Fréttablaðið - 12.12.2005, Blaðsíða 78
12. desember 2005 MÁNUDAGUR42
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
Mánudagstilboð
Ljúffengar ýsurúllur með rækjuostafyllingu.
890,-kr. kg
Eigum einnig allar stærðir af humri,
risarækjur, hörpuskel, saltsíld, kryddsíld
og fleira og fleira
Fiskbúðin Hafrún
Skipholti
Sími 553-0003
FÓTBOLTI Nú er talið líklegast að
Roy Keane fari til spænska liðsins
Real Madrid og muni skrifa undir
stuttan samning við félagið. Sumir
spænskir fjölmiðlar fullyrða að
leikmaðurinn hafi þegar gengist
undir læknisskoðun á Santiago
Bernabeu. Keane er 34 ára en
hann hefur legið undir feldi síðan
hann hætti hjá Manchester United
í síðasta mánuði.
Fjölmörg félög hafa sýnt áhuga
á þessum fyrrverandi landsliðs-
manni Írlands, en flestir reikna
með því að hann skrifi undir hálfs
árs samning við Madridinga.
Auk þess hafa West Ham, Bolt-
on, Middlesbrough og Everton
öll áhuga á að fá Keane í sínar
raðir. Florentino Perez, forseti
Real Madrid, er mikill aðdáandi
leikmannsins en ef Keane fer til
liðsins mun hann hitta fyrir David
Beckham, sinn gamla samherja.
- egm
Real Madrid líklegast
Roy Keane til
Real Madrid?
ROY KEANE Heyrist ekkert frá honum frekar
en fyrri daginn.
FÓTBOLTI Hörður Sveinsson, sókn-
armaður Keflvíkinga, mun á
morgun fara til Hollands þar sem
hann mun æfa með RKC Waalwijk
fram á næsta sunnudag en liðið
er í fimmta sæti úrvalsdeildar-
innar. „Þetta er lítið félag sem
hefur verið að ná athyglisverðum
árangri og ég er spenntur fyrir
því. Áhugi þeirra hefur líklega
kviknað þegar þeir sáu mig í Evr-
ópukeppninni og svo með landslið-
inu,“ sagði Hörður.
Í byrjun síðasta mánaðar var
Hörður til reynslu hjá danska
úrvalsdeildarliðinu Mydtjylland
og reiknar með að heyra í því
bráðlega. „Mér gekk vel hjá þeim
og mér líst rosalega vel á það
félag. Það er með glænýjan völl,
góðan þjálfara og marga unga
leikmenn. Það er spennandi kost-
ur og þá vil ég helst spila í vetrar-
deild svo maður geti fengið sum-
arfrí,“ sagði Hörður Sveinsson.
„Ef ekkert gerist þá mun ég bara
spila áfram með Keflavík og það
er ekkert að því.“ - egm
Hörður Sveinsson:
Til Hollands á
morgun
HÖRÐUR SVEINSSON Sést hér í baráttunni
gegn Val síðasta sumar.
SUND Í gær lauk Evrópumeist-
aramótinu í 25 metra laug en það
fór fram á Trieste á Ítalíu. Jakob
Jóhann Sveinsson varð í nítjánda
sæti af 34 keppendum í undan-
rásum í 200 metra bringusundi
þegar hann synti á 2 mínútum
og 12,45 sekúndum. Á laugardag
setti Jakob Íslandsmet í 50 metra
bringusundi á mótinu. Þá keppti
Ragnheiður Ragnarsdóttir í und-
anrásum í 50 metra skriðsundi á
síðasta keppnisdeginum í gær og
hafnaði hún í 24. sæti þar af 41
keppenda á 25.93 sekúndum.
EM í 25 metra laug:
Keppni lokið
FÓTBOLTI Útlit er fyrir að Almir
Cosic gangi ekki til liðs við úrvals-
deildarlið Breiðabliks. Cosic er
29 ára en hann komst í fréttirna
snemma á þessu ári þegar hann
gekk til liðs við Leikni Fáskrúðs-
firði sem leikur í 3. deildinni.
Fyrir nokkrum árum var hann á
óskalista Newcastle og var met-
inn á um 300 milljónir íslenskra
króna.
„Þetta gekk bara ekki upp og
málið er strand í bili þar sem samn-
ingar náðust ekki. Hann er kominn
aftur á Fáskrúðsfjörð en það gæti
verið að við kíktum á hann aftur
eftir jól. Hann sýndi alveg ágætis
takta þegar hann æfði með okkur,“
sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari
Breiðabliks, en Cosic æfði með
félaginu fyrir skömmu.
Bjarni segir að lítið sé að frétta
af leikmannamálum Blika þessa
dagana en eftir áramót verði lík-
lega leitað liðstyrks erlendis. „Það
liggur nokkuð ljóst fyrir að við
munum leita út fyrir landstein-
ana. Ég tel að við þurfum að fá
okkur einn miðjumann og einn
varnarmann eins og staðan er
núna,“ sagði Bjarni. - egm
Almir Cosic ekki í Breiðablik:
Málið er strand
BJARNI JÓHANNSSON Ekki sáttur við gang
mála.
FÓTBOLTI „Við hefðum átt að vinna
þennan leik. Við fengum betri
færi en markvörður þeirra átti
stórleik,“ sagði Sir Alex Fergu-
son, knattspyrnustjóri Manchest-
er United, eftir að liðið gerði 1-1
jafntefli á heimavelli sínum gegn
Everton í eina leik gærdagsins
í ensku úrvalsdeildinni. Úrslitin
gera það að verkum að Liverpool
er í öðru sæti deildarinnar en
United fellur niður í það þriðja og
kætast stuðningsmenn liðsins lítið
yfir því.
Leikurinn fór mjög fjörlega af
stað og einungis sex mínútur voru
liðnar þegar vörn heimamanna
opnaðist og James McFadden
kom Everton yfir úr þröngu færi.
Edwin van der Sar, markvörður
Manchester United, hefði eflaust
getað gert betur. Á fjórtándu mín-
útu náði Ryan Giggs að jafna með
góðu marki, hann kláraði vel eftir
frábæra sendingu frá Paul Schol-
es. Fleiri urðu mörkin ekki, United
var nær því að skora en Richard
Wright var í miklu stuði í marki
Everton og varði oft vel. Wright
hefur lítið spilað fyrir Everton en
hann hefur glímt við erfið meiðsli
og Nigel Martyn verið ofar í for-
gangsröðinni.
„Við ákváðum að notast við
skyndisóknir og með smá heppni
hefðum við getað tekið öll stig-
in þrjú. Ég er hæstánægður með
frammistöðu liðsins en það vill oft
vera þannig að leikmenn mæti á
Old Trafford og verði hræddir. Við
höfum ekki verið nógu duglegir
við að skapa okkur færi á tímabil-
inu en nú er ég bjartsýnn á að það
sé að breytast,“ sagði Phil Neville
sem gekk í raðir Everton fyrir
tímabilið frá Manchester United.
Hann mætti bróður sínum, Gary,
í leiknum í gær.
Þetta voru klárlega ekki þau
úrslit sem Manchester United
vonaðist eftir en félagið datt út
úr meistaradeild Evrópu með því
að tapa fyrir Benfica síðasta mið-
vikudag eins og öllum er kunnugt.
Everton hefur valdið vonbrigðum
á tímabilinu en stigið í gær gæti
fært liðinu aukið sjálfstraust
fyrir komandi átök en það er í
fimmtánda sæti ensku deildarinn-
ar eftir úrslit gærdagsins.
elvar@frettabladid.is
Áframhaldandi vandræða-
gangur hjá Man. Utd
Manchester United náði ekki að rífa sig upp eftir að hafa fallið út úr Evrópu-
keppninni í síðustu viku og í gær náði liðið aðeins 1-1 jafntefli gegn Everton.
MARKI FAGNAÐ Ryan Giggs fagnar jöfnunarmarki sínu gegn Everton í gær. United tókst
ekki að skora fleiri mörk og þurfti að sætta sig við jafntefli. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES