Tíminn - 19.09.1976, Side 31
Sunnudagur 19. september 1976.
TÍMINN
31
2 Peter Frampton ■
1 Fleetwood Mac ..................
3 Jefferson Starskip — Spitfire...
4 George Benson — Breezin’.........
5 Boz Scaggs — Silk Degress.......
Linda Ronstadt — Hasten Down The Wi
Lou Rawis —All Things In Time
Wild Cherry.......
C'hicago X........
John Denver — Spirit
19 War—Greatest Hits
7 Wings At The Speed Of Sound
6 NeilDiamond — Beautiful Noise
16 Barrv Minilow —This One’s For You
15 Aerosmith — Rocks
'7 Helen Reddy — Music.Music
11 Steve Miller Band — Fly Like An Eagit
20 Commodores — Hot On The Tracks
22 Diana Ross Greatest liits
21 Eagles — Their Greatest Hits 1971-1975
Hljómplötudómar
NÚ-TÍMANS
Gylfi Ægisson — Gylfi Ægisson
Gimsteinn hf.
★ ★ ★
GYLFI Ægissonbyggir á öftrum
tóniistargrunni en velflestir
þeir, sem leggja stund á popp-
tónlist hér á landi — og að min-
um dómi er út í hött að ætla sér
að bera Gylfa t.d. saman við
strákana i Paradfs oghans plöt-
ur saman við þeirra. Tónlist
Gylfa er af öðrum toga spunnin
og sett fram á allt annan hátt.
Það er kannski móðgandi fyr-
ir Gylfa, en ég vil leyfa mér að
halda þvi fram, að plötur hans
eru skemmtiplötur öðru fremur.
Alla vega get ég ekki annað en
litið svo á.
Þær eru kannski ekki slæmar
tónlistarlega séð, en þær eru
engan veginn unnar út frá þvi
markmiði, að þær eigi að vera i
háum tónlistarlegum gæða-
flokki. A hinn bóginn getur eng-
inn haldið þvi fram, að Gylfi sé
slæmt tónskáld.
Tónlist er augljóslega Gylfa i
blóð borin, og hann þarf, að þvi
er manni virðist, ekki að hafa
mikið fyrir þvi að semja lög.
Gylfi er ekki tónlistarmenntað-
ur ogþviertónlisthans alltöðru
visi en þeirra, sem lagt hafa
stund á tónlistarnám og hafa
það til að styðjast við.
Þvi er ekki að leyna, að Gylfi
hefur ekki mjög viðan sjón-
deildarhring i sinni tónlistar-
sköpun, og hygg ég, að það muni
i framtiðinni — ef Gylfi heldur
áfram að gefa út plötur —
standa honum nokkuð fyrir þrif-
um.
A þessari ný ju plötu hans er of
mikið um endurtekningar frá
fyrri plötu hans, og kveður svo
rammt að þessu, að við liggur,
að þekkja megi sömu lögin á
báðum plötunum.
Ekki má þó álykta sem svo út
frá þessum orðum, að ekkert
nýtt eða frumort sé að finna á
plötunni, þvi á henni eru nokkur
lög, sem eru sannkallaðar
Gylfa-perlur, ef svo má að orði
komast, t.d. „Bátsmanns
glanni”, sem á áreiðanlega eftir
að verða mjög vinsælt, ef að lfk-
um lætur. Einnig má nefna i
þessu sambandi lögin „Vest-
mannaeyjabrag” og „Kalla
bónda”.
Gallinn við plötuna er þvi
einkum sá, að efni hennar er
mjög misjafnt að gæðum og
gildir þetta einnig um textana.
Þeir hitta að visu margir beint i
mark, t.d. textinn við „Vest-
mannaeyjabrag” og „Möllu
Gvend”, en Gylfi segir oft sögur
i sfnum textum, og eru það oft
spaugilegar lýsingar á viður-
eign karlmanna við kvenþjóð-
ina.
Bragfræðingar og fagurkerar
i ljóðagerð eru sennilega ekki
hrifnir af textum Gylfa, enda er
mikið af hortittum i þeim. Hins
vegar segja þessir textar, að
mi'num dómi, meira um Gylfa
sjálfan en nokkuð annað, og sizt
af öllu vildi ég missa af þeim,
þvi án þeirra myndu plötur
Gylfa vera aðeins svipur hjá
sjón.
Hljóðfæraleikur á plötunni er
unninn eftir sömu formúlu og
no tuð var á fyrri plötu Gylfa, og
hygg ég, að það hafi verið rétt
stefna. Þetta er að visu ekki sér-
lega burðugur hljóðfæraleikur,
en fellur vel að efninu og gefur
Gylfa gott svigrúm til þess að
tjá sig. Til annars þarf ekki að
ætlast af hljóðfæraleiknum. Þó
skal þess getið, að Rúnar
Júliusson sýnir athyglisverða
leikni á gitarinn, en hann leikur
einnig óaðfinnanlega á bassann.
G.S.
Námskeið
fyrir
píanókennara
Félag Tónlistarkennara gengst
fyrir námskeiði, fyrir pianó-
kennara dagana 20., 21., og 22.
sept. næstk.
Hingað kemur próf. Hans Ley-
graf, pianóleikari og tónskáld,
sem er að góðu kunnur, frá nám-
skeiði er hann hélt hér haustið
1973 við ágæta aðsókn.
Próf. Leygraf er mjög þekktur
erlendis sem afbragðs kennari og
leiðbeinandi, jafnframt þvi að
hann starfar einnig sem einleik-
ari.
Þá má geta þess að tveir
nemendur hans sigruðu i nor-
rænni pianó keppni, sem fram fór
hér i Reykjavik fyrir nokkrum
árum.
Einn isl. nemandi hefir stundað
nám hjá próf. Leygraf um nokk-
urt skeið.
Námskeiðið verður haldið i
húsakynnum Tónlistarskólans i
Reykjavik, og er þegar fullskip-
að.
Frá Hofi
Þingholtsstræti 1
Ef þú ætlar peysu að prjóna,
húfu, hanska, leppa i skóna.
Fyrir það þú hlýtur lof,
enda verzlar þú I Hof.
Halogen-ljós
fyrir J-perur -
ótrúlega mikið
Ijósmagn
PERUR í ÚRVALI
NOTIÐ
(AÐBESTA
Skipholti 35 • Símar:
8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrifstofa
SKODA
#
NEST SELDI BILL
Á LANDINU
SNOM