Tíminn - 25.06.1976, Side 10
TÍMINN
Föstudagur 25. júnl 1976
10
Leikendur syngja þjóðsöng Sabinu — „Viö erum ávailt einhuga þjóð”.
LITLI LEIKKLÚBBURINN
SÝNIR Á SUDURLANDI
Litli Leikklúbburinn á Isafirði
lýkur nú sinu ellefta starfsári
með frumflutnjngi á nýju islenzku
verki, eftir Bilddælinginn Hafliða
Magnússon. Leikritið nefnist
Sabina — eyjan fagra, og er þar
átt við þá fögru eyju sem við
búum á. Sabina er þriðja verk-
efnið á þessu leikári, en i
klúbbnum er mikið um ungt og
áhugasamt leikfólk.
. Stór hluti af texta leikritsins er i
söngvaformi sem Hafliði hefur
einnig samið. Er hljómlistin
framreidd af þremur ungum
hljómlistarmönnum og söngurinn
kyrjaður af leikendum öllum i
sameiningu.
Mikil leikgleði rikir hjá þeim
unga hópi sem tekið hefur að sér
að syngja og leika i Sabinu.
Sabina var frumsýnd i heima-
bæ höfundar, Bildudal, og hafa
siðan verið sýndar ellefu
sýningar á Isafirði og viðar á
Vestfjörðum. Undirtektir
áhorfenda hafa-alls staðar verið
mjög góðar.
Vert er að geta þess að leikritið
er i gamansömum tón og gerir
höfundur óspart grin að þvi
mannllfi sem vaxið hefur upp á
Sabinu — eyjunni fögru, þó að
undirtónninn sé alvarlegur og
fjalli um mál sem eru i brenni-
depii i dag.
Leikstjóri Sabínu er Margrét
óskarsdóttir frá Isafirði og er
þetta fjórða verkefni hennar sem
leikstjóri.
Nú ætlar Litli Leikklúbburinn i
leikför með Sabinu um Suður-
land, með viðkomu i Búðardal.
Þar sýna þau fimmtudaginn 24.
júni. Næstu sýningar verða i
Grindavik föstudaginn 25. júni,
Keflavik laugardaginn 26. júni,
Seltjarnarnesi sunnudaginn 27.
júni, Selfossi mánudaginn 28.júni,
og Þorlákshöfn miðvikudaginn
30. júni.
Fjár-
mála-
ráð-
herra-
fundurí
Álaborg
Dagana 16. og 17. júnl var
fundur f jár mála rá ðherra
Norðurlanda haldinn I Álaborg I
Danmörku. Fundinn sátu ráð-
herrarnir Per Kleppe frá
Noregi, Gunnar Stráng frá
Sviþjóð, Esko Rekola frá Finn-
landi, Knud Heinesen og Svend
Jakobsen frá Danmörku. Af
tslands hálfu sat Matthias Á.
Matthiesen fjármálaráðherra
fundinn ásamt Glsla Blöndal
hagsýslustjóra, en auk ráðherr-
anna tóku ýmsir embættismenn
fjármálaráðuneytanna þátt I
fundinum.
Á ráðherrafundum þessum ,
sem venjulega eru haldnir
tvisvar á ári, eru rædd
sameiginleg máíefni á sviði
rikisfjármála. Sem fyrr gerðu
ráðherrarnir á þessum fundi
grein fyrir efnahagsþróuninni I
hverju Norðurlandanna um sig
og horfum i þeim málum. Auk
þess voru að þessu sinni tekin
fyrir ýmis sérstök málefni, svo
sem fyrirhugað rannsóknar-
verkefni á vegum OECD um
þróunartilhneigingar I efna-
hags- og félagsmálum, norræni
fjárfestingabankinn og væntan-
leg starfsemi hans, norrænt
samstarf við gerö þjóðhagslík-
ana og tvisköttun á útgreiddum
arði félaga.
Ákveðið var, að næsti fundur
fjármálaráðherranna yrði hald-
inn I Stokkhólmi 16. og 17.
nóvember n.k.
James J.
Blake nýr
ambassador
Banda-
ríkjanna
FB-Reykjavlk. — Frá þvi var
skýrti gær, að Ford Bandarikja-
forseti hefði útnefnt James J.
Blake ambassador á Islandi.
Blake hefur verið starfsmaður ut-
anrikisþjónustu Bandarikjanna
um árabil, en hann er nú að-
stoðarráðherra i stjórn Banda-
rikjanna og fer með mál er varða
Afriku.
James J. Blake, sem nú er 54
ára gamall, fæddist i New York.
Hann er með BA próf frá Queens
College og magisters gráðu frá
George Washington Háskólanum.
Isiðariheimstyrjöldinnivar hann
i landher Bandarikjanna. Hann
gekk i utanrlkisþjónustuna árið
1947 og hefur meðal annars starf-
að i Belgiu, Indlandi og Lýbiu, og
haft með höndum margvisleg
þýðingarmikil störf I utanrikis-
ráðuneytinu, m.a. haft með hönd-
um yfirstjórn mála, er varða
Norður Afriku. Árið 1969 var hon-
um veitt sérstök viðurkenning
ráðuneytisins, Superior Honor
Award. JamesBlake erkvæntur.
Útnefning Blakes sem am-
bassadors á lslandi er með þeim
skilyrðum, að öldungadeild
Bandarikjaþings samþykki
hana. Ekki er enn vitað, hvenær
ambassadorinn er væntanlegur
hingað, en hann tekur hér við
störfum Frederick Irvings am-
bassadors, sem fór héðan 21. april
siðastliðinn.