Fréttablaðið - 27.11.2005, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 27.11.2005, Blaðsíða 18
 27. nóvember 2005 SUNNUDAGUR18 www.skifan.is ...skemmtir þér ; ) ÁRITANIR Í SKÍFUNNI Í DAG! Tryggðu þér heitustu titlana á tilboðsverði í Skífunni um helgina! Kringlankl.13.00 Hansa - Mannsöngvar Smáralindkl.15.00 Jón Sigurðsson Kringlankl.14.00 Heiða Smáralind kl.14.00 Heitar Lummur Helgi Björnsson Kringlan kl.15.00 Kringlan kl.16.00 Leone Tiganelli Helgartilboð 1.599 kr. Helgartilboð 1.599 kr. Kringlankl.15.00Heiða Helgartilboð 1.599 kr. Helgartilboð 1.599 kr. Helgartilboð 1.599 kr. Helgartilboð 1.599 kr. Helgartilboð 1.599 kr. Sigurður Þórður Ragnars- son veðurfræðingur eða Siggi Stormur eins og hann er stundum kallaður er ekki maður sem gustar af; hann stormar ekki gegnum lífið með bægslagangi. Hann er þvert á móti rólegur og yfirvegaður. Samt er engin lognmolla kringum hann því maðurinn er glettinn og glaðsinna og það er stutt í brosið. Við nafnarnir hittumst á Hótel Borg; þessari háborg íslenskra veitinga- og skemmtistaða gegnum tíðina. Það er ekki hávaðanum fyrir að fara rétt á meðan við stöldrum við; stóísk ró svífur yfir vötnun- um og í bakgrunni óma íslensk- ar og erlendar dægurlagaperlur. Svavar Lárusson er að syngja um Sjönu síldarkokk þegar við setj- umst að spjalli; eflaust hefur það lag oft hljómað áður hér á Borg- inni og ýmsir vafalaust stigið við það dans og sveiflað sér um gólf- dúkinn með elegans, einsog segir í ljóðinu. Notaleg nærvera Við setjumst við borð úti við glugg- ann að Pósthússtrætinu og uppi á Alþingishúsinu strekkir ísköld norðanáttin á íslenska fánanum. Fólk á ferli utan við gluggann er kappklætt og kuldalegt. Við dreypum á heitu kaffi. Sigurður er maður með nota- lega nærveru, traustvekjandi og kurteis; handtakið þétt. Hann hall- ar örlítið undir flatt þegar hann talar og er hláturmildur þegar umræðuefnið býður upp á slíkt. Þá birtist spékoppur á hægri vanga. Lífið snýst um veðurfar Talið berst að veðrinu enda Sig- urður einn þekktasti veðurfræð- ingur landsins og brautryðjandi í því að fræða landsmenn um veður og veðurfar á mannamáli í sjón- varpi. „Það má segja að allt líf mitt snúist um veður,“ segir hann og hlær stuttlega. Með þessu á hann við að starfið fylgir honum hvert fótmál, það er engrar undankomu auðið, ekki heldur utan vinnutíma. „Það er nánast sama hvert ég fer, alls staðar er fólk sem vill ræða við mig um veðrið. Og það hringir líka heim til mín, bændur og búa- lið“, bætir hann við og nú hlæjum við báðir með öllum kjaftinum eins og Sverrir Hermannsson myndi segja. Býr við stöðugt áreiti Þjónninn kemur og upplýsir okkur um að réttur dagsins sé steinbít- ur og hörpuskel, borin fram með fíkjum, gráðosti og steiktum kartöflum. Vissulega freistandi en við látum kaffið nægja. Soffía Karlsdóttir syngur um drauminn að vera með dáta og dansa fram á nótt ... Og þeir voru aldeilis hér á Borginni, dátarnir. Sigurður segist oftast nær taka því ljúfmannlega þó fólk sé að hringja heim til hans eftir veður- spám; hann alinn upp við kurteis- legt viðmót og hefur tileinkað sér það á lífsins göngu. En auðvitað getur kurteisustu menn þrotið þolinmæðin. „Það er orðið þannig að ég á erfiðara og erfiðara með að fara á skemmtistaði,“ segir Sigurður alvarlegur í bragði. „Það er sífellt áreiti, flest vel meint en þetta verður þreytandi og pirrar konuna mína reyndar meira en mig.“ Besta veðrið ekki á Íslandi Við fáum okkur meira kaffi og ég spyr hann um uppáhaldsveðr- ið. „Besta veðrið mitt er ekki á Íslandi,“ segir hann sposkur á svip. „Það er kannski skammar- legt að segja þetta sem Íslend- ingur en þá er það þannig að ég vil hlýindi og ég vil bjartviðri og það er ekki á það treystandi hér,“ bætir hann við og brosir sannfær- andi. Hann sækir því töluvert í hlýj- una; enda heimatökin hæg þar sem faðir hans býr suður á Spán- arströndum og þangað liggur leið fjölskyldunnar iðulega þegar færi gefst. Íslenskt veður ekki heilsusamlegt Við ræðum áhrif veðurfars á ýmsa kvilla sem mannskepnuna hrjá og það er eiginlega niðurstaða okkar að íslenskt veðurfar sé ekki sérlega heilsusamlegt: myrkrið gerir menn þunglynda, frosthörk- ur eiga illa við þá sem stríða við húðsjúkdóma og lægðagangur fer oft bölvanlega í gigtveika. „Ég hef stundum spurt mig að því,“ segir Sigurður og setur upp prakkara- legan svip, „hvað hann Ingólfur var eiginlega að þvælast hingað norður á sínum tíma. Tæpast var það veðrið sem dró hann hingað,“ bætir hann við og skellihlær. Síðan segir hann mér frá sænskri rannsókn á hermönnum frá Suður-Svíþjóð sem sendir voru til herþjónustu norður að landa- mærunum við Finnland. „Það sem gerðist var að þeir veiktust allir með tölu, þeir þoldu ekki myrkrið og þetta er klárlega vísbending um hvaða áhrif veður og birta getur haft á geðslag mannsins,“ segir hann alvörugefinn. Hleður batteríin á fjöllum Þá sjaldan sem Sigurður á frí ligg- ur leiðin oft á fjöll enda ólst hann upp við fjallaferðir. Alls kyns úti- vist á reyndar vel við hann og þar finnst honum best að hlaða batt- eríin fjarri skarkala heimsins. Og hann er hundamaður. „Ég er búinn að eiga þrjá hunda um ævina og á núna einn Golden Retriever,“ segir hann með væntumþykju í röddinni. Allir hundar Sigurðar hafa borið nafnið Táta. „Ég hef stundum haft það á orði að ég hef aldrei átt hund, bara tíkur,“ segir hann hlæjandi. Skammarlega farið með öryrkja Sigurður og kona hans eiga þrjú börn og það hefur sett sitt mark á fjölskyldulífið að elsti sonur- inn er fatlaður; með heilalömun sem gerir hann spastískan öðru megin. „Það er óneitanlega mikil lífsreynsla að ala upp fatlað barn,“ segir Sigurður með alvöruþunga, „og það mótar mann á vissan hátt. Ég hef ávallt orðað þetta sem svo að mér var treyst til þess af skap- aranum að ala upp fatlað barn.“ Þessi reynsla mótar líka afstöðu Sigurðar til þess hvern- ig þjóðfélagið sinnir öryrkjum og öðrum þeim sem minna mega sín. „Mér finnst þetta í einu orði sagt skammarlegt,“ segir hann og hristir höfuðið. „Við skömmtum þessu fólki, sem getur yfirleitt ekkert að fötlun sinni gert, eitt- hvert lítilræði líkt og þetta séu ómagar á samfélaginu. Og sumir tala um þetta sem ölmusufólk. Mér þykir sárt til þess að hugsa að þegar strákurinn minn verður fullorðinn þá þarf hann að lifa á 85 þúsund krónum á mánuði. Og ég held að það sé þungbært sér- hverju foreldri fatlaðs barns að hugsa til þess að samfélagið býr þannig um hnútana að viðkomandi einstaklingur á sér ekki neina við- reisnarvon í lífinu.“ Við ljúkum spjallinu á þess- um nótum og í þann mund sem við yfirgefum hlýleg salarkynni Hótel Borgar er Judy Garland að syngja: Somewhere Over the Rainbow ... Lognið í auga Stormsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.