Tíminn - 19.09.1976, Blaðsíða 39

Tíminn - 19.09.1976, Blaðsíða 39
Sunnudagur 19. september 1976. TÍMINN 39 flokksstarfið Aöalfundur Framsóknarfélags Isfiröinga ver&ur haldinn á skrif- stofu félagsins, Hafnarstræti 7 sunnudaginn 19. september kl. 17. Steingrimur Hermannsson alþingismaöur mætir á fundinum. Stjórnin.______________________________^ ----------------------------------------- Framsóknarfólk Húsavík Framsóknarfélag Hiisavikur efnir til félagsfundar I Félags- heimili Húsavikur fimmtudaginn 23. september klukkan 21.00. Gestir fundarins veröa Steingrimur Hermannsson, alþingis- maður og Þráinn Valdimarsson, framkvæmdastjóri Fram- sóknarflokksins. Þeir munu einnig veröa til viðtals á flokksskrifstofunni Garöar sama dag milli klukkan 18,00 og 19.00. Stjórnin. Húsavík Dvalarheimili aldraðra Eitt það stærsta, sem við erum með i félagi vi aðra, er bygging á dvalarheimili aldraðra. Viö stofnuðum i vetur félag um þessa byggingu, og nær þaöyfir svæðiö frá Raufarhöfn og vestur I Ljósa- vatnsskarö. Við stefnum að þvl, að fyrsti áfanginn verði byggöur hér á Húsavlk i tengslum viö sjúkrahúsið, og síðan verði stefnt að þvi, að dvalarheimilið fái að- stööu á öðrum þéttbýlisstöðum á svæðinu.einsog t.d.á Raufarhöfn eða Kópaskeri. Fyrsta skóflustungan var tekin siðast iágúst. Hanatók Sigtrygg- ur Hallgrlmsson bóndi að Litlu Reykjum i Reykjahreppi. Fyrsti áfangi dvalarheimilisins veröur 10 þúsund rúmmetrar, en I honum verða 16 ibúðareiningar, sem geta rúmað allt að 44 vistmenn. Þá verður þarna föndur- og þjón- ustuaðstaða, bæði fyrir vistmenn og fólk utan úr bæ. Komið veröur upp þvottahúsi, en gert er ráð fyr- ir samnotkun á þvottahúsi sjúkrahúss og dvalarheimilisins, og auk þess er gert ráð fyrir, að eldhús sjúkrahússins verði jafn- framt notað fyrir dvalarheimilið. Eru þessar byggingar tengdar saman með gangi. Formaður bygginganefndar dvalarheimilis aldraðra heitir Egill Olgeirsson, en fram- kvæmdastjóri byggingarinnar er Jón Armann Arnason. Þegar er búið aö ganga frá grunni, og verið var aö slá upp fyrir sökklum um miðjan september. Meiningin er að steypa kjallara hússins upp I haust. Þegar eru farin að berast framlög frá öldruöu fólki til þess- arar byggingar, og við treystum á, að mikill áhugi fólks veröi á henni. Heilsugæzlustöðin Stöðugt er veriö að vinna við sjúkrahúsiö, og árleg framlög koma frá bænum til þess. Nýlega höfum við stofnað hér formlega heilsugæzlustöð, og nær hún yfir átta hreppa i Suður-Þingeyjar- sýslu og Húsavik. Aður hafði Húsavlkurbær rekið heilsugæzlu- stöðina einn, en nú er þetta komið i samræmi við læknishéraöið eins og það er i dag eftir nýju lækna- skipunarlögunum. Stærsta fram- kvæmdin, sem stendur fyrir dyr- um i heilsugæzlustöðinni, er að koma upp aðstööu fyrir þrjá tann- lækna. Stefnum við að því, að það verði gert I vetur og verði tilbúiö til notkunar næsta vor. Togaraútgerð Annað stórvirki sem unnið er I samvinnu við aðra, er togaraút- gerðin. Við stofnuðum I vetur fé- lag, sem heitir Höföi hf. og hefur það togaraútgerð að markmiði. Við vorum mikið búnir að reyna að fá að flytja inn togara frá Nor- egi, en þaö tókst ekki vegna svörtu skýrslunnar, eðaaðgeröa I kjölfar hennar. Slðan komumst við inn I kaup á togara, sem verið var aö smlða á Akranesi fyrir Bessa sf. i Vestmannaeyjum. Var hann sjósettur i byrjun september. Togaranum var gefiö nafn lO.ágúst sl. og er það Július Havsteen ÞH 1. Þaö var Hannes Hafstein, sem gaf togaranum nafn, og fjölmenntu ættingjar Júllusar heitins Havsteen til Akraness til þess að vera við- staddir. 1 þvi tilefni gáfu þeir skipinustóra ljósmynd af Júliusi Havsteen sýslumanni á Húsavik og með henni var áletruð silfur- plata. Einnig gáfu ættingjarnir peninga i minningarsjóð, sem stofnaður'hafði eitt sinn verið til minningar um móður þeirra, Þórunnar Havsteen, en hún lézt árið 1936. Sjóðurinn hafði verið stofnaður á vegum Kvenfélagsins á Húsavik. Eigendur togarans eru Fiskiðjusamband Húsavikur, sem er nær helmingsaðili, Húsa- vikurbær, Kaupfélag Þingeyinga og nokkrir einstaklingar, en þetta er almenningshlutafélag, sem menn geta keypt hlut i, og enn eru laus hlutabréf I félaginu. Stjórn- arformaður er Tryggvi Finnsson framkvæmdastjóri, skipstjóri verður Benjamin Antonsson frá Akureyri. Ahöfn togarans, að undanteknum skipstjöra og öðr- um stýrimanni, er öll frá Húsa- vik. Hafnarframkvæmdir A árinu 1972 var gert likan að Húsavikurhöfn hjá Straumfræði- stofnun Orkustofnunar. A grund- velli þeirra tilrauna, sem þar voru geröar, var gjörbreytt hafn- armannvirkjum á Húsavik. Siöan erbúiðaðbyggja90metra langan þvergarð á suðurgaröinn svokall- aöa, og I sumar hefur veriö unnið að þvl að steypa þekjuna á þann garð. Þær upplýsingar, sem feng- ust með tilraunum viö ltkaniö, hafa fullkomlega skilað sér, og þessi þvergarður hefur sýnt, aö Ukanið leiddi okkur á rétta braut. Nú er unnið aö þvi aö koma vatni og lýsingu á þvergarðinn, og verður þvi verki lokið nú seinna i haust. Miklar fram- kvæmdir standa fyrir dyrum við höfnina. Viö vonumst eftir að fá að lengja svokallaðan norður- garð, sem er öldubrjóturinn, á næsta ári, og þá fyrst er höfnin fyllilega farin aö þjóna þvi hlut- verki, sem henni er ætlað. Við stefnum að þvi aö stofna hér hlutafélag um byggingu og rekstur verbúða á hafnaruppfyll- ingu. Framkvæmdir hefjast reyndar ekki i haust, en þetta eru verkefni, sem unniö verður að I vetur, og framkvæmdir ættu að hefjast næsta vor. Einnig stefnum við að þvi að koma upp aðstöðu fyrir skipasmiöi, en hér er fjöldi litilla trébáta, sem þurft hefur að fara með úr plássinu til viöhalds. Við höfum haft samband við skipasmiði, sem hafa haft uppi á- form um að flytjast til Húsavikur, en verði ekki úr þvl munum við leita fyrir okkur annars staöar til þess að fá slika menn hingað. Hitaveitan Viðlukum lagningu dreifikerfis árið 1974 i bænum, en hitaveitan tók til starfa áriö 1970. Við þurf- um aö styrkja dreifikerfið með stofnlögn upp i Suðurbæinn, svo kallað Þverholt, og meiningin er að gera það i haust. Einnig höfum við veriö að gera úttekt á flutn- ingsgetu aöveituæðarinnar frá Hveravöllum i Reykjahverfi, þar sem viðfáum vatnið. Vegna hug- mynda um að nýta heita vatniö til þurrkunar I heykögglaverksmiöj- unni, sem er verið að byggja hérna i Saltvik, og vegna vaxandi byggðar I bænum, geröi Orku- stofnun viönámsmælingar hér sunnan viö bæinn til þess aðleita að heitu vatni. Niðurstööur voru heldur neikvæðar, þannig að við reiknum frekar með að þurfa aö sækja vatnið að Hveravöllum á- fram. Við vorum svo héppnir aö ráðast i hitaveituframkvæmdir rétt áður en olian varð að vopni, og farið var að veröleggja hana i samræmi við það, og er hagnaöur Húsvikinga af hitaveitunni alveg ómetanlegur. Vatnsveitan Ég heyrði fyrirnokkru, að vatn væri yfirleitt slæmt á Norður- landi. Hér á Húsavik höfum við um langan aldur haft vatn, sem tekið er undan fjallinu, og kemur aldrei undir bert loft. Vatnið er mjög gott, og vatnsveitan, sem komið var upp i kringum 1960, hefúr enn nægt, en við þurfum að fara að huga að aukningu. Við höfum hér gnægð af góöu vatni, svo að það á að verða áfram i lagi. Rafveitan Við vinnum nú að þvi aö byggja hér nýja aðveitustöð fyrir Raf- veituna. Núverandi aðveitustöð er komin inn i byggðina, og hefur það skapað okkur vandræöi. Við gerum ráð fyrir aö taka þetta verk i tveimur áföngum. Nýja spennistöðin verður byggð austan við bæinn, og verður hún tekin i notkun næsta sumar. Húsið verður hins vegar byggt í haust. Jafnframt erum viö að styrkja háspennulagnir um bæinn i þeim tilgangiað geta hringtengt.þannig að þótt einhvers staöar fari há- spennustrengur höfum við samt straum um hann allan. Það gerir rafmagnið hér i bænum miklu öruggara. Við horfum með gleði til fra mtiðarinnar, þegar farið verður aö framleiða meira raf- magn með tilkomu Kröfluvirkj- unar, og vonumst til þess að tak- ist að stofna Norðurlandsvirkjun alveg á næstunni. Samgöngu- og ferðamál Við opnuðum hér nýtt hótel sumarið 1973, og er það með 68 rúmum. Húsavik er þegar oröinn þekktur ráðstefnustaður, og t.d. hafa hér verið haldnar ráðstefnur á vegum Norðurlandaráðs. Bærinn er stærsti aðili að hótelinu, en Kaupfélagið á einnig stóran hlut i þvi, auk fyrrverandi hótelstjóra, og nýlega geröust Flugleiðir hluthafar i hótelinu. Hótelstjóri nú er Einar Olgeirs- son, sem áður vann á Hótel Sögu. Mönnum er nú orðið ljóst, að Húsavik er ákjósanlegur staður sem miðstöð skoöanaferöa um Þingeyjarsýslu, og hefur tilkoma hótelsins auðveldaö mönnum slikar ferðir hér um nágrenniö. Það hefúr lengi verið útbreiddur misskilningur, aö ekki sé mikið annað að skoða i Þingeyjarsýsl- um en Mývatnssveit. Þegar t.d. erlendum ferðamönnum hefur veriðsýnt þetta héraö, hefur það verið gert með eins dags ferðum frá Akureyri i Mývatnssveit og til baka aftur sömu leið, en nú er þetta að breytast, og menn eru farnir að koma hingaö til Húsa- vikur og fara svo héðan um héraðið, og skoða þá gjarnan austurhluta þess, og fara svo aftur til baka og til Akureyrar. Hér er búiö að setja upp bila- leigu, og nú erum við aö berjast fyrir auknum flugferðum hingaö. Tii skamms tima voru ekki nema fjórar ferðir hingaö, en i sumar voru fastar ferðir alla daga og næsta ár er gert ráð fyrir, að ferðir verði tvisvar á dag, suma daga. Þegar sú skipan verður komin á, og jafnvel tvær ferðir alla daga, þá ættum við að geta farið að beina ferðamanna- straumnum hér um austanvert Norðurland. Byggðastefna i reynd Undanfarin ár hefúr mikið verið sótzt eftir aö flytja til Húsa- vikur. Hér hefur atvinna veriö góð, ogmeðaltekjur ibúa með þvi hæsta, sem þekkist á landinu. Hlutur giftra kvenna i atvinnu- lifinu er mjög mikill, en láta mun nærri, að um 90% giftra kvenna hafi einhverjar atvinnutekjur á almennum vinnumarkaði. Húsa- vik er fallegur staöur i örum vexti, og hér er veöurfar sólrikt og gott. Til þess aö geta tekiö á móti þeim, sem hingaö vilja flytja, t.d. af Reykjavikursvæð- inu, en mér þykir nú alltaf betra, að þaðan flytjist menn, vegna þess að ég vil ekki aö gangi á sveitirnar hérna, þarf húsnæði, og fjölbreyttara atvinnulif. Bygging leiguibúðanna eitt þúsund, sem ljúka átti 1978, var spori rétta átt i húsnæðismálum. Lögin voru hins vegar mein- gölluö, þar sem byggingarsjóði rikisins var einungis heimilt,ven ekki skylt, að lána til þessara framkvæmda, andstætt þvi, sem gilt hefur um hliðstæöar byggingaframkvæmdir f Reykja- vik. Þvi hafa framkvæmdir dregizt. Nú hefur veriö bætt úr þessum galla á lögunum, en jafn- framt hefur timinn til þess að byggja þessar 1000 leiguibúðir verið lengdur verulega. Fyrsta skilyrði raunhæfrar byggðastefnu er að tryggja framboð á ibúöar- húsnæði út um hinar dreifðu byggöir landsins. Undanfarið hefur verið rætt um að koma upp ylræktarveri i sam- vinnu við Hollendinga. A Hvera- völlum i Reykjahverfi er gængð jaröhita, og staðurinn meöal hinna sólrikustu á landinu. BæjarstjórnHúsavikur hefur gert samþykktir um að Hveravellir veröi valdir fyrir ylræktarverið. Þrátt fyrir mikinn áróður heima- manna, litur út fyrir að þessu nýja atvinnufyrirtæki verði val- inn staöur IReykjavik, eða næsta nágrenni. Annaö skilyröi reunverulegrar byggöastefnu, og liklega engu ómerkara en framboö á fbúöar- húsnæöi, er aö dreifa atvinnu- fyrirtækjum um landiö. Með þvi eraukin fjölbreytni atvinnulifsins á íámennum stöðum, sem um leiö örvar byggð og eflú-. Ég bið stjórnvöld landsina aö minnast þessara tveggja atriöa, sem ég leyfi mér að kalla byggðastefnu i reynd. Framkvæmdastjóri Hraðfrystihús Stöðvarfjarðar h.f. óskar að ráða framkvæmdastjóra. Umsóknir um starfið skulu sendar Sól- mundi Jónssyni skólastjóra Stöðvarfirði eða Guðmundi Malmquist, Lálandi 5, Reykjavik, sem veita allar nánari upp- lýsingar. Umsóknarfrestur er til 10. októ- ber n.k. Bjóöum alls konar mannfagnaö velkominn. Vistleg salarkynni fyrir stór og smá samkvæmi. Veisluföng og veitingar aö yöar ósk. Hafiö samband tímanlega. HÓTEL LOFTLEIÐIR símí 22322

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.