Fréttablaðið - 12.12.2005, Side 6
FÆR MIKLA ATHYGLI Unnur Birna gefur aðdáendum sínum eiginhandaráritanir á blaðamannafundi í Sanya í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ARFTAKI
HARRY POTTER?
„Hrein skemmtun, stanslaust fjör.“
– The Times
Spielberg kvikmyndar
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
V
ER
3
03
72
1
1/
20
05
– amazon.com
FEGURÐARSAMKEPPNI „Þetta var
alveg ólýsanlegt,“ segir Unnur
Birna, sem var enn í skýjunum
þegar Fréttablaðið hafði samband
við hana í gær. „Þegar ég var
komin í sex stúlkna úrslit var ég
voðalega hissa og átti alls ekki von
á meiru. Svo var búið að tilkynna
annað og þriðja sætið og þá var
ég eiginlega bara búin að gleyma
þessu. Svo bergmálaði „Iceland“
um salinn og ég gjörsamlega
missti andlitið,“ segir Unnur
Birna og bætir því við að það sem
við hafi tekið sé í hálfgerðri móðu.
„Ég man varla eftir því að hafa
staðið þarna og veifað.
Eftir krýninguna tóku við
myndatökur á sviðinu og svo dreif
öryggisgæslan mig út í limósínu
og ók mér upp á hótel. Þar var
haldið sérstakt krýningarball með
öllum stelpunum og fjölskyldum
þeirra. Ég fékk að skreppa aðeins
upp á herbergi til þess að átta mig
og sat þar bara ein og hló. Í dag er
ég líka búin að standa mig að því
að skella upp úr annað slagið.
Ég er ekki enn búin að ná
þessu,“ segir Unnur Birna og
bætir því við að það sé undarleg
tilfinning að vera allt í einu orðin
hálfgerð stjarna. „Það er gífur-
legur áhugi á keppninni hérna
í Asíu og ég á erfitt með að átta
mig á öllu umstanginu. Ég fór á
tvo blaðamannafundi í morgun og
þangað var mér fylgt af fimm líf-
vörðum. Mér finnst þetta eitthvað
svo fjarstæðukennt og átta mig
ekki ennþá á því hvað þetta er allt
saman stórt.“
Móðir Unnar Birnu, Unnur
Steinsson, fylgdist með keppninni
og Unnur Birna er ekki í nokkrum
vafa um að amma hennar heitin,
Jórunn Karlsdóttir, hafi einnig
verið á svæðinu. „Kjóllinn sem ég
klæddist í keppninni var upphaf-
lega hannaður af ömmu og bæði
mamma og ég höfum líka komið að
saumaskapnum. Mér þótti ákaf-
lega gaman að geta verið í þess-
um kjól og ég er viss um að amma
var með mér þarna í gær. Ég fann
virkilega fyrir henni. Það var svo
góður andi yfir öllu og ég var alveg
róleg,“ segir Unnur Birna.
Fram undan eru spennandi
tímar hjá Unni Birnu og í kjöl-
far keppninnar bíða hennar ýmis
verkefni. „Við höfum ekki enn haft
tíma til að setjast niður og fara í
gegnum þetta en ég veit að það
verður farið í svakalegan túr um
heiminn. Ég mun heimsækja allar
heimsálfurnar og kem ábyggilega
til svona 100 borga. Keppnin geng-
ur fyrst og fremst út á góðgerða-
starf og næsta árið verður það
mitt hlutverk að safna peningum
til góðgerðamála víða um heim,“
segir Unnur Birna, sem ætlar þó
ekki að láta keppnina hafa áhrif á
öll framtíðarplön sín og stefnir á að
halda áfram námi sínu í lögfræði
við Háskólann í Reykjavík. „Miss
World-samtökin hvetja mig til þess
að halda áfram námi og borga til
að mynda öll skólagjöld fyrir mig.
Ég ætla því að reyna að sinna skól-
anum eitthvað þótt það verði ef til
vill ekki af fullum krafti.“
Unnur Birna verður í Kína
fram á þriðjudagskvöld en þá fer
hún til London þar sem hún mun
dvelja í nokkra daga. „Ég veit
ekki alveg hvenær ég kem heim
en það er búið að lofa mér að ég
fái að komast heim yfir jólin og
áramótin. Þetta er búin að vera
hörkuvinna bæði líkamlega og
andlega og ég hlakka til að slappa
af í faðmi fjölskyldunnar,“ segir
Unnur Birna um leið og hún send-
ir kveðju til Íslands og þakkar
fyrir allan stuðninginn sem henni
hefur verið sýndur.
thorgunnur@frettabladid.is
Fann fyrir nærveru ömmu
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, nýkjörin Ungfrú heimur, er enn að átta sig á
sigrinum en hlakkar til að takast á við verkefnin sem fylgja titlinum. Fram und-
an eru spennandi tímar með ferðalögum um allan heim.
Landi og þjóð til sóma
Þegar ljós urðu úrslit í keppninni
Ungfrú heimur sendu forsetahjónin
Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit
Moussaieff nýkrýndri fegurðardrott-
ingu eftirfarandi heillaóskir: „Ungfrú
heimur, Unnur Birna Vilhjálmsdóttir,
Sanya, Kína. Við óskum þér til ham-
ingju með glæsilegan árangur. Þú ert
landi og þjóð til sóma. Heillaóskir til
fjölskyldunnar.“
6 12. desember 2005 MÁNUDAGUR
ALÞINGI Þak sem sett var á fæð-
ingarorlofsgreiðslur veldur því að
útgjöld fæðingarorlofssjóðs voru
25 milljónum króna lægri fyrstu
níu mánuði ársins en ráð var fyrir
gert. Eftir breytingu geta greiðsl-
ur ekki orðið hærri en sem nemur
80 prósentum af 600 þúsund króna
mánaðartekjum.
Í svari Árna Magnússonar félags-
málaráðherra til Jóhönnu Sigurðar-
dóttur þingmanns Samfylkingar í
umræðum á alþingi á föstudag kom
fram að 81 foreldri hafi fyrstu níu
mánuði ársins verið yfir hámark-
inu. Hann sagði félagsmálaráðu-
neytið áætla að útgjöld sjóðsins á
árinu yrðu mjög nálægt útgjöld-
um sjóðsins í fyrra, eða um 6,2
milljarðar króna. Hann sagði þó
ljóst að áhrif breytinganna sem
urðu um áramót á úthlutunarregl-
unum myndu ekki að fullu koma
fram í útgjöldum sjóðsins fyrr en
á næsta ári.
Annað sem breyttist er að nú
er miðað við tekjur fólks síðustu
24 mánuðina áður en að orlofstöku
kemur, í stað 12 mánuða áður. Árni
segir breytinguna minnka útgjöld
sjóðsins um 3 til 4,5 prósent.
„Það hefur aldrei verið markmið
laganna að bæta foreldrum þær
tekjur sem þeir hugsanlega hefðu
getað aflað hefðu þeir ekki eign-
ast barn og því haldið áfram á
vinnumarkaði,“ áréttaði hann.
- óká
Hálfur þriðji tugur milljóna króna sparaðist:
Tekjuháir fá minna
ÁRNI MAGNÚSSON Ráðherra segir frekari skoðunar þörf á því hvort til greina komi að breyta
lögum á þann veg að fæðingarorlof skerði ekki rétt til umönnunar- og lífeyrisgreiðslna.
KJÖRKASSINN
Gætir þú hugsað þér að kaupa
rafmagn af Símanum?
Já 35%
Nei 65%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á Árni Magnússon félagsmála-
ráðherra að segja af sér?
Segðu skoðun þína á Vísir.is