Fréttablaðið - 12.12.2005, Qupperneq 28
[ ]fyrir börn eru mjög mikilvægar á heimilum. Litlar hendur fikta í ýmsu sem þær eiga ekki að fikta í og ef foreldrar geta ekki haft augun á barninu allan daginn er betra að hafa allar öryggisvarnir í lagi.Öryggisvarnir
Ólafur Hjálmarsson verkfræð-
ingur er brautryðjandi í því að
hanna hljóðvist í hús. En hvað
er hljóðhönnun?
„Ég lít á húsnæði eins og hljóð-
færi og notkunin skiptir miklu
máli. Þegar hún er á hreinu er
næsta skref að finna hvað er
hæfileg hljómlengd í rýminu. Svo
hannar maður út frá því og reikn-
ar út þennan svokallaða ómtíma
sem er sá tími sem það tekur
hljóð að falla um 60 desibel. Ég er
núna að reikna út hljóðvist í skóla
þar sem annars vegar er kvartað
undan of hljómmiklu rými, þar
sem margar bekkjardeildir eru
saman að læra í opnu umhverfi og
hins vegar undan of litlum hljómi
í sal þar sem kórinn ætlar að
syngja. Hljóðhönnun gengur út á
að tryggja hæfilegan hljóm.“
Ólafur segir hljóðvist umhverf-
ismál málanna í Evrópu og finnst
Íslendingar fremur seinir að átta
sig á því. Á allra síðustu árum
segir hann þó fólk vera að átta sig
á mikilvægi kyrrðar bæði heima
og á vinnustað. „Með hækkuðu
fasteignaverði gerir fólk meiri
kröfur,“ segir hann og kveðst oft
kallaður til að mæla hjóðeinagrun
milli íbúða þar sem íbúar séu
óánægðir. Einnig segir hann mikið
farið að spá í þetta atriði í skólum
og að Ingunnarskóli í Grafarholti
sé gott dæmi um byggingu þar sem
vel hafi tekist til. „Þar lögðu menn
áherslu á hljóðhönnun og sýndu
því skilning að það þyrfti mæling-
ar til að sannreyna að loftklæðn-
ingin virkaði eins og hún átti að
gera,“ segir hann og er í framhald-
inu spurður hvaða efni séu notuð í
klæðningar til að dempa hljóð.
„Þau eru mörg og hljóðhönnun
þarf að gera í nánu samstarfi við
arkitekt því við erum að vinna með
sýnilegt yfirborð. Best er að nota
loftflötinn því þar fellur minnst
ryk til. Fyrir skóla og skrifstofur
eru annað hvort notaðar gataðar
gifsplötur eða pressaðar gler- eða
steinullarplötur með álímdri filmu
sem er sprautuð eftir kúnstar-
innar reglum. Það er líka hægt
að vinna með veggi og skilrúm. Í
skilrúmum er gott að hafa steinull
á bak við en næst götunum gler-
trefjadúk, bæði til að dempa hljóð-
ið og ekki síður til að koma í veg
fyrir trefjasmit úr ullinni út í and-
rúmsloftið. Þegar byggingarefnið
er hart þá er það ekki efnið sjálft
heldur götin og það sem er á bak
við þau sem drekka í sig hljóðið.
Hljóð er í raun bara bylgju-
hreyfing í loftinu og það þarf að sjá
til þess að bylgjan fari inn í bak-
rýmið, dempist þar og komi miklu
veikari til baka. Gólfefni er yfir-
leitt hart af praktískum ástæðum.
Flísar og steinteppi eru slæm efni
upp á hljóðvist að gera en parkett
og dúkur dempa hljóðið meira.“
Ólafur segir þá miklu bylgju sem
nú ríður yfir og birtist í að hafa
opið skrifstofulandslag kalla á sér-
stakar hljóðvistaraðgerðir. „Það er
ekki síst símaónæðið sem hrellir
fólk í opnum rýmum og það þarf að
leysa. Til dæmis er hægt að hafa
þannig fyrirkomulag að síminn
hringi ekki heldur birtist síminn á
tölvuskjánum þegar hann hringir.
Það er óþolandi að síminn hringi í
auðum bás.“
Hljóðvist í húsum
er heilsufarsmál
El
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Mikið úrval af burstasettum
og neistahlífa, ásamt ýmis
konar aukahlutum.
Opið laugardaga kl. 10-16 og
sunnudaga kl. 12-16 til jóla.
Arinbúðin
Stórhöfða 17 v/Gullinbrú (fyrir neðan húsið)
Sími 567 2133 · www.arinn.is
Ný sending af fjölbreyttum
jólakrönsum og fullt af öðrum
jóla- og gjafavörum fyrir
heimilið. Úrval af lömpum
og ljósakrónum.
Fallegar vörur - gott verð
Gefðu heimilinu fallega gjöf.
Evíta
Hárgreiðsla og gjafavörur
Starmýri 2, 108 Rvík • s: 553-1900
www.evita.is
Ólafur segir Íslendinga að vakna til vitundar um óþægindin sem stafi af stöðugum hávaða.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Ingunnarskóli er eitt þeirra húsa sem Ólafur hefur hannað hljóðvist í og þar gengur fólki vel
að vinna í opnu rými. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„Þegar við vorum að glíma við hvolrýmið í Orkuveituhúsinu sagði einn arkitektinn að þessi hljóðráðgjafi væri búinn að gata fyrir honum
allt húsið. Svo held ég hann hafi verið sáttur þegar upp var staðið,“ segir Ólafur, sem einmitt var hljóðrágjafinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM