Fréttablaðið - 27.11.2005, Blaðsíða 29
ER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR? MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINS
��������������
�������
������������������
�������������
��������
������
�����������������
��� ����
�������������������
�������
�������
�������������
��������������
��������������
���������������
��������������
� ��������
Dagbjartur Garðar Einarsson hóf störf
sem þulur handknattleiksdeildar Fram
nú í haust. Þar hefur hann farið á
kostum og vakið verðskuldaða athygli
fyrir líflega og umfram allt kröftuga
framkomu.
Dagbjartur, eða Daddi eins og hann er oftast
kallaður, segir að Jóhann Einar, stórskytta
úr Fram, hafi bent stjórnendum félagsins á
sig. Daddi sér ekki eftir því að hafa tekið
að sér þetta starf. „Starfið felst í því að
bæði peppa áhorfendur og leikmenn upp og
reyna að ná sem bestri stemningu á leikn-
um,“ segir Daddi eftir að hafa hugsað lengi
um hvað felst í starfinu. Til að ná þessari
stemningu segist Daddi þurfa að lifa sig vel
inn í leikinn. „Ég er reyndar bara ég sjálfur.
Þetta kemur einhvern veginn af sjálfu sér.“
Kappið hefur stundum hlaupið með
Dadda í gönur því eitt sinn fékk hann til-
tal frá dómara. „Ég var beðinn um að róa
mig aðeins niður því ég var farinn að öskra:
Áfram Framarar! Ég hafði ekki hugmynd
um að það mætti ekki en maður er ekki
alveg með handboltafræðina á hreinu. Einu
sinni kynnti ég líka óvart lið FH þegar við
vorum að keppa á móti Aftureldingu. Það
reyndar þarf ekkert að vera góður í hand-
boltafræðunum í þessu starfi, bara að vera
hæfilega áræðinn og vitlaus,“ segir Daddi.
Lögin sem notuð eru á leikjum, til
dæmis á meðan leikhlé eru, segir Daddi
að séu mjög mikilvæg. „Ég er kominn með
sérlegan aðstoðarmann í það starf, Heimi
Orra Magnússon, góðvin minn. Við ætlum
einmitt að hittast fyrir næsta leik og sjóða
saman góða lagarunu. Við reynum að höfða
til allra aldurshópa og reynum umfram allt
að koma á góðu stuði,“ segir Daddi hress í
bragði. Daddi segir að Heimir hafi til dæmis
komið með þá nýjung að spila ,,Bad boys,
bad boys“ þegar leikmenn eru reknir út af
og allt slíkt geri leikinn skemmtilegri.
Á leikjum reynir Daddi ekki að taka and-
stæðingana á taugum. Umfram allt reynir
hann að koma leikmönnum Fram í stuðið.
„Þegar þeir peppast upp brotna andstæð-
ingarnir niður,“ segir Daddi að lokum með
stuð í hjarta. steinthor@frettabladid.is
Þarf að vera hæfi-
lega vitlaus
Dagbjartur Garðar Einarsson er með risastórt Framhjarta og hefur stuðlað að skemmtilegri stemningu á heima-
leikjum Framara í handbolta.
Hvernig verður maður nuddari bls. 6
Einkaþjálfari í góðu formi bls. 8
Samkvæmt vefriti fjármála-
ráðuneytisins hafa heildar-
tekjur aldraðra aukist jafn
mikið og annarra aldurshópa
síðasta áratug. Heildartekjur
einhleypra á aldrinum tuttugu
og fimm til sextíu og sex ára
hafa aukist um hundrað og
nítján prósent og heildartekjur
einhleypra sem eru sextíu
og sjö ára eða
eldri hafa aukist
um hundrað
þrjátíu og fjögur
prósent. Heild-
artekjur hjóna
hafa aukist um
hundrað og
fimmtíu prósent
hvort sem þau
eru eldri eða
yngri en sextíu
og sjö ára.
Árni Magnússon félagsmála-
ráðherra stendur fyrir ráðstefnu
um jafnréttismál í Salnum 1.
desember. Félagsmálaráðherra
hvetur karla til þess að taka
þátt í jafnréttisumræðunni svo
að árangur náist.
Félagsmenn VR geta fengið
tvær orlofsíbúðir félagsins í
nýlegu fjölbýlishúsi á Laugar-
vatni leigðar yfir jólatímann.
Íbúðirnar eru leigðar út í
sólahring, yfir helgi eða í heila
viku í senn.
30.000 konum í Bretlandi er
sagt upp störfum eða þær
neyddar til að hætta ár hvert
vegna þess að þær eiga von á
barni og 200.000 í við-
bót þurfa að þola mis-
rétti af þessum sökum
samkvæmt upplýsing-
um frá Jafnréttisráði
Bretlandseyja. Ástandið
er ennþá svona þrátt
fyrir að lög sem gera
slíkar aðfarir ólöglegar
hafi verið við lýði þar
um slóðir í þrjátíu ár.
Ekki virðist skipta máli hvort
um konur í hálaunastörfum
eða þeim lægst launuðu er
að ræða. Vinnumissirinn getur
haft áhrif á alla fjölskylduna
þar sem tekjumissirinn sem
fylgir í kjölfar vinnumissis
konunnar getur jafnvel orðið
til þess að fjölskyldan þurfi að
skipta um húsnæði. Þessar
konur eru sjaldnast í ástandi til
að sækja rétt sinn fyrir dóm-
LIGGUR Í LOFTINU
ATVINNA
Góðan dag!
Í dag er sunnudagur 27. nóvem-
ber, 331. dagur ársins 2005.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 10.34 13.15 15.56
Akureyri 10.39 13.00 15.20
Heimild: Almanak Háskólans
1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8
Vef- og viðmótsþróun
Starfssvið
Þróun vefkerfa og notendaviðmóta. Þarfagreiningar fyrir viðskiptavini TrackWell og ábyrgð á afhendingu lausna.
Hæfniskröfur
Umsækjandi þarf að hafa menntun á sviði tölvunar- eða kerfisfræði. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi víðtæka
reynslu af vefþróun, uppbyggingu vefþjónustu og hönnun viðmóta. Viðkomandi þarf einnig að hafa góða þekkingu á
Java J2EE eða .NET þróun. Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á Linux eða Unix stýrikerfum og einu eða fleiri
skriftumálum.
Þróun og þjónusta viðskiptalausna
Starfssvið
Þróun og þjónusta á viðskiptalausnum TrackWell. Samskipti við viðskiptavini TrackWell og ábyrgð á afhendingu lausna.
Hæfniskröfur
Umsækjandi þarf að hafa reynslu og menntun í hugbúnaðargerð. Viðkomandi þarf að vera skipulagður og hafa ríka
þjónustulund.
Allir umsækjendur þurfa að hafa frumkvæði og verða að geta unnið sjálfstætt, agað og eiga auðvelt með samskipti við
aðra. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að vinna í tæknilega krefjandi umhverfi og tileinka sér nýja hluti.
Nánari upplýsingar má fá hjá framkvæmdastjóra hugbúnaðarsviðs Sigurði E. Guttormssyni.
Tekið er á móti ferilsskrám á job@trackwell.com eða á skrifstofu félagsins.
Sérfræðingar óskast
TrackWell er leiðandi fyrirtæki í hugbúnaðarlausnum sem hámarka nýtingu
hreyfanlegra auðlinda (Mobile Resource Management). Fyrirtækið er í góðum
rekstri með marga trausta viðskiptavini og samstarfsaðila. Hjá fyrirtækinu
starfar góður og samstilltur hópur með mikla reynslu og þekkingu.
TrackWell hf.
Laugavegi 178
sími 510 0600
fax 510 0601
www.trackwell.com
Staða leikskólastjóra við
leikskólann Sólborg Ísafirði
Staða leikskólastjóra er laus frá og með 1. janúar
2006. Sólborg er fjögurra deilda skóli með börn á
aldrinu 1-6 ára og eru einkunnarorð skólans: virð-
ing-gleði-sköpun.
Leitað er að leikskólastjóra sem er með leikskóla-
kennaramenntun, með reynslu af stjórnun skóla og
starfsmannastjórnun, lipran í mannlegum samskipt-
um og með góða faglega þekkingu á málefnum
leikskóla.
Umsóknir skulu berast til: Sigurlínu Jónasdóttur
leikskólafulltrúa, Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísa-
fjarðarbæjar, Hafnarstræti 1, Ísafirði. Leikskólafulltrúi
veitir nánari upplýsingar í s. 450 8001, netfang:
leikskolafulltrui@isafjordur.is.
Við bjóðum flutningsstyrk, þróttmikla leik,-
grunn, -og menntaskóla, öflugt íþrótta- og
menningarlíf, frábæra fjallaloftið okkar og
margrómaða ísfirska lognið.
Umsóknarfrestur er til 30. nóvember 2005.