Fréttablaðið - 12.12.2005, Blaðsíða 32
12. desember 2005 MÁNUDAGUR
80% fleiri lesa
fasteignablað Fréttablaðsins
35%
20%
Er fasteignin þín að seljast?
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
M
b
l.
M
b
l.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Um 150.000 lesendur
Samkvæmt nýjustu fjölmiðlakönnun Gallup (okt. 2005) nærðu til um 80%
fleiri Íslendinga með því að auglýsa í fasteignablaði Fréttablaðsins frekar
en fasteignablaði Morgunblaðsins. Könnunin sýnir að 35% fólks á aldrinum
25 - 54 ára á höfuðborgarsvæðinu les Allt – fasteignir, sem berst frítt með
Fréttablaðinu á mánudögum, á meðan einungis 20% lesa fasteignablað
Morgunblaðsins. Allar eignir eru einnig skráðar á visir.is.
Þegar horft er á allar staðreyndir málsins ætti að vera einfalt að sjá hvar
borgar sig að auglýsa.
Hvar birtist auglýsingin þín?
– mest lesna fasteignablaðið
Notkun rafmagnstækja hefur
aukist á heimilum síðustu árin.
Sérstaklega eykst rafmagns-
notkun í desembermánuði
þegar húsið er skreytt bæði
að innan sem utan. Hér koma
nokkur ráð sem gott er að
grípa í.
Eldhústækin
Fyllið uppþvottavélina og notið
sparnaðarhnappinn (E) eins oft og
kostur er. Skolið af matarleifarnar
því þá nægir styttra þvottakerfi
og lægra hitastig. Sama gildir um
þvottavélarnar. Hafið þær fullar.
Lágt hitastig sparar 30 prósent
orku og ef forþvotti er sleppt
sparar það 20 prósent orku.
Þegar matreitt er í örbylgjuofni
sparast bæði tími og orka. Flestir
þurfa þó að eldavélinni að halda
um jólin og þá er best að hafa pott
sem er hæfilega stór á helluna. 20
prósent orkunnar fara til spillis ef
potturinn er tveimur sentimetrum
minni í þvermál en hellan. Einnig
þarf tvisvar til þrisvar sinnum
meiri orku að glóðarsteikja í ofn-
inum en að steikja á hefðbundinn
hátt.
Kælitækin
Frystikistan notar fimm prósent-
um minna rafmagn fyrir hvert stig
sem hitinn er lægri og því gott að
hafa hana á köldum stað. Hæfilegt
hitastig er um 18 gráður. Sjáið til
þess að kæliristin sé hrein og nóg
loft komist að henni. Innilokuð og
rykug kælirist getur eytt 30 pró-
sentum meira rafmagni.
Hæfilegt hitastig í ísskápum
er fjórar til fimm gráður og eykst
rafmagnsnotkun um fjögur pró-
sent fyrir hvert stig sem hitinn er
lækkaður. Léleg loftræsting bak
við ísskápinn getur valdið fimm
til tíu prósentum meiri rafmagns-
notkun.
Réttur ljósgjafi og rétt notkun
Ekki nota stærri perur en þið
þurfið og reynið að lýsa umhverf-
ið með ljósum litum þar sem það
hefur áhrif á hversu mikla lýsingu
þarf. Slökkvið á ljósum sem ekki
er verið að nota, það bæði sparar
og dregur úr eldhættu.
Ekki hafa heimilistækin á
„stand by“, eins og sjónvörp,
hljómtæki og þess háttar. Tækin
nota rafmagn þó þau séu ekki í
gangi. Þar að auki stafar eld-
hætta af tækjum sem eru í gangi
allan ársins hring og því nauð-
synlegt að slökkva alveg á þeim
endrum og eins.
Ekki láta jólaseríurnar lýsa
þegar enginn er til að njóta þeirra.
Spennar fyrir amerísk 110 volta
heimilistæki nota orku þó svo að
þau séu ekki í gangi. Þá er rétt að
átta sig á því að ýmis tæki gætu
verið tengd án þess að við munum
eftir því eins og loftnetsmagnar-
ar, rafmagnsklukkur og klukkur í
ýmsum tækjum eins og í örbylgju-
ofnum, eldavélum og útvarps-
klukkum.
Lækkum rafmagns-
kostnaðinn