Fréttablaðið - 22.11.2005, Blaðsíða 36
Bíóhöllin er eitt elsta kvikmynda-
hús landsins, byggt árið 1942.
Húsið rúmar um 270 manns í sæti
og er vel tækjum búið. Kvikmynda-
sýningar í húsinu eru fjórum til sjö
sinnum í viku en undanfarið hefur
húsið verið notað til tónleikahalds,
leiksýninga, fundahalda og annarra
viðburða.
Ísólfur Haraldsson tók við rekstri
Bíóhallarinnar fyrir fjórum árum,
þegar skemmtanahaldið á Skag-
anum var í töluverðri lægð. Hann
segir að rekstrarumhverfi hallarinn-
ar hafi breyst og nú sé hún rekin
eins og hvert annað fyrirtæki. „Inn
í þetta er komin tækjaleiga, hljóð-
kerfaleiga og umboðsskrifstofa þar
sem við erum að hjálpa hinum og
þessum að koma upp viðburðum,“
segir Ísólfur. „Við höldum viðburði
eins og Lopapeysurnar, sem er
árlegt ball á Írskum dögum niðri á
bryggju, og síðan höldum við Sept-
emberfest í samvinnu við ÍA.“
Dagana 23. og 24. nóvember
verður forsýnd í Bíóhöllinni stór-
myndin Harry Potter and the Goblet
of Fire, á undan öðrum kvikmynda-
húsum. „Það er ekkert sjálfgefið að
við fáum að sýna svona mynd. Ef
ég hefði beðið um það fyrir þremur
árum hefði það líklega ekki geng-
ið. Við höfum verið að vinna mikið
með Sambíóunum, Myndformi og
Skífunni og þessi fyrirtæki hafa
komið vel til móts við okkur,“ segir
Ísólfur og bætir því við að síðustu
vikur hafi verið mjög viðburðaríkar.
„Það hafa verið fimm tónlistarvið-
burðir, eitt leikrit og fullt af bíó-
sýningum. Þetta kemur í rosalegum
kippum.“
Á meðal tónlistarviðburða voru
tónleikar með Írafári, minning-
artónleikar um Karl Sighvatsson
og tónleikar með Stefáni Hilmars-
syni og Eyjólfi Kristjánssyni, sem
heppnuðust allir mjög vel. Er Bíó-
höllin sögð henta vel til tónleika-
halds, sér í lagi vegna stærðarinnar
og hljómburðarins sem ekki ómerk-
ari menn en Bubbi Morthens hafa
hrósað mikið.
Aðspurður segir Ísólfur að
skemmtanalíf Skagamanna sé orðið
mun fjölbreyttara en áður. „Þetta
er svart og hvítt miðað við hvernig
þetta var 2001. Núna hefur bærinn
stækkað og það eru fleiri farnir að
gera einhverja hluti. Það spilar allt
saman ef fleiri koma að þessum
viðburðum en bara við.“
Bíóhöllin á Akranesi hefur verið sífellt meira áberandi
í skemmtanalífi Skagamanna að undanförnu. Ísólfur
Haraldsson segir að áhuginn á hinum ýmsu viðburðum
hafi aukist til mikilla muna.
Fjölbreyttara
skemmtanalíf
Ísólfur Haraldsson hefur séð um rekstur Bíóhallarinnar frá árinu 2001 með hjálp félaga sinna.
■■■■ { vesturland } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Á dögunum fór fram æskulýðs- og
forvarnaball í íþróttamiðstöðinni í
Borgarnesi sem haldið var á vegum
félagsmiðstöðvarinnar Óðals og
nemendafélags Grunnskólans í
Borgarnesi. Að sögn Indriða Jós-
afatssonar, íþrótta- og æskulýðs-
fulltrúa í Borgarnesi, var ákveðið
að hafa þema tónleikanna að þessu
sinni áróður gegn reykingum.
Áhersla var lögð á að benda á þá
hættu sem reykingar geta valdið
eins og til dæmis auknar líkur á
krabbameini. Til að minna ræki-
lega á þetta voru kirkjurnar í Borg-
arnesi og á Borg á Mýrum sem og
Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi upp-
lýstar með bleikum lit þetta kvöld.
Unglingar úr félagsmiðstöðinni
Óðali áttu veg og vanda af skreyt-
ingum í Íþróttamiðstöðinni og
þegar dagur var að kveldi kominn
og unglingarnir mættir á skemmt-
unina var Íþróttamiðstöðin nánast
óþekkjanleg.
Alls mættu um 450 ungmenni á
ballið frá flestum skólum í sveitinni
og tókst skemmtunin afskaplega
vel í alla staði. Dagskrá kvöldsins
byrjaði með glæsilegum söng- og
dansatriðum frá nemendafélögum
skólanna. Þar sást bersýnilega að
margir ungir og efnilegir lista-
menn úr héraðinu eiga áreiðanlega
eftir að vekja töluverða athygli
í framtíðinni. Þar á eftir lék ein
vinsælasta hljómsveit landsins, Í
svörtum fötum, fyrir dansi til mið-
nættis. Að lokum fengu allir ball-
gestir barmmerki að gjöf frá Vímu-
varnanefnd Borgarbyggðar sem á
stóð ,,Ég hugsa... Ég reyki ekki“.
Ljóst er að allir þeir sem sóttu
samkomuna geta verið stoltir þar
sem engin agavandamál komu
upp. „Þessi samkoma gefur mjög
jákvæða mynd af unglingum sem
tóku þarna þátt í að setja upp for-
varnarhátíð eins og unglingar vilja
hafa hana og gefur góð fyrirheit
um að unglingum er alls ekki sama
um að vinir þeirra séu að reyk-
ja eða neyta vímuefna. Aldrei má
slaka á áróðrinum, alltaf koma nýir
unglingar inn á jaðarsvæðin og
þetta er meðal þess sem við erum
að gera hér í forvarnarmálum,“
sagði Indriði að lokum.
Unglingar skemmta
sér án vímuefna
Rokkhljómsveit frá Borgarnesi á forvarnarballinu sem var haldið á dögunum við góðar undirtektir.
Mikið fjör var á ballinu, sem fór mjög vel fram.
Stebbi og Eyvi stóðu sig vel í Bíóhöllinni.
10