Fréttablaðið - 22.11.2005, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 22.11.2005, Blaðsíða 21
[ ] FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Heimild: Almanak Háskólans �������������� ������� ������������������ ������������� �������� ������ ����������������� ��� ���� ������������������� ������� ������� ������������� �������������� �������������� ��������������� �������������� � �������� Davíð Þór Jónsson, tríóstjóri Flís, stælir líkamann þessa dagana við byggingar- vinnu. Davíð Þór Jónsson píanóleikari er alltaf á iði þessa dagana og heldur sér mest í formi með því. „Ég er ekki mjög duglegur í líkamsræktinni núna,“ viðurkennir hann. „En ég geri mikið af því þessa dagana að hlaupa milli staða, auk þess að vera í bygg- ingarvinnu, negla og mála.“ Þegar hann tekur sig á eru það ekki bekkpressur og hnélyftur sem eru vinsælastar. „Ég geri stundum armbeygjur og magaæfingar, fer í sund, labba mikið og skokka. Þegar ég er mjög duglegur fer ég á fjöll. Svo reyni ég að forðast aukaefni í mat eins og MSG og svoleiðis rugl. Ég tek engin fæðubótarefni nema djúpsjávarþörunga, Spirulina, sem er grænt og heilsusamlegt stöff. Ég finn mikinn mun á mér eftir að ég byrjaði að taka þá því stundum gleymi ég að borða. Annars er mitt heilsuráð til þjóðarinnar að borða nóg sushi og drekka mikið vatn.“ Davíð Þór spilar auðvitað með tríó- inu sínu, Flís, en líka með Benna Hemm Hemm og Ingibjörgu Þorbergs. Svo sér hann um tónlistina í barnaleikritinu Jóla- sveinar sem sýnt verður í Þjóðleikhúsinu. Annars segir hann helstu líkamsræktina þessa dagana felast í byggingarvinnu. „Flís er að hamast við að byggja sér stúdíó uppi í Grafarholti, okkar eigin heimavinnu- stofu. Þar ætlum við að hafa heitan pott og garðskála fyrir veislur. Þetta verður svo frábært að við flytjum sennilegast þang- að þegar stúdíóið er tilbúið,“ segir Davíð Þór og flýtir sér að byrja að negla sér til heilsubótar. Byggir stúdíó sér til heilsubótar Góðan dag! Í dag er þriðjudagur 22. nóvember, 326. dagur ársins 2005. Davíð Þór mundar borvélina vígalegur og heldur sér í feiknaformi með því. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK KRÍLIN Ég veit hvað dögg er ... það er þar sem álfarnir hafa hellt niður! Leiðbeiningar um getnaðar- varnir er bæklingur sem Land- læknisembættið hefur gefið út. Þetta er ný og endurskoðuð útgáfa fræðslubæklings um getnaðarvarnir sem áður hefur verið gefinn út. Helstu breytingar eru að tveimur nýjum aðferðum við getnaðarvarnir, horm- ónaplástri og neyðar- getnaðarvörn, hefur verið bætt við, en alls er skýrt frá fimmtán mismunandi getnaðarvörnum. Umfjöll- un um neyðargetnað- arvörn og getnaðarvarnir eftir fertugt er ítarlegri en áður og nýr kafli er um getnaðarvarnir og unglinga. Bæklingnum er dreift endurgjaldslaust og verður hægt að nálgast hann á heilsugæslustöðvum og hjá Landlæknisembættinu. KK og Ellen systkinin söng- elsku, hafa nýverið sent frá sér jólaplötuna Jólin eru að koma með uppáhaldsjólalögunum sínum. Miðasala á útgáfutón- leika þeirra í Fríkirkjunni í Reykjavík 8. desem- ber hefst á morgun, miðvikudag, á midi.is og Skífubúðum og BT versl- unum. Sérstakir gestir á tónleikunum verða Þorsteinn Einarsson á gítar, Petter Winnberg á kontrabassa og Eyþór Gunnarsson á píanó. Verða lög af geisladisknum á efnisskránni ásamt eldri lögum þeirra systkina. Miðaverð verður tvískipt, 2.500 krónur í sæti niðri og 1.700 krónur uppi. KK og Ellen munu halda í stutta tónleikaferð um landið í kjölfar útgáfutónleikanna. LIGGUR Í LOFTINU [ JÓL - HEILSA ] Reykjavík 10.19 13.14 16.08 Akureyri 10.22 12.59 15.35 PISTILL Hollráð Sölva Fannars bls. 2 JÓLALJÓS Mikið um dýrðir í miðbænum bls. 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.