Tíminn - 19.09.1976, Blaðsíða 7
Sunnudagur 19. september 1976.
TÍMINN
7
HELGARSPJALL
Stefán Vaigeirsson
Styðjum ræktunarstarfið
Nú eru liöin sjötiu ár siöan
fyrsta ungmennafélagiö var
stofnaö hér á landi. Hinn 7.
janúar 1906 er taliö aö fyrsta
ungmennafélagiö jfai veriö
stofnað á Akureyri. Aö vlsu voru
þá fyrir starfandi félög, er höföu
sömu markmiö, en þau hétu
ekki ungmennafélög, heldur
eitthvaö annaö t.d. Iþróttafélög,
bindindisfélög eöa æskufélög.
Sá neisti sem varö þess
valdandi, aö ungmennafélög
voru stofnuð I flestum byggöum
landsins, hefur þvl kviknað fyrir
eöa um siöustu aldamót. Elzt
þessara félaga, sem ég hefi
spurnir af, var Iþróttafélag
öxnadæla, en það var stofnaö 4.
júni aldamótaáriö. En sumariö
1906 skipti félagiö um nafn, og
hét þar á eftir Ungmennafélag
Skriðuhrepps. Félagssvæðið var
hinn forni Skriðuhreppur, er
náði yfir öxnadals- og Skriðu-
hreppa nú.
Ungmennafélag íslands var
stofnað á Þingvöllum, sumar-
ið 1907 og á þvi einnig merkt
afmæli á næsta ári. Stofnendur
urðu aðeins þrjú félög, Ung-
mennafélag Akureyrar, Ung-
mennafélag Skriðuhrepps og
Ungmennafélag Reykjavlkur.
Ekki fer þvl á milli mála,
hvaöan frumkvæöiö er komiö að
þessari merku félagsmála-
hreyfingu. Þeir, sem hafa kynnt
sér störf ungmennafélaganna
frá upphafi, hljóta að vera sér
þess meðvitandi, að þau höföu
strax I öndverðu djúptæk áhrif á
allt þjóðlifið. Þetta var þjóö-
legur félagsskapur, er setti sér
og haföi háleitt takmark. Þau
vildu stuðla að mannrækt, I þess
orðs fyllstu merkingu, æfa og
þroska hug og hönd.
í þessu sambandi er fróðlegt,
aö kynna sér hver var tilgangur
fyrsta ungmennafélagsins eins
og hann er skráður i geröabók:
1. Að reyna af alefli að vekja
löngun hjá ungdómnum til þess
að starfa fyrir sjálfa sig, land
sitt og þjóð.
2. Að temja sér að beita
starfskröftum slnum I félagi og
utan þess.'
3. Að reyna af fremsta megni
að styðja, viðhalda og efla það,
sem er þjóðlegt og ramm-
íslenzkt, er horfði til gagns og
sóma fyrir hina Islenzku þjóð.
Fyrstu áratugi þessarar aldar,
höfðu unglingar litla möguleika
til skólagöngu að loknum barna-
skóla. En þeir gengu I ung-
mennafélögin, er störfuðu flest
af miklum myndarbrag og
mótuðu og þjálfuðu félaga sina,
og reyndist mörgum þá góður
skóli. Bezti vitnisburðurinn um
þann árangur, sem náðist með
þessu starfi, er hvernig ung-
mennafélagarnir reyndust
þegar út I llfsbaráttuna kom.
Þar urðu þeir vlða I farar-
broddi, urðu forustumenn þjóð-
arinnar á mörgum sviðum.
Það er vandséð, að aðrir
skólar hafi sýnt á áþreifanlegri
hátt betri árangur, þótt þjóðin
hafi lagt til þeirra margfalt
meira fjármagn. Þjóðfélagið á
þvi ungmennafélögunum skuld
að gjalda og ætti að sýna það I
verki að störf þeirra séu metin
að verðleikum.
Felagar I Ungmennafélagi ís-
lands eru nú um 20 þúsund.
Starf félaganna hefur breytzt I
samræmi við þá framvindu,
semlorðið hefur I þjóðfélaginu.
Félagsstarfið fer I vaxandi mæli
I iþróttaæfingar og keppnismót.
1 reynd eru þau þó vlða þrótt-
mikill félagsmálaskóli eins og
áður var.
Ungmennafélag íslands hefur
haldið landsmót þriðja hvert ár,
til skiptis I landsfjórðungunum.
Þessi mót eru kynningar- og
keppnismót og hafa þau ætið
verið félögunum til sóma, og
sýnt að þau hafa náö verulegum
árangri I mannræktarstarfinu,
ef miðað er við aðrar hliðstæöar
samkomur.
1 tilefni af sjötiu ára afmæl-
inu, hefur Ungmennafélag Is-
lands samþykkt að næsta lands-
mót verði við Eyjaf jörð sumarið
1978. Við athugun kom i ljós, að
Eyfiröingar eru vanbúnir, hvað
aðstöðu snertir, að taka við
sliku móti. Þrátt fyrir mikið og
. fjölþætt starf Ungmennasam-
bands Eyjafjarðar á liðnum ár-
um, þá er aöstaöa til Iþróttaiðk-
ana I lakara lagi, hvað þá að-
staða til að halda slikt mót.
Nú hefur það verið venja,
þegar Ungmennafélag Islands
hefur valið mótstað fyrir næsta
landsmót, þá hefur alltaf tekizt
að fá fjárveitingavaldið til að
llta á nauðsynlegar fram-
kvæmdir i sambandi við þau,
með velvilja og veita til þeirra
nauðsynlegar fjárveitingar.
Þegar fjallað var um fjárlög
fyrir árið 1976, lá það fyrír, að
Dalvikurkaupstaður væri fús til
að leggja fram fjármagn 60% af
kostnaði við gerð Iþróttarvallar
ef næsta landamót yrði haldið
þar, en að þvl tilskildu, að
tryggt væri aö rlkið leggði fram
sinn hluta 40%, jafnóðum og
framkvæmdum miðaði áfram.
I fyrstu var áformað að
byggja búnings- og hreinlætis-
aðstöðu við hið fyrirhugaða
Iþróttasvæði, en af fjárhags-
ástæðum var frá þvl horfið, en I
þess stað áformað að reyna að
notfæra sér þá aðstöðu, sem
skólarnir á Dalvík hafa yfir að
ráða. Heildarkostnaður við gerð
þeirra framkvæmda, sem óhjá-
kvæmilegar eru, ef næsta lands-
mót á að fara fram á þessum
stað eru um 42 milljónir á verð-
lagi ársins 1975.
Þó allar þær staðreyndir, sem
hér hefur verið bent á, lægju
fyrir þegar fjárveitingarvald
rikisins fjallaði um þetta mál,
þá náði það ekki eyrum þeirra,
er úrslitum ráða. Þar með er
búið aö tefla máli þessu i tvi-
sýnu. En við gerð næstu fjár-
laga, reynir á það að fullu, hvort
ungmennafélögunum verður
gert það kleift, að minnast 70
ára afmælisins i byggðum Eyja-
fjarðar, þar sem fyrstu félögin
voru stofnuð. Hér er um að ræða
18 til 20 milljónir, sem gæti orðið
hlutur rikisins.
Er viðleitnin til að stuðla aö
mannrækt og heilbrigðara
félagslifi æskufólks, virkilega
eins litið metin af ráðamönnum
rikisins, eins og ætla mætti af
þeim undirtektum, sem mál
þetta hefur fengið fram að
þessu. Orðugur fjárhagur rikis-
ins á yfirstandandi tlma er eng-
in afsökun, hér er ekki um þá
fjárhæð að ræða. En það þarf
skilning á þvl sjálfboðastarfi,
sem þessi félagsskapur vinnur
fyrir æskufólkið I landinu og þar
með þjóðina alla. Er vanþörf á
þvi nú, að styðja við þann
félagsskap, sem vinnur gegn
óreglu unglinga og heldur uppi
heilbrigðu og þróttmiklu félags-
lifi i flestum byggðum landsins?
Ef slikt starf á ekki skilið stuðn-
ing og viöurkenningu hins opin-
bera, hver á þá slikt skiliö? Það
yrði ekki álitshnekkir fyrir ung-
mennafélögin i landinu, þótt þau
verði að hætta við að halda
landsmót sitt eins og stefnt er að
á Dalvik 1978, en það gæti orðið
álitshnekkir fyrir aðra.
i
F
A Tl ARGERÐ 1977
131 og 132
til afgreiðslu strax
í 7 7 7
'nm
127 og 128
Nokkrum bílum
óráðstafað á
GAMLA VERÐINU
■ ■rasw'-.t**
r
FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
Davíð Sigurðsson h.f.
Síðumúla 35 Símar 38845 — 38888
i