Fréttablaðið - 12.12.2005, Side 12
12 12. desember 2005 MÁNUDAGUR
NOREGUR 67 ára gamall maður
ætlar að kvænast sautján ára
gamalli stúlku og borgar móð-
urinni fyrir 800 þúsund norsk-
ar krónur, eða um átta milljón-
ir íslenskar. Skrifað var undir
samninginn í apríl í fyrra og
hefur maðurinn þegar látið
móðurina hafa einn tíunda upp-
hæðarinnar. Afgangurinn verð-
ur greiddur þegar hjónabandið
hefur hlotið blessun.
Stúlkan er fædd og uppal-
in í austurhluta Noregs. Faðir
hennar er norskur en móðirin
frá Asíu. Maðurinn, sem er af
erlendu bergi brotinn, segist
ekki hafa keypt sér brúði með
þessum samningi. „Ég veit að
sumir telja að þetta sé man-
sal en þetta er sá háttur sem
hafður er á í landi móðurinn-
ar. Allir sem ætla að kvænast
konu þaðan verða að gera svona
samning. Ég hef útskýrt fyrir
henni að svona séu hlutirnir
ekki í Noregi en hún vill þetta
samt,“ segir hann.
Börn mannsins telja um man-
sal að ræða og hafa áhyggjur af
föður sínum. Þau segja að hann
hafi kynnst stúlkunni fyrir þrem-
ur árum og fengið stúlkuna á
heilann. Hann hafði þá verið frá-
skilinn í tíu ár. Faðir stúlkunnar
ætlar að gera allt sem hann getur
til að vernda dóttur sína.
- ghs
67 ára maður semur um að kvænast ungri stúlku:
Brúður fyrir átta milljónir
FRÁ NOREGI 67 ára gamall maður hefur gert
samning við konu frá Asíu, sem býr í Noregi,
um að borga átta milljónir króna fyrir að fá
að kvænast sautján ára dóttur hennar.
DÓMSMÁL 21 árs gamall maður
hefður verið sviptur ökuleyfi í
þrjú ár og sektaður um 225 þús-
und krónur.
Aðfaranótt sunnudagsins 30.
október ók maðurinn undir áhrif-
um áfengis og án ökuskírteinis
austur Egilsbraut í Neskaupstað
að húsi Landsbjargar við Nesgötu
þar sem lögregla stöðvaði hann.
Maðurinn játaði brot sitt ský-
laust fyrir dómi, en þyngd refs-
ingar hans skýrist nokkuð af fyrri
afbrotum hans. Árið 2002 var
hann dæmdur í þrjátíu daga fang-
elsi, skilorðsbundið í tvö ár, og
sama ár var hann sektaður bæði
fyrir hrað- og ölvunarakstur. - óká
Ók drukkinn í Neskaupstað:
Sektaður og
sviptur leyfinu
SLAGSMÁL Á ÞINGI Til handalögmála kom
milli þingmanna úr herbúðum stjórnarliða
og stjórnarandstæðinga á Suður-Kóreu-
þingi í Seúl fyrir helgi. Stjórnarandstæð-
ingar vildu hindra að umdeild lög um
einkaskóla fengjust samþykkt.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
gert Héraðsdómi Reykjavíkur
að fjalla á nýjan leik um þátt
Tryggva Lárussonar í Dettifoss-
málinu svonefnda en það snýst
um stórfelldan innflutning á
fíkniefnum.
Héraðsdómur dæmdi Tryggva
til refsingar fyrir að hafa keypt
tæp átta kíló af amfetamíni í
Roosendaal í Hollandi í byrjun
júlí á síðasta ári þrátt fyrir að þrjú
vitni hafi borið að hann hafi verið
staddur á Hróarskelduhátíðinni í
Danmörku á sama tíma.
Í dómnum segir að vitnisburð-
ur og framburður Tryggva um að
hann hafi verið staddur á Hróars-
kelduhátíð dagana 30. júní til 5.
júlí 2004 útiloki ekki veru hans í
Hollandi og Þýskalandi áður. Síðar
í dómnum segir svo að sannað sé
að hann hafi annast kaup á amfet-
amíninu í byrjun júlí.
Ósamræmið felst í því að á
einum stað fellst dómurinn á
að Tryggvi hafi verið á Hróars-
keldu í júlíbyrjun en nokkrum
línum síðar er hann sagður hafa
keypt amfetamínið í Hollandi á
sama tíma.
„Það verður þrautin þyngri
fyrir ákæruvaldið að vinda ofan
af þessu,“ segir Sveinn Andri
Sveinsson, lögmaður Tryggva.
Hann hefur lagt fram gögn um
enn fleira fólk sem vitnað geti
um veru Tryggva á Hróarskeldu
í júlíbyrjun 2004 og segir að ef
vitnin staðfesti mál sitt fyrir
dómi liggi fyrir að Tryggvi verði
sýknaður. - bþs
Héraðsdómur fær hluta Dettifossmálsins aftur vegna ósamræmis í dómi:
Var á Hróarskelduhátíðinni
SVEINN ANDRI SVEINSSON Verjandi Tryggva Lárussonar.
SAMGÖNGUR Forsvarsmenn SAS-
Group hafa tilkynnt að flugfélagið
muni hefja áætlunarflug til lands-
ins í lok mars á næsta ári. Flogið
verður frá Ósló og hingað.
SAS-Group hefur fest kaup á
fleiri flugvélum upp á síðkastið
og það opnar fyrir flug til Íslands,
að sögn forsvarsmanna fyrirtæk-
isins. „Það eru sterk bönd á milli
Noregs og Íslands og þau byggja
á gamalli hefð. Einnig eru í dag
sterk viðskiptasambönd milli
þessara tveggja landa,“ segir
Petter Jansen, forstjóri SAS-
Braathens, sjálfstæðs flugfélags
sem flýgur til landsins. - sk
Fleiri kostir í millilandaflugi:
SAS flýgur
aftur til Íslands
Prófkjör í febrúar Sjálfstæðismenn
á Ísafirði munu halda prófkjör vegna
sveitarstjórnarkosninga í febrúar,
samkvæmt fréttum Bæjarins besta.
Framboðsfrestur er til 21. janúar.
ÍSAFJÖRÐUR
UPPLÝSINGATÆKNI Ísland verður
eitt tilraunasamfélaga fyrir raf-
ræn viðskipti í Evrópu.
Undirritaður hefur verið
samstarfssamningur um rekst-
ur tilraunasamfélagsins, en það
tengist verkefni sem unnið hefur
verið að frá 2003. „Ísland er í for-
ystu í hópi Evrópulanda sem í hálft
þriðja ár hafa unnið að undirbún-
ingi ETeB-verkefnisins, European
Network of National Testbeds for
eBusiness,“ segir í Útherja, frétta-
blaði Útflutningsráðs. „Fyrir-
sjáanlegt er að þróun rafrænna
viðskipta mun hafa veruleg áhrif
á starfsumhverfi fyrirtækja og
stofnana á Íslandi.“ Fram kem-
ur að auk Útflutningsráðs standi
Staðlaráð, iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneytið, Atvinnuþróunarfélag
Eyjafjarðar, Reykjavíkurborg,
Samtök atvinnulífisins og fleiri
að verkefninu. - óká
Samstarfssamningur:
Ísland verður
tilraunaland