Tíminn - 19.09.1976, Síða 28

Tíminn - 19.09.1976, Síða 28
28 TÍMINN Sunnudagur 19. septeniber 1976. LEITIN AÐ KYRRÐINNI MIKLU — bar til um klukkan fimm komu bólur upp á yfirboröið — til- kynntu menn, sem höfðu verið að dóla á gúmmibáti á stöðuvatni, — en eftir það var engin hreyfing sjáanleg. — A þeirri sömu stundu létu tveir piltar lifið niöri i vatninu. Annar var Hans Nowak, nitján ára nemandi, og hinn Michael Wolter, tuttugu ára lög- regluþjónn. Báðir voru i kafara- búningi meö súrefnisgeyma á bakinu. Ekki er með fullu ljóst, hvað það var sem varð þeim að fjör- tjóni, — aöeins hvers vegna: Hans og Michael, sem báðir voru byrjendur i köfun, höfðu i hyggju að kafa niður á fjörtiu metra dýpi án kennara og án nokkurra öryggisráöstafana. Dauði þessara ævintýramanna er ekkert einsdæmi i sögu kafara. — Maður fer inn i verzlun, kaupir kafaraútbúnað og stuttu siðar getur hann veriö dauður. — segir Willy Mangold formaður Posei- don-Nimrod félagsins, sem hefur yfirumsjón með öllum köfunar- stöövum I heimi. Köfun er iþróttagrein sem nýt- ur sivaxandi vinsælda al- mennings og er árleg aukning i henni yfir 20%. Fólk lætur auð- veldlega lokkast, er það heyrir, að það er auðveldara að læra aö kafa en synda. 1 kringum tiu þús- und kafarar eru innan vébanda klúbba og félaga og njóta leiö- sagnar en allt að 70000 kafa upp á eigin spýtur. Þeir fara til Eystra- saltsins, Miðjaröarhafsins, og karabiska hafsins. Þeir leita að leirkerum I Rauöa hafinu, ljós- mynda neðansjávarhella i At- lantshafinu og elta karfa i Kyrra- hafinu. Þyngdarleysistilfinningin.ikyrrö- in, einveran hin stórfeng- lega litadýrö og ævmtyraandinn, sem fylgir þessu allt þetta dregur fólk aö i hrönnum. Fólkið steypir áer i djúpiö i leit að nýjum heimi, sem þaö i sumum tilfellum á ekki afturkvæmt úr. Samkvæmt upp- lýsingum frá strandgæzlunni i Wilhelmshaven i V-Þýzkalandi, urðu i kringum 200 Þjóðverjar eftir niöri i djúpinu á siðasta ári. Þetta er ekki i samræmi við upplýsingar Sam'bands þýz'Kra áhugakafara, sem ekki vill viður- kenna nema i hæsta lagi 30 fórnarlömb Alveg jafnreikandi og tölur um slysatilfelli, eru og laga- ákvæði um undirbúning og ör- yggi.Hversem vill stinga höfðinu undir vatnsyfirborðið getur gert það alveg afskiptalaust, jafnvel þótt hann skorti allan nauðsyn- legan undirbúning eöa kennslu. Það er ekkert fylgzt með þvi. 1 hvaöa sportvöruverzlun sem er má kaupa súrefnishylki, lungna- vélar, blýbelti og þrýstiútbúnað sem að vísu fagmenn kunna aö nota, en geta verið lifshættuleg fyrir leikmenn. I Austur- Þýzka- landi má aðeins selja þeim, sem geta sannað, að þeir hafi lokiö undirbúningsnámskeiði i köfun, kafaraútbúnað. A hinn bóginn er ekki einu sinni eftirlit meö köf- unarkennurunum í Vest- ur-Þýzkalandi. Hver sem er getur kallað sig köfunarkennara og opnaö skóla þar að lútandi. — Það er fyrir neðan allar hellur, hvaö þetta er laust i reipunum, og al- veg óforsvaranlegt, að hver sem ergeti kallað sig köfunarkennara og beinlinis rekið fólk i dauðann, — segir dr. Klaus Seemann, skipslæknir og yfirmaður læknis- stofnunar flotans i Kiel. Yfirvöld skipta sér ekkert af þessu, en Samband þýzkra áhugakafara hefur gengizt fyrir þvi að fá sam- þykkt lög um undirbúning sem gilda eiga um allt Þýzkaland. Samt óttast félagið, að of mikil stjórn geti skaðað viðskiptin. Jens-Peter Paulsen, varaformaö- ur heimssambands kafara, segir að það séu afar margir á þeirra vegum, sem hugsi fyrst og fremst um það að græða. Sá fyrstisem gerði það að raun- veruleika, var Hans-Joachim, fyrrverandi sundkáppi. Hann stofnaði fyrirtækið Barrakuda, sem til að byrja með framleiddi sundfitjar, kafaragrimur og öndunarpipur. Siðan stofnaöi hann fyrsta kafaraklúbbinn fyrsta timarit kafara og fyrsta kafaraskólann og aö lokum Sam- band þýzkra áhugakafara. (VDST). Fyrirtækið færði smám saman út kviarnar og varð brátt alls- ráðandi á markaðnum. Hans-Jo- achim er núverandi formaöur VDST. Samkvæmt lögum félags- ins, ber þvi fyrst og fremst að hugsa um hag heildarinnar og á formaður þess að sjá til þess að þvi verði framfylgt En þar vill nú vera misbrestur á, þvi að þetta stangast á við hugmyndir hans sem forseta auðfyrirtækisins Barrakuda — ég vil selja eins mikiö af^vörum og mögulegt er. Og viðskiptin ganga eins og bezt verður á kosið. Eftirspurnin eykst og ganga framleiðendur á lagið, og stöðugt koma fleiri vörur og ný tæki á markaðinn. Svo þegar fólk hefur keypt sér þennan útbúnað, þykist það fært i flestan sjó og vill oft gleymaþvi,að köfunerekki bara t kafarabúningnum er beinagrind manns, sem I marga mánuði hefur legiö á botni Norðursjávarins. Hann varö fórnarlamb iþróttar, sem er jafn vinsæl og hún er hættuleg. Tveir dauðir áhugakafarar, sem ætluðu sér að kafa niður á 40 metra dýpi án þess að hafa minnsta undirbuning.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.