Fréttablaðið - 22.11.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 22.11.2005, Blaðsíða 2
2 22. nóvember 2005 ÞRIÐJUDAGUR ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� SPURNING DAGSINS Hrafnhildur, verður gjafasæði vinsæl jólagjöf í ár? „Ég vona það verði vinsælt allt árið um kring.“ Hrafnhildur Gunnarsdóttir er formaður Samtakanna 78. Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins vilja rúm 82 prósent að lesbíur í sambúð fái að eignast barn með gjafasæði. BANASLYS Maðurinn sem lést eftir bílveltu í Borgarfirði um miðj- an dag á sunnudag hét Sigurður Jóhann Hendriksson. Hann var 59 ára gamall, búsettur í Reykja- vík. Sigurður Jóhann lætur eftir sig eiginkonu og tvö uppkomin börn. Slysið átti sér stað í Norðurárdal, skammt ofan við bæinn Sveinatungu, en töluverð hálka var á þessum slóðum á sunnudaginn. Tilkynning barst um slysið rétt fyrir klukkan hálf þrjú um daginn. Í fyrstu var óttast að fleiri hefðu verið í bílnum og var nokkur viðbúnaður vegna slyssins. - óká Banaslys í Norðurárdal: Lést í bílveltu SIGURÐUR JÓHANN HENDRIKSSON SLYS Líðan drengjanna tveggja sem brenndust illa á höndum og í and- liti í fyrrakvöld þegar þeir kveiktu í eldfimum vökva sem þeir voru að fikta með er eftir atvikum að sögn yfirlæknis á skurðdeild Land- spítala-Háskólasjúkrahúss. Báðir hlutu þeir talsverð- an bruna í andliti og á höndum. Annar þeirra öllu meiri bruna og er honum haldið sofandi í önd- unarvél. Hvorugur þeirra er þó í lífshættu. Lögregla hefur eftir vitnum að slysinu að drengirnir hafi verið að fikta með eld og eldfiman vökva þegar atvikið átti sér stað. Slettist vökvinn yfir drengina með fyrr- greindum afleiðingum. ■ Tveir drengir brenndust: Líðan beggja eftir atvikum ÖRORKA Tryggingastofnun ríkisins er að skoða hvort rétt sé að greiða öryrkjum, sem eingöngu eru með lífeyrisgreiðslur, grunnlífeyri upp á 22 þúsund krónur í stað þess að fella niður allar bótagreiðslur hjá þeim sem hafa fengið ofgreiddar bætur á árinu. Þetta eru viðbrögð við gagnrýni upp á það að stofnunin láti allar bótagreiðslur falla niður hjá þeim sem hafa fengið ofgreidd- ar bætur. Ágúst Þór Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri hjá Tryggingastofn- un, segir að fyrirkomulagi á öllum lífeyristryggingum hafi verið bre- ytt í lögum frá 2002. Í stað þess að reikna út mánaðarlegan rétt hjá einstaklingum miðist allt við ársréttindi fólks. Stofnunin sendi öllum lífeyrisþegum tekjuáætlun fyrir upphaf næsta árs og tilgreini þar allar tekjur sem stofnunin viti um. Hún biðji fólk svo um að senda breytingar ef áætlunin er ekki rétt. „Ef fólk gerir ekki breytingar þá er viðbúið að það fái rangar greiðsl- ur. Þegar fólk gerir upp bætur árs- ins á eftir þá koma vangreiðslur og ofgreiðslur í ljós,“ segir hann. - ghs Tryggingastofnun ríkisins skoðar greiðslur til öryrkja: Kanna greiðslu grunnlífeyris TEKJUÁÆTLUN ÞARF AÐ BREYTA Ágúst Þór Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá TR, segir viðbúið að vangreiðslur og afgreiðslur komi í ljós ef ekki séu gerðar breytingar á tekjuáætlun. ÖRYRKJAR Rúmlega 80 manns, þar af um 60 öryrkjar og 20 ellilífeyr- isþegar, missa tekjur sínar síð- ustu tvo til þrjá mánuði ársins þar sem þessir einstaklingar teljast hafa fengið ofgreiddar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins eða þá að þeir hafa verið með tekjur sem koma til frádráttar við útreikning örorkubóta. Sigursteinn Másson formað- ur Öryrkjabandalags Íslands, segir að bandalagið hafi í tvær vikur reynt að ná sambandi við heilbrigðisráðuneytið, heilbrigð- isráðherra og Tryggingastofnun til að koma á samráði og fá reglu- gerð um stöðvun bótagreiðslna frá 4. október, sem unnið er eftir í þessu máli, mildaða, henni breytt eða helst að hún verði felld úr gildi. Sigursteinn segir að Trygg- ingastofnun túlki reglugerðina þannig að fella beri niður tekj- ur einstaklinga, sem hafi feng- ið ofgreiddar örorkubætur, út þetta ár. Sig- ursteinn segir að á næsta ári sé svo tekin upp aftur fra m k væmd sem hafi verið í gildi áður en reglugerð- in hafi komið til. Sú fram- kvæmd gangi út á að skerða tekjur ein- staklinga með ofgreiddar bætur um hámark 20 prósent. Sigur- steinn segir að Öryrkjabanda- lagið vilji þann framgangsmáta út þetta ár. „Að okkar mati er ófært að ganga fram með þessum hætti enda væri það ekki gert gagnvart neinum öðrum þjóðfélagshóp- um,“ segir Sigursteinn. „Burtséð frá lagatæknilegum atriðum og túlkun laga þá er það mat okkar að þarna sé um að ræða siðlausa framkomu gagnvart veiku og fötluðu fólki sem á mjög erfitt með að verja sig.“ Í dag er boðað til fundar í fram- kvæmdastjórn Öryrkjabanda- lagsins þar sem þetta mál verður tekið fyrir. Ef þá hefur ekki verið ákveðið af hálfu heilbrigðisráðu- neytisins og Tryggingastofnunar að laga þetta og skerða bæturn- ar að hámarki um 20 prósent 1. desember í stað fullrar skerðing- ar þá verður málið sett í lögform- legan farveg og til að byrja með sent til úrskurðarnefndar trygg- ingamála. ghs@frettabladid.is Siðlaus framkoma Yfir 80 öryrkjar og ellilífeyrisþegar missa tekjur sínar hjá Tryggingastofnun. Formaður Öryrkjabandalagsins segir um „siðlausa framkomu gagnvart veiku og fötluðu fólki“ að ræða. Öryrkjabandalagið vill minnka skerðinguna. FULL TEKJUSKERÐING EÐA SKERÐING UM 20 PRÓSENT? Rúmlega 80 manns fá fulla skerðingu á örorkubótum út þetta ár þar sem þeir hafa fengið ofgreiddar örorkubætur hjá Tryggingastofnun. Valur Höskuldsson, MND-sjúklingur, er í hópi þeirra fjölmörgu sem missa lífsviðurværi sitt síðustu mánuði ársins. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA VILL SAMRÁÐ Sigur- steinn Másson, formað- ur Öryrkjabandalagsins, vill að stjórnvöld hafi samráð við heildarsam- tök fatlaðra eins og lög gera ráð fyrir. HEILBRIGÐISMÁL Hætta gæti steðj- að að nýrnasjúklingum ef átta af 16 hjúkrunarfræðingum blóðskiljunardeildar Landspít- ala Háskólasjúkrahúss hætta þar störfum um áramótin. Þetta kom fram í máli Valdi- mars L. Friðrikssonar, þing- manns Samfylkingarinnar, sem spurði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra um málið á Alþingi í gær. Valdimar sagði að sérhæfing hjúkrunarfræðinganna væri slíka að heild ár tæki að þjálfa nýjan til starfa. „Átta þeirra túlka fyrirhugaðar breytingar á vinnutíma sem ígildi uppsagnar á ráðningarsamningi og munu því hætta að óbreyttu störfum um áramót,“ sagði Valdimar og taldi sparnaðaráform hafa verið lögð til grundvallar. Jón Kristjánsson heilbrigð- isráðherra sagðist ætlast til þess að forystumenn spítalans og starfsfólk setti niður þessar deilur og tryggðu áframhald- andi starfsemi deildarinnar. „Afgreiðsla á fjárlögum gefur ekki ástæðu til þess að tala um sparnaðaraðgerðir í þessu skyni og ég ætlast til að þetta mál verði leyst innan spítalans og trúi því að forysta spítalans og það starfsfólk sem hér á í hlut leysi þetta mál og tryggi þessa lífsnauðsynlegu þjónustu. - jh Heilbrigðisráðherra ætlast til þess að starfsfólk Landspítalans leysi deilur: Hætta störfum að óbreyttu ÍRAK Ekki er útilokað að Abu Musab al-Zarqawi, sem sagður er höfuðsmaður al-Kaída í Írak, hafi fallið í átökum uppreisnarmanna við bandaríska hermenn í Mosul um helgina. H e r m e n n - irnir réðust inn í hús í borginni þar sem talið var að herm- darverkamenn héldu sig. Í stað þess að falla í hendur Banda- r í k j a m a n n a kusu átta menn að svipta sig lífi. Að sögn dagblaðsins Science Daily er enn verið að bera kennsl á þá sem féllu og er ekki útilok- að að al-Zarqawi sé þar á meðal. Ráðgjafi Bandaríkjaforseta sem vitnað er til í frétt blaðsins telur þó ólíklegt að al-Zarqawi sé fall- inn. ■ Tekist á við uppreisnarmenn: Al-Zarqawi gæti verið allur ABU MUSAB AL- ZARQAWI Gæti hafa fallið í átökum í Mosul um helgina. JÓN KRISTJÁNSSON HEILBRIGÐISRÁÐ- HERRA „Ég ætlast til að þessi mál verði leyst innan spítalans.“ DANNENBERG, AP Flutningalest sem í eru tólf gámar kjarnorkuúrgangs nálgaðist áfangastað sinn í Þýskalandi í gær. Fjöldi mótmælenda reyndi að tefja för lestarinnar en allt fór þó friðsamlega fram. Á hverju ári er úrgangur flutt- ur frá kjarnorkuendurvinnslu í La Hague í Frakklandi til geymslu- svæðis í Gorleben í Neðra-Saxl- andi og fylgja flutningunum jafnan kröftug mótmæli íbúa svæðisins, svo og náttúruvernd- arsinna. Tíu þúsund lögreglumenn fylgdu lestinni að þessu sinni og hafa nokkrir tugir manna verið handteknir. ■. Kjarnorkuúrgangur ferjaður: Flutningnum ákaft mótmælt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.