Fréttablaðið - 22.11.2005, Blaðsíða 62
22. nóvember 2005 ÞRIÐJUDAGUR38
Jón Ólafsson
tónlistarmaður.
Það sem mér
finnst flott við
tónlistina þeirra
er þessi hráleiki
sem þau búa
yfir. Reyndar
lentu þau í
einhverjum
græjuvandræð-
um um miðbik
tónleikanna og
þá duttu þeir
aðeins niður
en þau kláruðu
þetta vel í rest-
ina. Mér fannst
þetta bara mjög
skemmtilegir
tónleikar.
Ólafur Páll Gunnarson dagskrárgerð-
armaður.
,,Mér fannst þetta ágætt, Ég stóð aftar-
lega og það var svolítið eins og að vera í
frímínútum í grunnskóla. Það var enda-
laus straumur af unglingum sem gerðu
lítið annað en að rápa fram á gang en
mér fannst gaman að því þó að ég hafi
verið reyndar orðinn frekar þreyttur
á því undir lokin. Annars fannst mér
tónleikarnir koma nokkuð vel út en ég
var samt ekkert heillaður
upp úr skónum. Þetta
var hin þokkalegasta
skemmtun.“
Ævar Örn Jóseps-
son dagskrár-
gerðarmaður og
rithöfundur.
Mér fannst þetta
bara nokkuð gott.
Það var reyndar
einhver óværa
í gítarnum hjá
honum á ákveðn-
um tímapunkti en
það lagaðist þegar
leið á. Mér fannst
heildarútkoman
bara flott.“
Andrea
Jónssóttir
dagskrárgerð-
armaður og
plötusnúður.
,,Mér fannst
gaman á þess-
um tónleikum.
Ég var reyndar
svolítið þreytt
en þau voru
mjög flott
á sviðinu.
Svolítið mikið
ráp á fólkinu í
salnum. Þrátt
fyrir það fannst
mér tónleik-
arnir góðir,
þeir höfðu
bæði rokk og
sjarma.“
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5 FRÉTTIR AF FÓLKI
Grínvefurinn www.baggalutur.is birtir frétt í léttum dúr um brotthvarf
Alfreðs Þorsteinssonar úr borgarstjórn-
málum en þar segir að „Reykvíkingar,
eins og raunar íslenska þjóðin öll“ séu
harmi slegin eftir yfirlýsingu Alfreðs um
að hann gefi ekki kost á sér til endur-
kjörs. Í frétt Baggalúts segir jafnframt að
almennt vonleysi ríki „í höfuðborginni
ásamt mikilli óvissu um framtíðina
og er reiknað með hruni
verðbréfamarkaða á hverri
stundu“. Þá er þess getið
að Alfreð hyggist snúa sér
að „því að stjórna byggingu
nýs hátæknisjúkrahúss,
en hann hefur mikla
reynslu af smíði
glæsihúsa á kostnað
skattgreiðenda“.
Það vakti athygli þegar útvarpsmaður-inn Gústaf Níelsson strunsaði nánast
út af Útvarpi Sögu í beinni útsendingu
eftir að honum lenti saman við útvarps-
stjórann Arnþrúði Karlsdóttur. Það eru
vitaskuld fyrst og fremst hlustendur
Sögu sem velta fyrir sér framtíð Gústafs
og á heimasíðu stöðvarinnar getur fólk
nú greitt atkvæði um það
hvort fólk vilji hafa Gústaf
áfram sem þáttastjórnanda á
Sögu. Þegar 134 hafa greitt
atkvæði vilja 68,35%
halda Gústaf áfram en
31,65% sakna hans ekki.
Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, er hæstánægður
með helgina og liðna viku sem hann
telur hafa verið þá bestu síðan Halldór
Ásgrímsson tók við forsætisráðuneytinu.
Tilkynning Björns Inga um að hann
sækist eftir efsta sæti Framsóknarflokks-
ins fyrir borgarstjórnarkosningarnar setti
vitaskuld mikinn svip á helgina hjá Birni
Inga sem bauð fjölmiðlum
heim stil sín á laugardag
til þess að kynna framboð
sitt. „Baráttan er rétt að
hefjast, en ég get ekki
annað en verið sáttur
við fjölmiðlaumfjöllun
helgarinnar. Þá var
ég gestur í Silfri Egils
í dag og varð aukin-
heldur þess heiðurs
aðnjótandi að fá Nýju
fréttastöðina (NFS)
heim til mín í gær í
beina útsendingu,“
segir Björn Ingi á
heimasíðu sinni.
LÁRÉTT 2 plat 6 í röð 8 hæfileikamikill 9
veitt eftirför 11 á líðandi stundu 12 land
14 dans 16 samtök 17 mælieining 18 titill
20 klukkan 21 horfðu.
LÓÐRÉTT 1 afl 3 Austfirðir 4 biblía 5 stein-
bogi 7 drollari 10 traust 13 bókstafur 15
óskiptur 16 kraftur 19 utan.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 gabb, 6 rs, 8 fær, 9 elt, 11 nú,
12 kórea, 14 rúmba, 16 aa, 17 mól, 18 frú,
20 kl, 21 litu.
LÓÐRÉTT: 1 þrek, 3 af, 4 bænabók, 5 brú,
7 slórari, 10 trú, 13 emm, 15 alls, 16 afl, 19
út.
HRÓSIÐ
...fær Gísli Örn Garðarsson fyrir
að vera boðið að leika með einum
virtasta leikhópi Breta.
HVERNIG FANNST ÞÉR WHITE STRIPES TÓNLEIKARNIR?
Gullkindin, verðlaun sem veitt
eru fyrir verstu frammistöðu
í fjölmiðlum og hvers kyns
afþreyingu, verða afhent á
Ölveri næstkomandi fimmtudag
við hátíðlega athöfn. Þetta er í
annað skiptið sem þessi hátíð fer
fram en í fyrra stóð útvarpsþátt-
urinn Tvíhöfði að þeim í fyrsta
skipti. Hann er nú hættur í þeir-
ri mynd og að þessu sinni er það
því morgunþátturinn Capone
á X - Fm sem tekur við keflinu
en umsjónarmenn þáttarins eru
þeir Andri Freyr Viðarsson og
Búi Bendtsen. „Sigurjón Kjart-
ansson kom hingað upp í hljóð-
ver og afhenti okkur réttindin
formlega,“ útskýrir Andri þegar
hann er spurður af hverju þeir
standi í þessu þetta árið.
Áhugasamir geta kosið á
heimasíðu útvarpsstöðvarinn-
ar, www.xfm.is. Mun vægi net-
kosningarinnar vega 60 prósent
til móts við val akademíunnar
en mikil leynd hvílir yfir því
hverjir skipa hana. „Það verð-
ur ekki gefið upp,“ segir
Andri dularfullur. Ekkkert
verður til sparað svo Gull-
kindin verði sem glæsileg-
ust úr garði gerð, dúkar
verða á borðum og lif-
andi tónlistaratriði
á milli afhendinga
en meðal þeirra
sem koma fram
er Hairdoctor
og Rass en hún
ætlar að spila
ó r a f m a g n a ð .
Það er engin
önnur en Silvía
Nótt sem verð-
ur aðalkynnir en
eflaust er það kald-
hæðni örlaganna
að sjónvarpsmaður
ársins frá Eddu verðlaunun-
um skuli sinna því hlut-
verki þetta árið. „Þetta er
auðvitað í léttum dúr en
líka smá vísbending um
að fólk ætti að hysja upp
um sig buxurnar,“ segir
Andri og bætir því við að
hann vonist til að sjá
þá sem eru tilnefnd-
ir. „Ef fólk hefur
ekki smá húmor fyrir
sjálfum sér ætti það
bara að fara út í horn,“
bætir hann við.
Um er að ræða tíu
flokka og býst Andri við ónveju
harðri keppni þetta árið. „Ég
held að Málið eigi eftir að taka
Gullkindina sem versta tíma-
ritið og Reykjavíkurnætur sem
versti sjónvarpsþátturinn en
Kvöldþátturinn gæti líka komið
sterkur inn,“ lýsir útvarpsmað-
urinn yfir en reiknar þó með því
að baráttan um titilinn versti
sjónvarpsmaðurinn verði hvað
hörðust. „Þar stendur barátt-
an á milli þeirra Guðmundar
Steingrímssonar og Ragnheið-
ar Guðfinnu í morgunsjónvarp-
in Stöðvar 2. Ég hallast samt
að Ragnheiði,“ segir Andri. Þá
verður ekki gefið upp hver hlýt-
ur Heiðursverðlaun Gullkindar-
innar en Helgi Seljan afhendir
þau.
freyrgigja@frettabladid.is
RAGNHEIÐUR GUÐFINNA
GUÐNADÓTTIR Kemur
að mati Andra Freys hjá
útvarpsþættinum Cap-
one sterklega til greina
sem versti sjónvarpsmaður
ársins.
GULLKINDIN: SILVÍA NÓTT AÐALKYNNIR
Baráttan um verðlaunin
óvenju hörð í ár
ANDRI FREYR VIÐARSSON OG BÚI BENDTSEN Hafa tekið við umsjón Gullkindarinnar sem
fram fer næstkomandi fimmtudag á Ölveri. FRÉTTABLAÐIÐ / E.ÓL
Íslendingar eru komnir í hátíð-
arskap ef marka má miðasölu á
jólatónleika Frostrósa í Laugardals-
höll 10. desember næstkomandi.
Um 2400 miðar seldust í sérstakri
Visa-forsölu og þegar almenn miða-
sala var farin vel af stað í gær voru
einungis rúmir þrjú hundruð miðar
eftir. Þetta er í fjórða skiptið sem
Frostrósir halda jólatónleika en nú
á að tjalda öllu til enda er þetta í síð-
asta skipti sem þeir verða í þessari
mynd. 25 manna stórhljómsveit og
150 manna kór verða söngdívunum
sjö innan handar auk Bjarna Ara,
Leone Tinganelli og Gunnars Guð-
björnssonar.
„Þetta er alveg fáránlegt,“
sagði Samúel Kristjánsson hjá
2112 þegar hann var inntur eftir
viðbrögðum sínum við góðri miða-
sölu og sagði þetta vera mun meiri
sala en undanfarin ár. „Við erum
að skoða möguleika á því að bæta
við tónleikum sem yrðu þá fyrr um
daginn,“ bætti hann við en sam-
kvæmt tónleikahaldaranum yrði
það í fyrsta skipti sem íslenskum
tónlistarmönnum tækist að fylla
Höllina tvívegis.
Samúel sagðist ekki kunna
neinar skýringar á þessari góðu
sölu aðrar en þær að tónleikar und-
anfarinna ára hefðu spurst vel út.
Þá skemmdi það heldur ekki fyrir
að umgjörðin yrði með glæsileg-
asta móti. „Sú staðreynd að þetta
eru síðustu Frostrósa-tónleikarnir
trekkir örugglega vel að.“ - fgg
Örfáir miðar eftir á jólatónleika
Frostrósa í Laugardalshöll
FROSTRÓSIR Stúlkurnar sjö sem hafa skipað Frostrósir undanfarin fjögur ár koma í fyrsta
sinn allar saman til að syngja á síðustu tónleikum dívanna.
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
Mest lesna
vi›skiptabla›i›
G
al
lu
p
kö
nn
un
f
yr
ir
36
5
pr
en
tm
i›
la
m
aí
2
00
5.
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4
[ VEISTU SVARIÐ ]
1 Aðalsteinn Þorsteinsson.
2 Valgerður Sigurðardóttir.
3 Björk Guðmundsdóttir.