slegið úr hendi Einars Ágústssonar og skoðanabræðra hans. — Bretar geta þvi I skjóli málflutnings Morgunblaösins haldið áfram þeirri þokkalegu iðju sinni, að eyöileggja varð- skipin, ógna lifi varðskips- áhafnanna og eyðileggja fram- tiðarlifshagsmuni isl. þjóðar- innar. Þvi fyrr skiljast þeir ekki við Isl. fiskimiöin en þar verður engan fisk að fá. — En Mbl. og aðstandendur þeSs geta glaözt yfir velgengni skurðgoðs sins, Nato. Þeir menn, sem þar ráða þurfa ekkert að óttast meöan Mbl. fær nokkru um ráöiö. Sjálfstæðisflokkurinn hefur oft hrósað sér af þvi að hafa átt frumkvæði að útfærslu land- helginnar I 200 sjómilur og kast- að hnútum að öðrum stjdrn- málamönnum fyrir að vera ekki ginkeyptir við þeirri hugmynd I fyrstu, án þess viöurkenning fengist fyrir 50 milna landhelg- inni. Vel má vera, aö þeir hafi orðiö fyrstir til að setja hug- myndina opinberlega fram. Vist er að þeir gerðu það að einu helzta kosningamáli sinu i sið- ustu alþingiskosningum og voru þá ekki smátækir á loforðin. Margt kom þar skringilegt fram hjá þeim. Meöal annars var þvi haldið fram af forustumönnum þeirra, að auöveldara væri að verja 200 milna landhelgi fýrir erlendum veiðiþjófum en 50 milna landhelgina. Atti margur erfitt með aö skilja þá rök- semdafærslu og fleira i mál- flutningi þeirra um landhelgis- málið, fyrr og siðar. Voru menn þvi vantrúaöir á heilindi þeirra I þessu máli. Þetta væri herbragð

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.